
Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hópur 25 sænskra skopmyndateiknara komu með húmoríska en jafnframt ógnvekjandi sýn á loftlagsbreytingarnar í tilefni af loftlagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn í desember 2009.
Myndirnar verða til sýnis í Norræna húsinu 11. september til 3. október.
Norræna húsið býður nemendum, 10 – 12 ára og 13 – 15 ára að taka þátt í stuttu og skemmtilegu námskeiði í breikdansi. Námskeiðið er liður í Fjöreggi – Barnamenningu í Norræna húsinu og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Grafíklistamaðurinn Dovile Tomkute opnar sýningu sýna Tvær hliðar raunveruleikans í Norræna húsinu 27/8. Sýningin er í anddyrinu og stendur til 12/9.
Norræna húsið er einn af stoltum styrktaraðilum RIFF í ár. Vegleg dagskrá verður að vanda í Norræna húsinu á hátíðinni s.s. Talent Lab, smiðjur fyrir börn og að sjálfsögðu kvikmyndirnar. Fylgist með á www.riff.is og www.norraenahusid.is
Listmálararnir Stefán Boulter og Bente Elisabeth Endresen sýna í tvemur sölum í kjallara Norræna hússins. Báðir listamennirnir hafa sýnt víða og hlotið mikið lof fyrir verk sín. Á báðum sýningunum verða olíumálverk en innblástur sinn sækja þau úr ólíkum áttum.
15.september opnar Kultur Kontakt Nord fyrir umsóknir um styrki til tengslaneta. Hægt er að sækja um styrk fyrir uppbyggingu tengslanets innan lista- og menningargeirans á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum.
Norræna húsið býður upp á góða aðstöðu til funda- og ráðstefnuhalds í fallegu umhverfi. Funda- og ráðstefnuþjónusta Norræna hússins nýtist vel fyrir minni fundi og málstofur sem og fyrir stærri samkomur, allt að 120 manns í sæti í einum sal. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og lögum okkur að þörfum hvers og eins.
Hér eru upplýsingar um verð
Uppskeruhátíð og sultukeppni fyrir fjölskylduna
Laugardaginn 11. september kl. 14.00 gefst áhugafólki á öllum aldri
tækifæri til að taka þátt í sultukeppni með afurðum úr eigin garði.
Í sumar hefur eldhúsgarðurinn við Norræna húsið vaxið og dafnað í sumarblíðunni. Garðurinn er matjurtagarður Norræna hússins og veitingahússins Dill Restaurant