Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sýning á teiknimyndasögum eftir Magnús Ingvar Ágústsson í bókasafni Norræna hússins, neðri hæð. Sýningin stendur frá 19. júlí – 13. ágúst og er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins kl. 12-17 alla virka daga og um helgar.
Lesa meira
Bókasafnið í Norræna húsinu verður lokað frá mánudeginum 5. júlí til og með föstudeginum 9. júlí vegna pússningar á gólfparketi í safni og sal.
Gestir bókasafnsins eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem geta skapast vegna þessa. Hægt verður að skila safngögnum í skilakassa við dyrnar að bókasafninu alla dagana.
Föstudaginn 25. júní næstkomandi kemur út á vegum forlagsins Uppheima bókin Aldrei framar frjáls eftir dönsku skáldkonuna Söru Blædel. Hér er á ferðinni æsispennandi glæpasaga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Dana.
Lesa meira
Barnabækurnar um Tatu og Patu eru mjög vinsælar í Finnlandi og núna er hægt að fræðast um stafrófið í bókinni Tatun ja Patun oudot aakkoset. Einnig er mælt með bókunum um Heinähattu ja Vilttitossu. Fyrir alla sem hafa gaman af teiknimynda- sögum erum við með nýjar flotta finnskar teiknimyndasögur: Eero eftir Petteri Tikkanen, Jupu: baa- rien nainen eftir Johanna Tolonen og Minerva: Jääkarhun sydän eftir Juba.
Nýlega fékk bókasafn Norræna hússins danskar matreiðslubækur fyrir börn og unglinga, sem eru þó einnig áhugaverðar fyrir mömmur og pabba. Um er að ræða Prinsessekogebogen, Børn i køkkenet, Heibergs vilde dessertcirkus og fyrir unga fólkið Mad uden mor.
Lesa meira
Norski rithöfundurinn Karl Ove Knausgård er væntanlegur í Norræna húsið 26. maí næstkomandi. í maí munu, auk Knausgårds, Bjarni Bjarnason rithöfundur og Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur taka þátt í dagskránni. Tiril Myklebost lektor í norsku við Háskóla Íslands er kynnirDagskráin hefst klukkan 20.00 og er öllum opin.
Lesa meirakl. 19:00 25.maí.
Kabarett eftir Kristi Kinsarvik byggður á ævi Sigrid Undset Fram koma Kristi Kinsvarvik og Øystein Johnsen. Kabarettinn hefur verið fluttur á bókmenntahátíðum, í menningarhúsum og leikhúsum víða um Noreg auk þess sem kabarettinn er settur reglulega upp í Bjerkebæk, húsinu þar sem Sigrid Undset bjó, fyrir fullu húsi áhorfenda. Aðgangur er ókeypis - Allir velkomnir.
Lesa meira
Gustav Fridolin, blaðamaður og lýðháskólakennari, fv. þingmaður, kynnir bók sína Blåsta! Nedskäringsåren som formade en generation (2009). Sigríður Ingibjörg Ingadóttir alþingiskona, starfandi formaður félags- og tryggingamálanefndar Alþingis og fulltrúi í Norðurlandaráði, ræðir við Gustav Fridolin og setur bók hans í samhengi við aðstæður hér á landi fyrir og eftir efnahagshrunið 2008. Dagskráin verður á sænsku. Allir velkomnir.
Lesa meira