Karl Ove Knausgård-Í Norræna húsinu
Norski rithöfundurinn Karl Ove Knausgård er væntanlegur í Norræna húsið 26. maí næstkomandi. Dagskráin hefst klukkan 20.00 og er öllum opin.
Knausgård hefur slegið í gegn í heimalandi sínu og víðar og hlotið fjölda verðlauna. Fyrir fyrstu bók sína, Ute av verden (1998), hlaut Knausgård norsku gagnrýnendaverðlaunin og var sá fyrsti til þess að hljóta þau verðlaun fyrir frumraun. Knausgård hlaut tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2005 fyrir aðra bók sína, En tid for alt.
Nú vinnur Knausgård að ævisögulegu verki í sex bindum sem ber titilinn Min kamp. Fyrstu þrír hlutarnir komu út í fyrrahaust og vöktu gríðarlega athygli í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Útkoman þótti tíðindum sæta, bækurnar hlutu frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og rökuðu til sín verðlaunum. Fjórði, fimmti og sjötti hluti Min kamp eru væntanlegir á næstunni. Knausgård var tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2010 fyrir Min kamp.
Í Norræna húsinu í maí munu, auk Knausgårds, Bjarni Bjarnason rithöfundur og Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur taka þátt í dagskránni. Tiril Myklebost lektor í norsku við Háskóla Íslands er kynnir.



