Lokað á bókasafninu 5.júlí -9.júlí
Bókasafnið í Norræna húsinu verður lokað frá mánudeginum 5. júlí til og með föstudeginum 9. júlí vegna pússningar á gólfparketi í safni og sal.
Gestir bókasafnsins eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem geta skapast vegna þessa. Hægt verður að skila safngögnum í skilakassa við dyrnar að bókasafninu alla dagana.
Vegna lokunarinnar eru DVD myndir lánaðar út til mánudagsins 12. júlí.
Bókasafnið opnar aftur laugardaginn 10. júlí kl. 12. Opið er alla virka daga og um helgar frá kl. 12-17.



