Þjónusta
Bókasafnið er opið daglega kl. 12-17
Þeir sem náð hafa 18 ára aldri geta gerst lánþegar.
Lánþegaskírteini kostar 1500 kr. og gildir í ár.
Bækur, tímarit og tónlist eru lánuð út í 30 daga.
Kvikmyndir eru lánaðar út í 7 daga.
Grafíkmyndir eru lánaðar út í 3 mánuði.
Dagsektir eru 10 kr fyrir bækur, tímarit og tónlist en 30 kr. fyrir DVD myndir og grafikverk.
Einstaklingar, bókasöfn og skólar úti á landi geta fengið safnefni að láni.
Leikskólar, grunnskólar og aðrir hópar geta pantað heimsókn í safnið.
Í safninu eru 3 tölvur til afnota fyrir gesti.
Sími: 551 7090
Netfang: nordlib@nordice.is


