norraenahusid

Norræna húsið

Staður innblásturs og skapandi hugsunar.

Norræna húsið í Reykjavík er menningarstofnun rekin af Norrænu ráðherranefndinni. Markmið Norræna hússins er að hlú að og styrkja menningartengsl milli Íslands og hinna Norðurlandanna. Fram að þessu hefur Norræna húsið skipulagt og haft frumkvæði af margvíslegum menningarviðburðum og sýningum.

Norræna húsið er bæði bakhjarl og þátttakandi í helstu menningarviðburðum Íslands s.s Kvikmyndahátíð í Reykjavík, Bókmenntahátíð Reykjavíkur, Iceland Airwaves, Listahátíð Reykjavíkur og Norræna tískutvíæringnum en Norræna húsið átti frumkvæðið að þeim viðburði.

Í Norræna húsinu er einnig að finna einstakt bóksafn,  sem lánar út bókmenntir eingöngu á norrænum tungumálum, verslun með norræna hönnun og matvöru, sýningarsali og tónleika/kvikmyndasal. Auk þess er í húsinu veitingastaðurinn Dill sem framreiðir mat eingöngu úr norrænu hráefni. Veitingarstaðurinn Dill er hugarfóstur  Gunnars Karls Gíslasonar og Ólafs Arnar Ólafssonar.

Norræna húsið er hannað af hinum heimsþekkta finnska arkitekt Alvar Aalto. Húsið er eitt af hans seinni verkum og er líkt og falin demantur á meðal þekktari verka hans. Húsið ber mörg höfundareinkenni Aaltos. Þau sjást einna best í bláu flísunum á þaki hússins, í hvelfingu bókasafnsins og í hinni miklu notkun á hvítum lit, flísum og við í í allri byggingunni.

Alvar Aalto hannaði einnig húsgögn í flestallar byggingar sínar og í Norræna húsinu eru öll húsgögn og ljós hönnuð af honum.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica