Forstjóri Norræna Hússins

maxdagerMax Dager (Svíþjóð) kemur úr óháða menningargeiranum. Hann var einn af stofnendum götuleikhópsins Cirkus Cirkör, en þar vann hann fyrst og fremst að alþjóðasamskiptum.

Hann hefur bakgrunn í menningargeiranum og hefur starfað við alþjóðleg verkefni til margra ár, m.a. við mörg evrópsk samstarfsverkefni um sviðslist, hann hefur verið verkefnisstjóri fyrir víetnamska menningarráðuneytið og fyrir samtökin Union Internationale de la Marionettes. Sem framleiðandi hefur hann sett upp sviðsverk í öllum heimshlutum, frá Japan í austri til Kólumbíu í vestri.

Max Dager hefur stuðlað að breiðu samstarfi við íslenskt menningar- og vísindasamfélag og norrænt atvinnulíf. Hugsjón Max er að húsið brúi bilið milli Íslands og umheimsins, og sé sýningaraðstaða fyrir íslenska og norræna menningu.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica