Fréttir

nordurlond-fanar

16.5.2012 Fréttir : 17.maí 2012

Norræna húsið er opið frá 12-17, 17.maí. Það er Uppstigningardagur og jafnframt Þjóðhátíðardagur Noregs.
Lesa meira
 
100_2980

10.5.2012 Fréttir : Píanótónleikar með Liwen Huang

Kínverski píanóleikarinn, Liwen Huang, kemur fram á tónleikum í Norræna húsinu 24.maí kl. 20.00. Liwen Huang er fædd 1985, hún nam píanólistina af Erling R. Eriksen við Tónlistarháskólann við Stavanger í Noregi og útskrifaðist með meistaragráðu þaðan 2009. Það ár hlaut hún jafnframt viðurkenninguna „Young Artist Award“ í Stavanger.

Lesa meira
 
PB167931

9.5.2012 Fréttir : Tónskóli Sigursveins

Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar heldur tónleika í sal Norræna hússins miðvikudaginn 23. maí kl. 20. Á efnisskrá er fjölbreytt tónlist af rytmíska sviðinu, en starf þeirrar deildar Tónskólans hefur verið gróskumikið í vetur og mun afraksturinn hljóma á tónleikunum. Allir eru velkomnir

Lesa meira
 
Francaix-1

9.5.2012 Fréttir : Hátíðartónleikar í tilefni af 100 áraafmæli franska tónskáldsins Jean Françaix.

Sunnudaginn 13. maí kl. 15:15 verða sannkallaðir hátíðartónleikar í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu þegar haldnir verða tónleika í tilefni af 100 ára afmæli franska tónskáldsins Jean Francaix.

Lesa meira
 
Netverk-bokverka_Mynd-copy

9.5.2012 Fréttir : Netverk bókverka

Sýning í innri sal í Norræna húsinu – gengið inn frá bókasafni - 19. maí til 17. júní 2012

Í tengslum við ráðstefnuna Art in Translation og Sjálfstætt fólk á Listahátíð í Reykjavík

Lesa meira
 
VMH_facebook

8.5.2012 Fréttir : Vatnsmýrarhátíðin 2012

Vatnsmýrarhátíð Norræna hússins verður haldin 12.maí kl. 13.00-17.00. Vatnsmýrarhátíðin er hugguleg upp á norræna vísu og býður upp á dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Komið klædd eftir veðri og við hvetjum ykkur ennfremur til að koma á hjólinu því dr. Bæk verður á staðnum.

Lesa meira
 
Blaklukka

8.5.2012 Fréttir : Ísland og Evrópusambandið: öryggi og varnir

Fimmtudaginn 10.maí  er ráðstefna á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands um Ísland, Evrópusambandið og öryggismál.  Ráðstefnan hefst kl. 9.00.

Lesa meira
 
a001_c053_0826d3_02308_edit

3.5.2012 Fréttir : (I)ndependent People og Superflex

Superflex

tekur þátt í Listahátíð með röð dáleiðslufunda, sem bera heitið ,,Fjármálakreppan” og gegna hlutverki evrópskrar undirmeðvitunar,  í kjallara Norræna hússins.

Lesa meira
 
AudibleDwelling

3.5.2012 Fréttir : (I)ndependent People og Learning Site listatvíeykið

„Learning Site“ kalla  listakonurnar  Rikke Luther og Cecilia Wendt sig og í samstarfi við rithöfundinn Jaime Stapleton vinna þau að samtíma sviðsetningu.  Hópurinn lýsir starfi sínu sem vettvangi samræðna milli einstaklinga innan ólíkra greina lista og atvinnulífs – en sem eiga það sameiginlegt að vilja læra af umhverfi sínu og samfélagi.

Lesa meira
 
ait_Logo_blue_rgb_72p

3.5.2012 Fréttir : Art in translation 2012

Art in Translation er alþjóðleg ráðstefna sem haldin verður dagana 24. – 26. maí í Norræna húsinu og Öskju. Þar verður stefnt saman fræðimönnum og listamönnum og skoðaðir ýmsir fletir ritlistar, bæði í fræðilegum erindum og listrænum gjörningum. Um 50 lista- og fræðimenn hvaðanæva úr heiminum hafa boðað komu sína.

 

Lesa meira
 
2nallar3_jpg_

3.5.2012 Fréttir : Norsk sögustund

Sögustund á norsku fyrir börn laugardaginn 5. maí kl. 14 í bókasafni Norræna hússins.  Lesið, sungið og spjallað saman á norsku. Í þetta skiptið ætlum við að að undirbúa fyrir þjóðhátíðardag Noregs 17. maí. Sögustundin er fyrir alla krakka sem tala og skilja norsku og foreldra þeirra.
Matja Steen sér um sögustundina.

Lesa meira
 
Skogarfoss-vatnsflaumur

26.4.2012 Fréttir : Má bjóða þér vatn? - Opinn fyrirlestur

Umhverfisráðuneytið, Umhverfisstofnun, Veðurstofa Íslands, Landgræðsla ríkisins og Íslenska vatnafræðinefndin efna til hádegisfyrirlestra undir yfirskriftinni Má bjóða þér vatn? Fyrstu erindin verða í Norræna húsinu, miðvikudaginn 2. maí kl. 12:10 – 13:00 og verður fjallað um vatnsauðlindina á Íslandi og aðgang að vatni á heimsvísu.

Lesa meira
 
visinda_og_taeknirad_logo

25.4.2012 Fréttir : Opnir málfundir um vísinda- og nýsköpunarkerfið

Efnt er til tveggja funda um tillögur að einföldun á vísinda- og nýsköpunarkerfinu í Norræna húsinu fimmtudagana 26. apríl og 3. maí kl. 15-17. Kaffiveitingar verða í boði frá kl. 14:30.

Lesa meira
 
hafid

25.4.2012 Fréttir : Kjarnorkuöryggi ogumhverfisógn á Norður-Atlantshafssvæðinu

Umhverfis- og náttúruauðlindanefnd Norðurlandaráðsins býður til málþings í Norræna húsinumánudaginn 7. maí kl. 16:30-18:30

Lesa meira
 
alfons

25.4.2012 Fréttir : Sænsk sögustund

Sögustund fyrir sænskumælandi börn og foreldra þeirra er laugardaginn 28. apríl kl. 11 í bókasafni Norræna hússins.  Sögustundin er ætluð börnum milli 1-5 ára. Eldri börn er einnig velkomin og geta þau spilað á spil, litað, lesið og spjallað saman.

Lesa meira
 
caput

25.4.2012 Fréttir : Gegnsæja vor - Caput spilar Hafliða

Caput hópurinn leikur tónleika til heiðurs Hafliða Hallgrímssyni í Norræna húsinu sunnudaginn 29. apríl kl. 15.15.  Tónleikarnir eru liður í 15:15 tónleikasyrpunni og verða þar flutt 5 verk Hafliða Hallgrímssonar. 

Lesa meira
 
sodergran_

25.4.2012 Fréttir : Síðdegi með ljóðum Edith Södergran

Sunnudaginn 6.maí kl. 14.30 býður Norræna húsið, Forlagið Oddur og Sendiráð Finnlands upp á dagskrá tileinkaða ljóðum Edith Södergran. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir.

Lesa meira
 
logo-reykjavikurborg

24.4.2012 Fréttir : Tölum saman - opinn fundur

Þann 26. apríl verður haldinn opinn fundur innflytjendafélagsins í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 20 í Norræna húsinu.

Lesa meira
 
seattle_skyline2

24.4.2012 Fréttir : Sjálfbært borgaskipulag: opinn fyrirlestur

Þann 27. apríl heldur prófessor Donald Miller (University of Washington í Seattle) opinn fyrirlestur um borgarskipulag. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og hefst hann kl. 12  í Norræna húsinu. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Lesa meira
 
Cultrera

23.4.2012 Fréttir : Klassík í Vatnsmýrinni: Ítalskir fingur

Þriðjudagskvöldið 1. maí kl. 20:00 hefst fjórða starfsár kammertónleika Félags íslenskra tónlistarmanna, FÍT, í samvinnu við Norræna húsið. Ítalski píanóleikarinn Giovanni Cultrera ríður á vaðið en hann mun flytja píanótónlist eftir Liszt, Chopin, Mussorgsky og Tchaikovsky.

Lesa meira
 
IMG_2525

23.4.2012 Fréttir : Sjálfbært skipulag - Dæmi Háskólasvæðið

25. apríl nk. verður haldið málþing á vegum Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar HÍ um sjálfbært skipulag. Í vetur hafa kennarar í fjórum námsskeiðum við deildina látið stúdenta gera tillögur í sjálfbærum anda um ýmsa þætti skipulags Háskólasvæðisins. TIl umræðu verða m.a. tillögur að breyttu fyrirkomulagi á svæðinu í kringum Norræna húsið.

 

Málþingið verður haldið 25. apríl nk. í stofu 132 í Öskju frá 15-17.

Lesa meira
 
(I)-460x230

20.4.2012 Fréttir : NORRÆN SAMTÍMALIST LEGGUR UNDIR SIG SÝNINGARSTAÐINA Á LISTAHÁTÍÐ 2012

Listahátíð í Reykjavík í samstarfi við Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Nýlistasafnið, Norræna húsið og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar undirbýr nú umfangsmikið myndlistarverkefni fyrir Listahátíð 2012.

Lesa meira
 
Blaklukka

17.4.2012 Fréttir : Ellefu aðilar keppa um náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs – þar af tveir Íslendingar.

Í dag 17. apríl var tilkynnt um þá ellefu sem tilnefndir eru til náttúru- umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.

Lesa meira
 
utrasin

17.4.2012 Viðburðir Ráðstefnur og málþing : Útrásin sem tókst? - Málþing í Norræna húsinu

Föstudaginn 20. apríl verður haldið málþing í Norræna húsinu í tilefni af viku bókarinnar. Yfirskrift þess er „Útrásin sem tókst? – Íslenskar bókmenntir erlendis“ og hefst það klukkan fjögur. Málþingið er opið öllum.

Lesa meira
 
Via-artis-konsort2

17.4.2012 Fréttir : Norrænir menningarvegir

Tónleikar með dönsku miðaldasveitinni Via Artis Konsort og færeyska kórnum Mpiri ásamt gestum úr íslensku sveitinni Voces Thules þann 6.maí 2012 kl. 17. Aðgangseyrir 1500 kr.

Lesa meira
 
fidlumynd

17.4.2012 Fréttir : Þematónleikar Nýja tónlistarskólans

Á hverju ári halda nemendur Nýja tónlistarskólans þematónleika í Norræna húsinu, þar sem áhersla er lögð á samspil hinna ýmsu hljóðfærahópa. Í ár er þemað tónlist frá Ameríku. Aðgangur ókeypis öllum opið á meðan húsrúm leyfir.

Norræna húsið

Lesa meira
 
bragdskynaugnanna

13.4.2012 Fréttir : Bragðskyn augnanna - einhverskonar nálgun

 Andrea Hörður og Brynhildur - Shita, verða með  formlega opnun á skúlptúr og grafík sýningu „ Bragðskyn augnanna - einhverskonar nálgun“  I Norræna húsinu laugardaginn þann 14. apríl 2012 frá kl. 17:00-19:00.
Lesa meira
 
2781_behn_redigert

13.4.2012 Fréttir : Rithöfundurinn Ari Behn í útgáfuhófi í Norræna húsinu

Þriðjudaginn 17. apríl kl. 16.00 - 18.00 verður boðið til útgáfuhófs í Norræna húsinu í tilefni af útgáfu Talent for lykke eftir Ari Behn á íslensku en rithöfundurinn verður viðstaddur. Það er bókaforlagið Draumsýn sem gefur bókina út og þetta er fyrsta bók forlagsins.

Lesa meira
 
vaarallinen_matka

11.4.2012 Fréttir : Sögustund á finnsku

Finnsk sögustund fyrir börn

 Bókasafn Norræna hússins býður finnskumælandi börnum og fjölskyldum þeirra í sögustund laugardaginn 14. apríl kl. 11.

 Lesið fyrir börnin og kaffi á könnunni  fyrir fullorðna. Allir velkomnir til að spjalla saman á finnsku!

 

Næsta sögustund verður laugardaginn 5. maí kl. 11

Lesa meira
 
2nallar3_jpg_

11.4.2012 Fréttir : Sögustund á norsku 

Sögustund á norsku fyrir börn laugardaginn 14. apríl kl. 14 í bókasafni Norræna hússins.  Lesið, sungið og spjallað saman á norsku.  Sögustundin er fyrir alla krakka sem tala og skilja norsku og foreldra þeirra.
Matja Steen sér um sögustundina.

Lesa meira
 
Loftlagsbreytingar

11.4.2012 Fréttir : Loftlagsbreytingar; vísindaskáldskapur eða raunveruleiki?

Fyrirlestur um lofslagsbreytingar Föstudaginn 13.apríl kl. 13.00 í Andrews Theatre - Reykjanesbæ. Framsögumenn eru Sigurður Eyberg, umhverfis- og auðlindafræðingur, og Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, Forseti Íslands. Fyrirlesturinn er haldinn í samstarfi við Keili, Garðarshólma, Stofunun Sæmumdar Fróða, Kadeico og Climate Reality Project.

Lesa meira
 
puristroutes-aerial-2-mb

2.4.2012 Fréttir : National Purist Routes: síðasta sýningarhelgi 12.-13. maí

Verið velkomin á fyrirlestur og opnun 14.apríl kl. 14.00. Til umfjöllunar er vetnisvæðing þjóðvegs Íslands. Arkitekatarnir Gislunn Halfdanardottir og Mathias Kempton sýna og fjalla um verðlaunatillögu sína nýjum þjóðvegi með umhverfisvænni orku.

Lesa meira
 
paskar

2.4.2012 Fréttir : Páskar 2012

Norræna húsið verður lokað yfir Páskana frá og með 5.apríl. Við óskum ykkur gleðilegra Páska og bjóðum ykkur velkomin aftur í húsið þriðjudaginn 10.apríl.

Lesa meira
 
stjornin2

2.4.2012 Fréttir : Norræna húsið og Bókmenntahátíð í Reykjavík gera með sér samstarfssamning

Bókmenntahátíð í Reykjavík og Norræna húsið hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér að Norræna húsið verður einn af aðalstyrktaraðilum hátíðarinnar. Max Dager forstjóri Norræna hússins og Sigurður G. Valgeirsson formaður stjórnar Bókmenntahátíðar í Reykjavík skrifuðu undir samninginn. Lesa meira
 
Unge-Norden

27.3.2012 Fréttir : Unga fólkið er byrjað

Hin unga dómnefnd Norræna menningarsjóðsins fyrir norræna barna- og ungmennahátíð ársins hefur nú fundað í fyrsta sinn. Afgreiðsla umsókna er því hafin!

Lesa meira
 
hafid

27.3.2012 Fréttir : Ráðstefna Hafrannsókna-stofnunarinnar

Hafrannsóknarstofnun verður með ráðstefnu í Norræna húsinu þann 30. mars kl. 9-16.

Lesa meira
 
dyrdin_mynd

26.3.2012 Fréttir : Dýrðin, dýrðin; Vatnsmýrin í framtíðinni

síðasta sýningarhelgi 14-15 apríl. Leiðsögn 14.apríl kl. 16.00.


Norræna húsið í samvinnu við Félag íslenskra Landslagsarkitekta og Hönnunarmiðstöð Íslands, efndu til hugmyndasamkeppni um hönnun á svæði sem umlykur Norræna húsið. Markmið keppninnar var að fá raunhæfar og spennandi tillögur um hönnun og innihald þessa einstaka svæðis. Á sýningunni Dýrðin, dýrðin er hægt að kynna sér vinningstillögurnar.

Lesa meira
 
Hjolad-i-Skolann

23.3.2012 Fréttir : Hjólað í skólann fær gjafabréf frá Norræna húsinu og DILL

Hjólað í skólann fær 100 hádegisverði á veitingastaðnum DILL í Norræna húsinu. 

Samkeppnin „hjólað í skólann“ sem fer fram 22. - 29. mars fær styrk frá Norræna húsinu og veitingastaðnum DILL upp á 100 hádegisverði á veitingastaðnum DILL.

Lesa meira
 
330

15.3.2012 Viðburðir Sýningar : Fólk í mynd-List án landmæra -síðasta sýningarhelgi 12.-13.maí

Ekki missa af smiðjunni!

Samsýning á portrettverkum. Áhugavert er að sjá hvernig hópur íslenskra listamanna nálgast hið aldargamla portrett.

Um helgar fá gestir að spreyta sig á portrettinu í skemmtilegri smiðju og fá að gera sín eigin portrett undir handleiðslu listamanns.

Sýningin er hluti af List án landamæra

Lesa meira
 
klarinettukor-minni

15.3.2012 Fréttir : Klarínettukór

Þriðjudaginn 20. Mars kl.19.30 heldur klarínettukór Tónlistarskólans í Reykjavík tónleika í Norræna húsinu.  Efnisskráin er fjölbreytt og skemmtileg og einkennist af dönsum frá ýmsum heimshornum.

Lesa meira
 
Shostakovits-18.-mars-2012

13.3.2012 Fréttir : Shostakovits á tónleikum í 15:15 tónleikasyrpunni

Á dagskrá 15:15 tónleikasyrpuunnar í Norræna húsinu sunnudaginn 18. mars kl. 15:15 eru verk eftir Dimitri Shostakovits. Flytjendur á tónleikunum eru Alexandra Chernishova sópran, Nína Margrét Grímsdóttir píanó, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla og Sigurður Halldórsson selló. Miðaverð er 2000 en 1000 fyrir eldri borgara öryrkja og námsmenn.

Lesa meira
 
green-days-2012

13.3.2012 Fréttir : Grænir dagar 2012  í Norræna húsinu

Grænir dagar hefjast 13.mars kl 12.30  í Norræna húsinu með fyrirlestri Sigurðar Eybergs um vistvænt fótspor. Þetta er í fjórða sinn sem nemendafélagið Gaia stendur fyrir Grænum dögum og hefur Norræna húsið ávallt verið einn af styrktaraðilum viðburðarins.

Lesa meira
 
asa_Sumarblaer_AsaG

12.3.2012 Fréttir : asa – skartgripasýning

asa kynnir þrjár nýjar línur á HönnunarMars 2012 en þær verða sýndar í anddyri Norræna hússins. Sýningin opnar 21.mars og stendur til 26.mars. Hönnuðir skartgripanna eru ; Ása Gunnlaugsdóttir, Áslaug Saja og Tinna Gunnarsdóttir.

Lesa meira
 
SEB_part_high

12.3.2012 Fréttir : Rýmið milli bygginga-fyrirlestur

Fyrirlestur Stig L. Anderson í Norræna húsinu 15.mars kl. 20.00

Lesa meira
 
HonnMars_letur-kind_400px

12.3.2012 Fréttir : Litrík og fræðandi dagskrá í Norræna húsinu á HönnunarMars

Norræna húsið býður upp á litríka og fræðandi dagskrá á HönnunarMars 2012. Aðgangur er ókeypis á alla viðburðina.

Lesa meira
 
mynt

9.3.2012 Fréttir : Safnarasýning 20.-22. apríl í Norræna húsinu

Myntsafnarafélag Íslands heldur safnarasýningu á neðri hæð Norræna hússins 20-22 apríl. Sýndir verða ýmir gamlir gjaldmiðlar og gamlir gripir sem minna á liðna tíð. Aðgangseyrir er 500 kr. Frítt fyrir börn yngri en 18 ára.

Lesa meira
 
Kryss

6.3.2012 Fréttir : Reykjavik Folk Festival

Efnt er til danskra síðdegistónleika í Norræna húsinu sunnudaginn 11. mars kl. 15 í samvinnu við Reykjavik Folk Festival. Aðgangseyrir er 2.300 kr.

Lesa meira
 
hildur-yeoman

6.3.2012 Fréttir : Norræni tískutvíæringurinn 2011 heimsóttur

Ljósmyndasýning í anddyri Norræna hússins. Sýningin opnar 8.mars og stendur til 9.apríl. Norræni tískutvíæringurinn 2011 var haldinn í Seattle, Bandaríkjunum. Hrafnhildur Arnardóttir var sýningarstjóri sýningarinnar Looking Back to Find our Future sem um 30 hönnuðir frá Færeyum, Grænlandi og Íslandi tóku þátt í .

Lesa meira
 
Pauline-Brown-photo

6.3.2012 Viðburðir Fyrirlestrar : Fjárfestingar og hönnun-fyrirlestur á HönnunarMars

Pauline Brown flytur erindi um fjárfestingar og hönnun í Norræna húsinu 21.mars kl. 20.30. Pauline Brown hefur  yfir 20 ára reynslu sem fjárfestir og hefur stutt við vöxt vörumerkja á borð við Alain Mikli og Estee Lauder. Hún tók þátt í Norræna tískutvíæringnum í Seattle 2011 og hélt þar fyrirlestur sama efnis.

Allir velkomnir.


Lesa meira
 
haskolatonleikar.2mars

1.3.2012 Fréttir : Raddir þjóðar - Múlinn jazzklúbbur

Sunnudaginn 4. mars kl. 16:00 koma "Raddir þjóðar" með þeim Sigurði Flosasyni og Pétur Grétarssyni fram á tónleikum í Norræna Húsinu. Tónleikarnir eru liður í dagskrá Jazzklúbbsins Múlans og Norræna hússins.

Lesa meira
 
lisesinclair

1.3.2012 Fréttir : Einmunatíð (A Time to Keep) 

Tónleikar í Norræna húsinu á laugardag 17. mars kl. 16. Fram koma Lise Sinclair frá Hjaltlandseyjum, Ástvaldur Traustason og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson ásamt Inge Thomson, Brian Cromarty og Ewan Thomson. Aðgangseyrir er 2.000 kr, miðasala við innganginn.

Lesa meira
 
satutunti

29.2.2012 Fréttir : Finnskar sögustundir í Norræna húsinu

Norræna húsið býður finnsku og finnskumælandi fólki upp á sögustund einu sinni á mánuði. Við lesum fyrir börnin og erum með heitt á könnunni handa foreldrum.

Pohjolan talo järjestää suomenkielisille lapsiperheille satutuokion kerran kuukaudessa. Tapaamme kevään aikana 3.3, 14.4 sekä 5.5 klo 11. Tervetuloa!

Lesa meira
 
Linda-Chatterton-photo-1-300-dpi

29.2.2012 Fréttir : Linda Chatterton tónleikar

Tónleikar með Lindu Chatterton

flautuleikara og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanoleikara í Norræna húsinu á sunnudaginn 11. mars kl. 20. Aðgangseyrir er 2.5000 kr en 2.000 kr fyrir nemendur og eldri borgara.

Lesa meira
 
Mobility

27.2.2012 Fréttir : Ferða- og rannsóknastyrkur 2012

Norden auglýsir styrk fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki til rannsókna og ferðalaga á Norðurlöndunum og í Baltnesku löndunum.

Lesa meira
 
lennie-tristano

23.2.2012 Fréttir : Tristano Project -Múlinn

Sunnudaginn 26. febrúar kl. 16:00 heldur hljómsveitin "Tristano Project" tónleika í Norræna Húsinu. Tónleikarnir eru liður í dagskrá Jazzklúbbsins Múlans. Múlinn og Norræna Húsið hafa átt í farsælu samstarfi undanfarin misseri.

Lesa meira
 
2nallar3_jpg_

21.2.2012 Fréttir : Norskar sögustundir fyrir börn

Framundan eru huggulegar sögustundir fyrir börn á norsku. 25.febrúar kl. 13.00, 17. mars kl. 14.00, 14.apríl kl. 14:00 og 5.maí kl. 14.00.  sögustundirnar fara fram í barnahellinum í Bókasafni Norræna hússins.

Lesa meira
 
IMGP3797

21.2.2012 Fréttir : Byggingarlist og samfélag. Málþing og sýning.

Á laugardaginn 25. febrúar kl. 14-16 verður haldið málþing um áhríf byggingarlistar á samfélagið í Norræna húsinu. Eftir málþingið verður opnun sýningarinnar "Arkitektasamkeppnir - byggingarlist í deiglu".

Sýningin stendur til 4. mars í andyri Norræna hússins.

Lesa meira
 
mulinnJazz

21.2.2012 Fréttir : Jazzklúbburinn Múlinn

Fyrstu tónleikar Jazzklúbbsins Múlans verða í Norræna húsinu 22.febrúar kl. 21.00. Miðaverð er 1500 kr. Fram kemur bandið Tenórarnir tveir. Kynnið  ykkur alla dagskrána á www.mulinn.is

Lesa meira
 
080906-150301_Bjorn-Arnason

20.2.2012 Fréttir : Listaverkauppboð af sýningunni Veggir

Uppboð á listaverkum sýningarinnar VÄGGER í Norræna húsinu 25. febrúar kl. 16.00

Boðin verða upp verk sem nú eru til sýnis í sýningarsal Norræna hússins. Einnig er hægt að skoða verkin og bjóða í verkin á www.muses.is. Beinn linkur á uppboðið er:

http://www.muses.is/index.php?p=listamenn&artist=34 Lesa meira
 
runstenar

17.2.2012 Viðburðir Fyrirlestrar : Rúnir og rúnalestur í Norræna húsinu

Sænski rúnarsérfræðingurinn Marit Åhlen heldur fyrirlestur fimmtudaginn 23. febrúar kl. 19 í Norræna húsinu. Fyrirlesturinn fer fram á sænsku og hefur yfirskriftina“ Mytologiska bilder på svenska runstenar“. 

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Lesa meira
 
getFile.php

15.2.2012 Fréttir : Úrslit í  umbúðakeppni Odda í Norræna húsinu 1. mars kl. 20.00

Prentsmiðjan Oddi, Félag íslenskra teiknara (FÍT) og Norræna húsið standa að opinni hönnunarsamkeppni umbúða úr kartoni og/eða bylgjupappír.

Úrslitakvöld keppninnar verður haldið í Norræna húsinu 1. mars kl. 20.00.

Lesa meira
 
einar_2

14.2.2012 Fréttir : Sýning Einars Hákonarsonar

Sýning Einars Hákonarsonar á nýjum olíumálverkum 3.-18. mars í sýningarsal Norræna hússins.


Sýningin opnar 3.mars og eru allir velkomnir!

Lesa meira
 
Gunnhildur-Halla

13.2.2012 Viðburðir Tónleikar : Gunnhildur í Færeyjum

Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir sellóleikari heldur einleikstónleika í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu sunnudaginn 19. febrúar kl. 15:15. Á tónleikunum mun Gunnhildur leika færeyska tónlist, en verkin eru flest skrifuð fyrir Gunnhildi eða tileinkuð henni.  Miðaverð er 2.000 kr / 1.500 kr fyrir öryrkja, eldri borgara og nemendur.

Lesa meira
 
Savethedate_NyarSlodir_isl

6.2.2012 Fréttir : Nýjar slóðir 7.-9.september 2012

Tæmið dagatalið fyrir Vestnorræna fjölskylduhátíð í Reykjavík 7.-9. september.
Lesa meira
 
Hopmynd

6.2.2012 Fréttir : Skuggalegt í skammdeginu

Skyggnst verður í skuggalegri hluta menningararfs þjóðarinnar í Norræna húsinu fimmtudaginn 9. febrúar kl. 20:30. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju flytja þjóðlög og önnur verk íslenskra tónskálda þar sem þjóðsagnaarfurinn er viðfangsefni. 

Lesa meira
 
Tura-Ya-Moya

3.2.2012 Fréttir : Tura Ya Moya trommudans frá Grænlandi

Miðvikudagur 8.febrúar kl. 20.00  Karen Thastum segir frá verkum sínum og í bland við grænlenskan trommudans. Miðaverð 1000 kr. 

Lesa meira
 
index

1.2.2012 Fréttir : Norðurbryggja í Kaupmannahöfn auglýsir stöðu umsjónarmanns menningarmála og listasýninga

Iðar þú í skinninu að vinna við menningu og listir? Hefur þú brennandi áhuga á Norður-Atlantshafslöndunum sem og Norðurlöndunum? Þá er vinna í menningarhúsinu NordatlantensBrygge kannski rétta starfið fyrir þig!

Við leitum að umsjónarmanni menningarmála og listasýninga sem sér um skipulagningu,uppsetningu og frágang hinna mismunandi listasýninga hússins, en listamennirnir koma aðallega frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi.

 

Lesa meira
 
Iceland-costume-back-view-skyline

1.2.2012 Fréttir : Þjóðararfur og hönnun

Ragna Fróðadóttir, hönnuður og listrænn stjórnandi hjá  Edelkoort inc. mun halda fyrirlestur í Norræna húsinu 11.febrúar n.k.  kl. 14.00. Um er að ræða svokallað trend forecast sem fyrirtækið Edelkoort  er heimsþekkt fyrir. Í fyrirlestri sínum mun Ragna leggja áherslu á áhrif þjóðarmenningar á strauma og stefnur í hönnun. Lesa meira
 
safnanott_logo

1.2.2012 Fréttir : Safnanótt í Norræna húsinu 2012

Föstudagskvöldið 10.febrúar kl. 20-23. Á safnanótt verður rafmögnuð dagskrá í boði í Norræna húsinu. Ljósmyndasýningin 2 mínútur er í anddyri Norræna hússins og lifandi götulist er í sýningarsal í kjallara. Þar verður enn fremur lifandi tónlist og poppkornsstemning. Ungt fólk er sérstaklega velkomið.

Lesa meira
 
dyrdin_mynd

20.1.2012 Fréttir : Hugmyndasamkeppni

Miðgarður Reykjavík | Hugmyndasamkeppni í miðborg Reykjavíkur

Norræna húsið í samvinnu við Félag íslenskra Landslagsarkitekta og Hönnunarmiðstöð Íslands, efna til hugmyndasamkeppni um hönnun á svæði sem umlykur Norræna húsið.
Lesa meira
 
norsk-sogustund

19.1.2012 Fréttir : Sögustund á norsku

Sögustund á norsku fyrir börn laugardaginn 21. janúar kl. 14 í bókasafni Norræna hússins. Lesið, sungið og spjallað saman á norsku.

Sögustundin er fyrir alla krakka sem tala og skilja norsku og foreldra þeirra. 
Lesa meira
 
motian-jazzit-mag-10

17.1.2012 Viðburðir Tónleikar : Tónleikar til heiðurs Paul Motian í Norræna húsinu

Landslið íslenskra jazzleikara leikur í minningu trommarans Paul Motian í Norræna húsinu 19. janúar kl. 21.00
22. nóvember s.l. féll frá bandaríski trommarinn og tónsmiðurinn Paul Motian. Í minningu hans hefur bandaríski trommarinn Scott McLemore (nú búsettur á Íslandi) skipulagt tónleika þar sem tónsmíðum Motian's verður gert skil.
1.500 kr. aðgangseyrir.

Lesa meira
 
Alvaran1-01

17.1.2012 Fréttir : ALVARA MÁLSINS - Bókaþjóð í ólestri

Laugardaginn næstkomandi, 21. janúar, verður haldin ráðstefna í Norræna húsinu undir yfirskriftinni ALVARA MÁLSINS – Bókaþjóð í ólestri.

Þar verður fjallað um ískyggilegar niðurstöður rannsókna sem sýna að ört stækkandi hópur ungs fólks getur ekki lesið sér til gagns, hvað þá gamans.

Lesa meira
 
hvad-borda-islendingar

17.1.2012 Viðburðir Ráðstefnur og málþing : Kynning á landskönnun á mataræði 2010-2011

Kynning á helstu niðurstöðum landskönnunar á mataræði 2010-2011 haldin í Norræna húsinu mánudaginn 23. janúar kl. 15.

Lesa meira
 
080906-150301_Bjorn-Arnason

13.1.2012 Fréttir : VÄGGAR

Samsýning sjö götulistamanna í samstarfi við netgalleríið Muses.is. 28.janúar – 26.febrúar 2012.
Listamennirnir hafa fært listsköpun sína frá veggjum götunnar inn í hið hefðbundna sýningarrými gallerís. Verkin eru undir sterkum áhrifum frá götulistinni og birtast þau í ýmsum formum. 
Lesa meira
 
Norraena-husid-vetur-small

9.1.2012 Fréttir : Vilt þú vinna í frjóu og metnaðarsömu umhverfi?

Norræna húsið leitar að öflugum einstaklingi til starfa við húsvörslu. Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi og er því hluti vinnutíma á kvöldin og um helgar. Um 100% starf er að ræða.   

Lesa meira
 
YGGDRASIL-ROCHESTER-16-JUNI-2008-042

4.1.2012 Fréttir : Arctic Yggdrasil tónleikar

Færeyskur jazz og  grænlenskur trommudans með  Artic yggdrasil og fleirum laugardaginn 21. janúar í Norræna húsinu.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30
Miðaverð 1000 kr.

Lesa meira
 
Thingvellir

12.1.2012 Viðburðir Fyrirlestrar : Hvað ógnar lífríki Þingvallavatns og náttúru þjóðgarðsins?

ATH: Fundinum er frestað um viku vegna veikinda.


Opinn fundur Landverndar í Norræna húsinu þriðjudaginn 24 janúar kl. 12-13.30. Allir velkomnir.

Lesa meira
 
notur

10.1.2012 Viðburðir Tónleikar : 15:15 tónleikaröðin 2012

15:15 tónleikaröðin er farin aftur að stað á nýju ári. Frá janúar til maí verða alls sex tónleikar á dagskrá. Miðaverð er 2000 kr. Fyrir öryrkja, eldri borgara og námsmenn er miðaverðið 1000 kr.

Lesa meira
 
althing_parliament_reykjavik_iceland

12.1.2012 Fréttir : Ráðstefna um mótun þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland

NEXUS, rannsóknarvettvangur á sviði öryggis- og varnarmála, boðar til ráðstefnu um þjóðaröryggisstefnu Íslands mánudaginn 16. janúar kl. 9.00.

Lesa meira
 
Greta-og-Ingunn-Hildur

10.1.2012 Viðburðir Tónleikar : 15 15 tónleikar: Vorstemning með hausttilbrigðum.

Sunnudaginn 15. janúar kl. 15:15 leika Greta Guðnadóttir fiðluleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari tónleika í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu.


Almennt miðaverð:  2000 kr.

Eldri borgarar, öryrkjar og námsmenn; 1000 kr.

Lesa meira
 
N-Kulturfond-logo

5.1.2012 Fréttir : 15 íslensk menningarverkefni fengu styrk úr Norræna menningarsjóðnum árið 2011.

Á síðasta ári greiddi Norræni menningarsjóðurinn út 23,4 milljónir danskar krónur til 232 norrænna samstarfsverkefna. 15 af þessum verkefnum eru íslensk og fengu þau verkefni samanlagt 1,393 milljónir danskar krónur í styrk.

Lesa meira
 
skrimsli_meira_strekkt

2.1.2012 Fréttir : Skrímslið litla systir mín

Leikhúsupplifun fyrir börn í hæsta gæðaflokki þar sem börnin taka þátt og upplifa í miklu návígi töfra leikhúss, tónlistar og myndlistar. Sýningar hefjast 4.febrúar í Norræna húsinu. Sýningin er um 35 mínútur og listsköpunin á eftir um 45 mín.

Miðaverð: 1500kr.

Miðapantanir á www.midi.is og hjá Norrænahúsinu s: 551 7030

Lesa meira
 
rafbaekur-006

20.12.2011 Bókasafn : Rafbækur um jólin

Þeir sem eiga eða fá í jólagjöf hverskonar rafbókalesara og eiga kort í bókasafni Norræna hússins geta farið inn á heimasíðu bókasafnsins (þarft ekki að koma í bókasafnið) og fundið þar mikið úrval af nýjustu bókunum á sænsku á rafrænu formi til lestrar og hlustunar. Verið velkomin milli jóla og nýárs í bókasafn Norræna hússins sem er opið kl. 12-17 frá 27-30. des.

Lesa meira
 
IMG_5386-cr2

19.12.2011 Fréttir : Norræna húsið milli jóla og nýárs

Bókasafn Norræna hússins og sýningarsalir eru opin milli jóla  og nýárs frá kl. 12 - 17 dagana 27.-30 desember. Verslun og skrifstofur opna að nýju 2. janúar 2012. Við bendum á að veitingastaðurinn DILL er með venjulegan opnunartíma yfir alla hátíðina. Verið velkomin í húsið í jólafríinu ykkar , við tökum fagnandi á móti ykkur.

Lesa meira
 
aeblesk

19.12.2011 Fréttir : Uppskrift að glöggi Norræna hússins

Hér er uppskrift að jólaglöggi og eplaskífum Norræna hússins. Glöggið okkar er óáfengt og bragðgott. Uppskriftin er á dönsku en ætti samt ekki að vefjast fyrir neinum. Njótið!

Lesa meira
 
palestina4-copy

16.12.2011 Fréttir : Norræna húsið fylltist þegar utanríkisráðherra Palestínu, Dr. Riyad al-Maliki hélt opinn fyrirlestur þar í gær.

Umræðuefnið var sjálfstæði og fullveldi Palestínu. Dr. Riyad útskýrði hvernig það var að alast upp í frjálsu ríki en Palestína var hertekin af Ísrael þegar hann var 11 ára gamall. Hann sagðist vera drifinn áfram af því að fá son sinn aftur heim en eftir að hann flutti til Dublin til náms í rafmagnsverkfræði og uppgötvaði hvernig það var að ganga frjáls um götur, vildi hann ekki flytja aftur til Palestínu.

Lesa meira
 
Riad_Al-Maliki

14.12.2011 Viðburðir Fyrirlestrar : Opinn fyrirlestur með utanríkisráðherra Palestínu, Dr. Riyad al-Maliki

Fimmtudaginn 15.desember í Norræna húsinu kl. 14.45 verður opinn fyrirlestur með utanríkisráðherra Palestínu, Dr. Riyad al-Maliki. Hann tók við embætti utanríkisráðherra í maí 2009 og hann er jafnframt opinber talsmaður palestínsku stjórnarinnar.

Lesa meira
 
Loftlagsbreytingar

28.11.2011 Fréttir : Norðurlandaráð tekur þátt í UN ráðstefnu um loftlagsbreytingar í Durban 28.nóv-9.des

Markmið Norðurlandaráðs í COP17 er að koma með haldbæra aðferð til þess að sporna við loflagsbreytingum og hvetja aðra til að nýta sömu aðferðir. Hægt er að finna fleiri upplýsingar um aðgerðir Norrænu ráðherranefndarinnar vegna COP17 hér; www.norden.org/cop17 einnig eru upplýsingar um þau verkefni sem Norðurlandaráð hefur komið að og fjalla um loflagsbreytingar.

 

Lesa meira
 
8418_189128731124_666331124_4331789_6965993_n

24.11.2011 Fréttir : Gisela, Orlando og Helena

Norsk danssýning 18. des. kl. 20.00.


Í sýningunni Gisela and Orlando's fantastic account of The Beautiful Helena takast Sissel M. Bjørkli og Erlend Samnøen á við fegurðarhugtakið.

Lesa meira
 
I-upphafi-skal-endinn-skoda1

24.11.2011 Fréttir : Í upphafi skyldi endirinn skoða

 

Sýningar úr mótunardeild Myndlistarskólans í Reykjavík.

 

Sýningarnar opna 2. desember kl 17.00 – 19.00.

Allir velkomnir.

Lesa meira
 
norrhus-gledja1

14.11.2011 Viðburðir Ráðstefnur og málþing : ISLEX opnuð í Norræna húsinu

Þann 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, mun íslensk-skandínavíska veforðabókin ISLEX verða opnuð í Norræna húsinu. Formleg opnun verður frá kl. 16-16.30. Að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar. Vakin er athygli á ráðstefnu fyrr um daginn á vegum ISLEX sem hefst klukkan eitt á sama stað. Lesa má meira um ráðstefnuna hér.

Lesa meira
 
Pippi-01

14.11.2011 Bókasafn : Sögustund á dönsku í barnahelli bóksafns Norræna hússins

Til forældre med dansktalende børn

Vi indbyder til eventyrtime i børnehulen i Nordens Hus bibliotek, lørdag d. 19. november kl 11.00.

Eventyrtimen arrangeres i samarbejde med den nordiske biblioteksuge som afholdes fra 14. til 20. november. Malene Ørnstrup Petersen, lektor i dansk,  læser op af Mustafas kiosk af Jakob Martin Strid

Mustafas kiosk er en rigtig festlig bog fyldt med humør og biblioteksugens tema er i år netop ”Nordisk humor”.

 

Lesa meira
 
Gargond5_20

11.11.2011 Fréttir : Málþing um nýja dýravelferðarlöggjöf

Dýraverndarsamband Íslands og Norræna húsið halda málþing um nýja dýravelferðarlöggjöf í Norræna húsinu í Vatnsmýri,Reykjavík föstudag 25.nóvember 2011, kl 17.00-20.00.

Lesa meira
 
um-(2)

10.11.2011 Fréttir : Hver á að hljóta Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs?

Þema Umhverfisverðlaunanna 2012 er líffræðilegur fjölbreytileiki. Verðlaunin nema 350.000 dönskum krónum.

 Allir geta sent inn tilnefningar. Nánari upplýsingar á www.norden.org/miljøprisen

 

Lesa meira
 
2011Affischbild_utan_text

9.11.2011 Bókasafn : Norræn bókasafnsvika 14.-20.nóv 2011

Þema Norrænnar bóksafnsviku er að þessu sinni húmor úr norðri. Dagskrá vikunnar hefst með norrænu uppistandi 11.nóvember kl. 20.00. Aðrir viðburðir á dagskrá eru t.d. hláturjóga, kvikmyndasýning, sögustund fyrir börn og margt fleira. Kynnið ykkur dagskrána.

Lesa meira
 
Nordisk-Klimadag-ID-2011

9.11.2011 Fréttir : Norrænn loftslagsdagur 11. nóvember

Norræni loftslagsdagurinn verður haldinn hátíðlegur í Norræna húsinu, þann 11. nóvember kl. 15-16:30, en átakið er sameiginlegt verkefni norrænu menntamálaráðherranna. Markmið dagsins er meðal annars að stuðla að þátttöku nemenda í umræðu um loftslagsmál og efla norrænt skólasamstarf á sviði loftslagsmála. Þema loftslagsdagsins í ár er matur og loftslag Lesa meira
 
a1

2.11.2011 Fréttir : Hádegisfundur Alþjóðamálastofnunar - Þróunarskýrsla Sameinuðu þjóðanna 2011

Þróunarskýrsla Sameinuðu þjóðanna 2011 verður kynnt á hádegisfundi Alþjóðamálastofnunnar 4. nóvember kl. 12.00 í Norræna húsinu. Allir velkomnir
Lesa meira
 
Frank-og-Katie

1.11.2011 Viðburðir Tónleikar : Duo Harpverk á 15:15 tónleikum

Duo Harpverk koma fram í Norræna húsinu 13. nóvember kl. 15:15. Þau munu flytja nýja tónlist fyrir hörpu og slagverk. Tónleikarnir eru hluti af 15:15 tónleikaröðinni.  Almennt miðaverð er 2000 kr en 1000 kr. fyrir öryrkja, eldriborgara og námsmenn.

Lesa meira
 
Standup_grapevine_25.4x9.5_FINAL

25.10.2011 Fréttir : Uppistand

Norræna húsið býður upp á uppistand með Zinat Pirzadeh, Ruben Søltoft og Önnu Svövu Knútsdóttur föstudaginn 11. nóvember kl. 20. Uppistandið fer fram á ensku. Aðgangur er ókeypis. 

Lesa meira
 
matslindgrenlecture

19.8.2011 Fréttir : Fyrirlestur Dr. Mats Lindgren 29/8 kl. 12.15-13.00

Världen 2050 – om framtiden, framtidsforskning och konsten att forma
framtiden
Framtiden har alltid intresserat människor, vi har försökt att såväl
spå och förutse som att behärska och förändra den. Än idag är det
just detta som vi som enskilda, företag och nationer försöker att
göra. Men kan man veta något om den, och i så fall vad? Vilka är de
starkaste långsiktiga trenderna och osäkerheterna idag, det som kommer
att forma världen under de kommande 40-50 åren? Och vilka är
framgångsfaktorerna för företag och organisationer i dagens och
morgondagens alltmer komplexa och turbulenta värld?
Lesa meira
 
kvartett

18.8.2011 Fréttir : Kvartett Inga Bjarna 25.ágúst

Fimmtudagskvöldið 25. ágúst spilar kvartett Inga Bjarna Skúlasonar í Norræna húsinu.
Á dagskránni er frumsamin tónlist sem fyrst heyrðist á burtfarartónleikum Inga Bjarna frá Tónlistarskóla F.Í.H. síðastliðið vor. Núna á tónleikunum í Norræna húsinu verða auk þess nokkur glæný lög frumflutt!
Lesa meira
 
jazz

16.8.2011 Fréttir : Jazzhátíð í Reykjavík 2011

Segja má að Jazzhátíð Reykjavíkur leiti til uppruna síns á þessum tímamótum og efli samstarf við nágrannaþjóðirnar en áberandi er að erlendir gestir eru margir frá Norðurlöndum auk Frakklands, Bandaríkjanna og Austurríkis. Jazzhátíð Reykjavíkur er þakklát Norræna Húsinu og menningarfulltrúum þessara ríkja fyrir að hlutast til um þessar heimsóknir. 

Lesa meira
 
owe

16.8.2011 Fréttir : Þjóðlagatónleikar með Owe Ronström

Owe Ronström mun halda tónleika í Norræna húsinu þann 18. ágúst kl. 20:00 og mun hann þar leika á fjölmörg hljóðfæri og gefa tónleikagestum sýnishorn af ýmiskonar þjóðlagatónlist.

Lesa meira
 
1-hann

15.8.2011 Fréttir : Rimantas Dichavicius sýnir ljósmyndir

Í tilefni af heimsókn forseta Litháens setjum við upp sýningu ljósmyndarans Rimantas Dichavicius. Sýningin stendur frá 23.Ágúst - 27.ágúst.

Lesa meira
 
SERENITY

15.8.2011 Fréttir : Litháíski listamaðurinn  Ciurlionis sýnir

Forseti Litháens heimsækir Ísland heim og að því tilefni verður sett upp sýning á helstu verkum litháíska listamannsins Ciurlionis. Sýningin stendur yfir frá 21.ágúst - 28.ágúst.

Lesa meira
 
lukehoward02

5.8.2011 Fréttir : Alþjóðlegur djassdúett leikur á Menningarnótt

Píanóleikarinn Luke Howard (frá Ástralíu) og bassaleikarinn Janos Bruneel (frá Belgíu) flytja ópusa af diski sínum "Open Road" í Norræna húsinu á menningarnótt. Samstarfsverkefni tónskáldanna tveggja var tekið upp í hinu þekkta Rainbow-hljómveri í Ósló í fyrra.

Lesa meira
 
creative-works-annual

26.7.2011 Fréttir : Aesthetica Creative Works Competition 2011

„Aesthetica Creative Works Competition“ auglýsir nú eftir umsækjendum fyrir 2011 keppnina. Tímaritið Aesthetica býður öllum listamönnum, ljósmyndurum og rithöfundum að skrá verkin sín í „The Creative Works Competition“. Keppnin sem nú er á fjórða ári tekur við verkum í öllum formum; skúlptúrum, textíl, ljósmyndum, keramik, málverkum, stafrænni list ásamt ljóðum og öðrum bókverkum. Frekari leiðbeiningar er að finna á vefsíðunni: http://www.aestheticamagazine.com/submission_guide.htm

Lesa meira
 
EVa

18.7.2011 Fréttir : Lost in a legend eftir Duo Sidén/Hedman 11. ágúst

Í tónverkinu Lost in a legend eftir Eva Sidén og Jens Hedman hefur flygillinn aðalhlutverkið. Tónskáldin Eva og Jens hafa tekið upp hljóð frá flygli sem þau svo breyta í rafræn hljóð ásamt hljóði sem tengist pappír sem þau nota í tónverkið. Eva Sidén og Jens Hedman skapa tónlist sem gefur hlustandanum draumakenndar myndir, tilbúið landslag. Þemað er vatnið og vindurinn. Á tónleikunum er einnig  pianosolo eftir Evu og rafrænt verk eftir Jens.

Lesa meira
 
781_00_nordic_voices

14.10.2010 Fréttir : Opus 42 - Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2010 falla í skaut norska tónskáldsins Lasse Thoresen fyrir verkið Opus 42 sem samsett er úr fjórum raddverkum fluttum af söngvurum kammersveitarinnar Nordic Voices.

Lesa meira
 
8418_189128731124_666331124_4331789_6965993_n

30.11.2011 Fréttir : Gisela, Orlando og Helena

Sissel M. Bjørkli og Erlend Samnøen har i ”Gisela og Orlandos fantastiske berettelse om Den Skjønne Helena” tatt for seg begrepet skjønnhet.

 

18.desember kl. 20.00 i Nordens hus

Lesa meira
 
lucia_1908_by_carl_larsson1

30.11.2011 Viðburðir Tónleikar : Lúsíuhátíð í Norræna húsinu

Lúsíuhátíð í Norræna húsinu, þriðjudaginn 13. desember kl. 08.00

Í Svíþjóð og á Norðurlöndum er siður að halda Lúsíuhátíð 13. desember þar sem Lúsía og og þernur hennar syngja Lúsíu- og jólalög.


Sænski barnakórinn, Lúsíukórinn á Íslandi flytur hefðbundin jólalög í tilefni dagsins.




Lesa meira
 
budin3

30.11.2011 Fréttir : Vandaðar vörur í verslun Norræna hússins

1.-3.des verður veittur 10% afsláttur af öllum barnavörum í verslun Norræna hússins.

Verslunin er staðsett hægra megin við aðalinngang hússins og hefur verið sögð eitt best geymda leyndarmálið í bænum.

Lesa meira
 
felagi_kona

10.10.2011 Viðburðir Fyrirlestrar : Á slóðum sagnaskáldsins; Kristmann Guðmundsson

Norska sendiráðið og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands boða til málþings um sagnaskáldið Kristmann Guðmundsson (1901 – 1983) í Norræna húsinu sunnudaginn 23. október n.k. kl. 13.30 – 17.30 en þann dag eru liðin 110 ár frá fæðingu skáldsins.

 

Lesa meira
 
transtromer

6.10.2011 Bókasafn : Tomas Tranströmer fékk Nóbelsverðlaunin

Sænska ljóðskáldið Tomas Tranströmer fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í dag 6. október 2011.  Fyrsta ljóðabók hans ”17 dikter” kom út 1954 og með henni vakti hann athygli og fékk mikið lof.  Síðan hefur hann sent frá sér um 20 ljóðasöfn sem hafa verið þýdd á u.þ.b. 60 tungumál.

Lesa meira
 
thefutureoffood

4.10.2011 Fréttir : Sýning heimildarmyndarinnar The Future of Food

Samtök lifrænna neytenda býður upp á kvikmyndasýningu í Norræna húsinu á þriðjudag 11. október kl. 20. Myndin heitir “The Future of Food” en fjallar hún um sannleikinn á bak við nútíma matvælaframleiðslu. Lesa má meira á: http://www.thefutureoffood.com. Umræður eftir myndina. Ókeypis inngangur, allir velkomnir!


Lesa meira
 

3.10.2011 Fréttir : Málþingi um umburðarlyndi í trúmálum

Samfélag Ahmadiyya múslima á Íslandi stendur fyrir málþingi um umburðarlyndi í trúmálum í Norræna húsinu á föstudaginn þann 7. óktóber kl. 17. Smelltu á titilinn til að sjá dagskrána. Svar óskast: Ahmadiyyaiceland@hotmail.co.uk / 551 9423.

Lesa meira
 
mellem-traeerne

3.11.2011 Fréttir : Mellem træerne og Kære landsmænd!

Milli trjánna /Mellem Træerne,Bók Gyrðis Elíassonar sem hlaut á dögunum bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, er nú fáanleg í verslun Norræna hússins í danskri þýðingu. Einnig eru verk Huldars Breiðfjörð og Þórarins Leifssonar til í danskri þýðingu.
Lesa meira
 
jolaEmail

16.12.2010 Fréttir : Gleðileg jól

dfdfd

Lesa meira
 
stc3b8vfinal(2)

8.6.2011 Fréttir : Hljómsveitin Støv

Hljómsveitin Støv var stofnuð haustið 2009 af sex nemendum við Rytmíska Músíkkonservatoríið í Kaupmannahöfn. Sveitin spilar djassaðar útsetningar af norrænni tónlist. Tónleikarnir fara fram í svartamyrkri og á meðan þeim stendur verður spilað myndband sem listakonan Michelle Carlslund gerði við tónlistina. Aðgangseyrir 1000kr. Støv skipa: Nynne F. Hedal - söngurIngimar Andersen - saxófónn Rolf Thofte Sørensen - trompet Per Walfridsson - píanó Jakob Roland Hansen - kontrabassi Johan Dynnesen - trommur

Lesa meira
 
jupu

8.9.2011 Fréttir : Finnsk sögustund í Norræna húsinu

Norræna húsið býður finnsku og finnskumælandi fólki upp á sögustund einu sinni á mánuði. Við hittumst í fyrsta sinn laugardaginn 24. september kl. 11. Við lesum fyrir börnin og kaffi á könnunni handa foreldrum. Sögustundin er ætluð fyrir börn á öllum aldri og foreldra þeirra. Allir velkomnir til að spjalla saman á finnsku!

Lesa meira
 
sandkassinn-copy

10.5.2010 Fréttir : Vatnsmýrarhátíðin 15.maí kl. 14.00

Háskóli Íslands og Norræna húsið blása til hátíðarhalda 15.maí n.k þegar Tilraunalandið flytur út á lóð Norræna hússins. Margt verður á boðstólum fyrir smáfólkið s.s. atriði úr Bláa gullinu, Lúðrasveitin Svanur blæs í lúðra, Blikandi Stjörnur taka lagið, tilraunaeldhús verður við gróðurhúsið, skjólgóði sandkassinn vígður og margt margt fleira. Komum saman í Norræna húsið!

Lesa meira
 
nordurlond-fanar

7.4.2010 Fréttir : Ferða-og dvalarstyrkir KKN

Norræn- Eystrasalts ferða- og dvalarstyrkjaáætlunin fyrir menningu er opin fyrir umsækjendur frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum. Eystrasaltslöndin taka þátt í fjármögnun og ákvarðanatöku varðandi áætlunina ásamt Norðurlöndunum. Umsóknartími er frá 31.mars - 24.apríl. 

Lesa meira
 
EX6hr

26.8.2011 Fréttir : Fyrirlestraröð um byggingarlist í Norræna húsinu

Á haustdögum býður Norræna húsið upp á þrjá fyrirlestra tileinkaða byggingarlist. Fyrirlestrarnir fara allir fram í Norræna húsinu á fimmtudögum kl. 20.00. 1.september er fjallað um sundlaugina á Hofsósi. 6.október fjallar um sýnHenning Larsen architects á vistvæna hönnun og 17.nóvember um Hörpuna.

Lesa meira
 
Iceland-Airwaves-2010-Logo2box

23.9.2010 Fréttir : Iceland Airwaves

Fjórða árið í röð bjóða Norræna húsið og Iceland Airwaves upp á einstaka utandagskrá í Norræna húsinu. Dagskráin hefst kl. 13.00, fimmtudaginn 14. október og verða 4 tónleikar daglega fram á Sunnudag en þá sýnum við heimildarmyndir um tónlist. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Lesa meira
 
Einar Már Guðmundsson

7.9.2010 Fréttir : Ráðstefnuþjónusta Norræna hússins

Norræna húsið býður upp á góða aðstöðu til funda- og ráðstefnuhalds í fallegu umhverfi. Funda- og ráðstefnuþjónusta Norræna hússins nýtist vel fyrir minni fundi og málstofur sem og fyrir stærri samkomur, allt að 120 manns í sæti í einum sal. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og lögum okkur að þörfum hvers og eins.

Hér eru upplýsingar um verð
Lesa meira
 
virallinen-logo-5.3.indd

3.11.2010 Viðburðir Allt : Áhugaverður fyrirlestur

Gunvor Kronman, forstjóri Hanaholmen, flytur fyrirlestur í boði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og Norræna hússins um verkefnið „Svenska nu“. Fyrirlesturinn verður haldinn í Norræna húsinu föstudaginn 5. nóvember kl. 15. Verkefnið „Svenska nu“ hefur hlotið verðskuldaða athygli og í erindinu fjallar Gunvor Kronman um þær nýstárlegu leiðir sem farnar eru til að vekja áhuga finnskra nemenda á að læra sænsku.

Lesa meira
 
ting_bodskort_gudmsamar_02

28.10.2010 Fréttir : Guðmundur og Samarnir-boðskort á opnun

Vertu velkomin á opnun sýningarinnar Guðmundur og Samarnir í Þjóðmenningarhúsinu Laugardaginn 30. október kl. 14.00
Lesa meira
 
nordisk250

25.10.2010 Bókasafn : Norræn bókasafnsvika

Sama dag og norrænu listahátíðinni Ting lýkur hefst norræn bókasafnsvika og er þema hennar að þessu sinni fantasía og töfrar í norrænum bókmenntum. Norræna bókasafnsvikan verður opnuð með athöfn í Norræna húsinu þar sem hún verður kynnt með erindum og upplestrum. Þemabók bókasafnsvikunnar er tryllirinn Hleyp þeim rétta inn  eftir John Ajvide Lindquist og sýnir Sjónvarpið samnefnda kvikmynd byggða á bókinni sama kvöld kl. 22.15.

Lesa meira
 
matur-skyrkaka

22.10.2010 Fréttir : Léttur hádegisverður

Ólafur Örn Ólafsson og Gunnar Karl Gíslason frá veitingastaðnum Dill bjóða upp á sýnishorn af túlkun sinni á Nýja norræna eldhúsinu. Mads Holm frá Norræna húsinu segir frá verkefninu Nýr norrænn matur; hvernig er hann? Til hvers notum við hann? Hvert er hann að fara?

Lesa meira
 
gerpla1-324x216

22.10.2010 Fréttir : Gerpla

Þormóður Kolbrúnarskáld leggur allt í sölurnar fyrir hetjuhugsjónina og skáldskapinn. Hann yfirgefur konu sína og börn en að endingu þarf hann að horfast í augu við það að ef til vill færði hann allar þessar fórnir fyrir rangan málstað. Fyrir eitthvað sem var hégómi einn. Gerpla í uppfærslu Þjóðarleikhússins er leikur með þjóðararfinn þar sem vísað er í söguöldina og þjóðleg minni. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda og verið tilnefnd til fjölda verðlauna.

Lesa meira
 
goodheart

22.10.2010 Fréttir : Tilnefndar kvikmyndir

 

Bíó Paradís sýnir 29/10-4/11 kvikmyndirnar fimm sem tilnefndar voru til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2010.Einnig verða sýndar aðrar kvikmyndir eftir leikstjórana.  Ath Sýningartímar eru birtir með fyrirvara

Lesa meira
 
hafnarhusid

21.10.2010 Fréttir : Alternative north– aspects of contemporary art in Scandinavia

Málþing þar sem saman koma safnstjórar, listagagnrýnendur og sýningarstjórar frá öllum Norðurlöndunum til að ræða stöðu samtímalistarinnar á Norðurlöndum.

Lesa meira
 
Screen-shot-2010-10-25-at-10.55.46

21.10.2010 Fréttir : Ormurinn ógnarlangi

Heimur norrænu goðafræðinnar er ævintýralegur söguheimur og á sýningunni Ormurinn ógnarlangihitta gestir fyrir goð, jötna og aðrar skrýtnar skepnur. Ganga má inn í Niflheim, skríða inn um gin Miðgarðsormsins, máta hásæti Óðins, setjast í vagn Freyju, skoða fésbókarsíður goðanna eða varpa sér í fang Fenrisúlfsins.

Lesa meira
 
781_00_nordic_voices

21.10.2010 Fréttir : Norrænar áherslur í ríkisútvarpi og sjónvarpi

Ríkisútvarpið og sjónvarpið munu verða með norræna áherslur í dagskrá sinni á ting.

Lesa meira
 

21.10.2010 Fréttir : Nýsköpun og sjálfbær verðmætasköpun

Ráðstefna á vegum Iðnaðarráðuneytisins og Nordisk InnovationsCenter (NICe) um nýsköpun á Norðurlöndunum.

Lesa meira
 

21.10.2010 Fréttir : Styrkjakynningar í Listaháskólanum

Norræna menningargáttin er stofnun fyrir menningaráætlanir Norrænu ráðherranefndarinnar; Lista- og menningaráætlunina og Ferða- og dvalarstyrkjaáætlunina. Áætlanirnar veita ýmis konar styrki til ólíkra verkefna, allt frá ferðastyrkjum til verkefna sem ná yfir nokkurra ára tímabil

Lesa meira
 

21.10.2010 Fréttir : Styrkjamöguleikar

 Kynningar á styrkjamöguleikum í Norræna húsinu 3. nóvember.

Lesa meira
 

21.10.2010 Fréttir : Samnorrænir styrkjamöguleikar

 

Átaksverkefni með það markmið að upplýsa og auka möguleika íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og einstaklinga að sækja í samnorrænt styrkfé. Veitt er ráðgjöf og stuðningur og leiðbeint m.a. við umsóknarskrif og við myndun tengslaneta. Frumkvæði að verkefninu kom frá Norrænu ráðherranefndinni sem fjármagnar það.

Lesa meira
 

21.10.2010 Fréttir : Um listræna sköpun

Hvernig getur maður greint listrænt ferli? Fræðimaðurinn Per Zetterfalk fjallar um listsköpun og sýnir kvikmynd sína Kall-Norén's drama um starfleikritaskáldsinsLars Norén. Lesa meira
 
apocalypse

21.10.2010 Fréttir : Hönnun fyrir ragnarök

 

Hönnunarteymið Apokalyps Labotek (Petra Lilja og Jenny Nordberg), sem hefur m.a. unnið til verðlauna fyrir parket hannað úr hjölbörðum, fjallar um sjálfbæra hönnun og endurnýtingu hráefnis.

Lesa meira
 
tomjuslin2

21.10.2010 Fréttir : Veðurfarsferðalagið

Sænski blaðamaðurinn Tom Juslin fjallar um ferðalag sitt um Norðurlönd þar sem hann kannaði áhrif veðurfarsbreytinga á fólk, dýr og náttúru

Lesa meira
 

21.10.2010 Fréttir : Sambandsríkið Norðurlönd

Sagnfræðingurinn Gunnar Wetterberg lýsir málefnalega og af hugmyndauðgi hvernignorrænt sambandsríki gæti tryggt Norðurlöndunumáhrifameiri sess í heimspólitíkinni

Lesa meira
 
thusundogeinnott

21.10.2010 Fréttir : Þúsund og ein nótt

Petri Sakari hljómsveitarstjóri hefur átt einstaklega gjöfult og gott samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan á níunda áratugnum. Auk Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur Petri Sakari stjórnað fjölda finnskra sinfóníusveita sem og sinfóníusveitum um allan heim. Hann hefur stjórnað upptökum á leik Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir tónlistarútgáfurnar Naxos og Chandos og hafa þær hlotið góðar viðtökur.

Lesa meira
 
submarion

21.10.2010 Fréttir : Submarino

 

Danski leikstjórinn Thomas Vinterberg hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2010 fyrir kvikmyndina Submarino. Fimm voru tilnefndar, ein frá hverju Norðurlandanna. Bío Paradís sýnir, allar myndirnar á Ting.

Lesa meira
 
gardar

21.10.2010 Fréttir : Power has a Fragrance

Á sýningunni Power has a Fragrance notar norski listamaðurinn Gardar Eide Einarsson táknmyndir framúrstefnu og jaðarmenningar til þess að kallast á við innviði og birtingarmyndir nútímasamfélagsins. Listamaðurinn teflir fram svarthvítum málverkum, ljósmyndum, skúlptúrum, myndböndum og dreifimiðum og sækir efnivið sinn m.a. í veggjakrot og pönktónlist

Lesa meira
 

21.10.2010 Fréttir : Titania och hennes mytiska sagoväninnor

Cristina Andersson sópransöngkona og Ilkka Paananen píanóleikari halda tónleika þar sem þau flytja verk um skandínavískar kvenhetjur eftir Edvard Grieg, Jean Sibelius, Armas Järnefelt, Toivo Kuula og Richard Wagner.

Cristina Andersson er sjálfmenntuð í klassískum söng og hentar rödd hennar dramatískum sinfóníuóperum einstaklega vel. Ilkka Paananen er þekktur píanóleikari í Finnlandi og hefur spilað undir hjá fjölmörgum finnskum óperusöngvurum.

Lesa meira
 
memotekid_3_karadottir_moerkoere_200dpi

21.10.2010 Fréttir : Kort och gott

 

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur frá upphafi beint kastljósi sínu til Norðurlandanna. Það er því viðeigandi að hátíðin bjóði upp á sérstaka dagskrá í tilefni Ting. Við kynnumst framsæknustu og uppfinningasömustu röddum norrænnar kvikmyndagerðar, veitum hinni síbreytilegu dönsku kvikmyndagerð sérstaka athygli og hittum fyrir stóru nöfn norskrar kvikmyndagerðar framtíðarinnar.

Lesa meira
 
gudmundur_akvarel

21.10.2010 Fréttir : Guðmundur og Samarnir

 

Sá íslenski myndlistarmaður sem fyrstur sótti myndefni til Sama var Guðmundur Einarsson frá Miðdal (1895-1963). Hann var fjölhæfur, afkastamikill og áberandi í listalífinu. Guðmundur lagði áherslu á íslenska náttúru t.d. í grafík, vatnslita- og olíumyndum og leirlist en sótti líka myndefni til Grænlands, Alpalanda og finnska hluta Samalands.

Lesa meira
 
44

21.10.2010 Fréttir : direkt 2010

ting, norræn listahátíð, kynnir direkt- norræna tónlistarhelgi í Reykjavík. 4. -6. nóvember. Hljómsveitirnar sem fram koma eru: Slaraffenland (DK), Budam (FO), Orhic Oxtra (IS), Datarock (NO), Retro Stefson (IS), Berndsen (IS), Wildbirds & Peacedrums (SE), Hjaltalín (IS) og Schola Cantorum (IS).

Lesa meira
 
isleofhuman_vefur

15.10.2010 Sjónlist : The Isle of Human

Tómlegt borgarumhverfi í niðurníðslu umbreytist í ný heimkynni gíraffa, pelíkana og ljóna. Framandi og heillandi dýr hafa yfirtekið byggðir og mannvirki og falla inn í umhverfið eins og þau séu á sínum heimaslóðum. Á sýningunni „The Isle of Human“  rannsakar danski ljósmyndarinn Johan Rosenmunthe baráttuna um ný yfirráðasvæði sem verður æ stærri hluti af lífi manna með hverjum deginum

Lesa meira
 
listaleypurinn_vefur

15.10.2010 Viðburðir Allt : Listaleypurin

Listaleypurin er færeysk menningardagskrá sem Norræna húsið í Færeyjum býður skólanemendum í Þórshöfn og nágrenni upp á. Dagskráin hefur undið upp á sig og er núna samvinnuverkefni Norrænu húsanna í Færeyjum og á Íslandi, auk norrænu stofnunarinnar í Nuuk á Grænlandi. Listamennirnir sem koma fram í dagskránni í Norræna húsinu taka allir þátt í ofangreindu samvinnuverkefni.

Lesa meira
 
bankar

14.10.2010 Fréttir : Samfélagslega ábyrgir bankar – leið að réttlátuhagkerfi

Málstofa með bönkunum sem skipta með sér umhverfisverðlaunum Norðurlandaráðs 2010. Þema umhverfisverðlaunanna 2010 er umhverfisvæn eignastýring.

Lesa meira
 
finnski_hesturinn_vefur

14.10.2010 Fréttir : Finnski hesturinn

Á bóndabæ í afskekktri sveit í Finnlandi búa fráskilin hjón ásamt tannhvassri ömmu og börnum sem gera óraunhæfar kröfur til lífsins.

Lesa meira
 
4156535452_1abff094c7_o

28.9.2010 Fréttir : Fjármögnun PSB

Ráðstefna um framtíð ríkisrekinna fjölmiðla á Norðurlöndunum verður haldin í Norræna húsinu 4. og 5. nóvember. Skráning á ráðstefnuna er hjá nh@nordice.is

Lesa meira
 
Pirkko-Lindberg

9.9.2011 Fréttir : Höfundakvöld með Pirkko Lindberg

Pirkko Lindberg,  fædd 1942, hóf feril sinn sem rithöfundur árið 1989 með skáldsögunni Byte sem vakt athygli bæði gagnrýnenda og lesenda, bæði í Svíþjóð og Finnlandi.  Sagan fékk ”J. H. Erkkopriset” sem besta frumraun höfundar 1990.   Hún verður á höfundakvöldi kl. 20.00 12.september í Norræna húsinu

Lesa meira
 
Mekong_delta

25.8.2011 Fréttir : Nadine Cabarrot í sýningarsal Norræna hússins

Sýning Nadine í sýningarsal Norræna hússins til 18. september. Enginn aðgangseyrir.

Nadine er fædd í suðvestur Frakklandi árið 1953. Á sýningunni má sjá m.a ljósmyndir, grafíkverk, myndlist og textaverk eftir Nadine Cabarrot.

Lesa meira
 
sofie

14.10.2010 Fréttir : Höfundakvöld með Sofi Oksanen

Finnska skáldkonan Sofi Oksanen hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2010 fyrir skáldsögu sína Hreinsun (Puhdistus) sem er nýkomin út í íslenskri þýðingu. Á höfundakvöldi ræðir Silja Aðalsteinsdóttir við Sofi Oksanen sem er margverðlaunuð og þykir með merkari rithöfundum sinnar kynslóðar. Lesa meira
 
sauna

8.10.2010 Fréttir : Finnskar kvikmyndir komnar á bókasafnið

Nýjar og spennandi finnskar kvikmyndir í bókasafni Norræna hússins : "Postia Pappi Jaakobille", "Hovimäki" - sjónvarpssería 8 þættir, "The truth about SAUNA, the truth about Finns", "Poliisin Poika, barnamyndin "Urpo & Turpo", mynd um finnska listmálarann "Albert Edelfelt", grínmyndin "Star wreck" og dramamyndin " Gränsen 1918". Kvikmyndir eru lánaðar út í 7 daga gegn framvísun bókasafnskorts.

Lesa meira
 
hrafn-kroppadur

9.5.2011 Fréttir : Norræni tískutvíæringurinn 2011

Norræni tískutvíæringurinn, Nordic Fashion Biennale, verður haldinn í Seattle 30.september – 13.nóvember. Norræni tískutvíæringurinn (NFB) var fyrst haldinn af frumkvæði Norræna hússins í Reykjavík 2009 með stórkostlegum árangri: 60 hönnuðir og listamenn tóku þátt og fékk viðburðurinn mikla umfjöllun hér heima og erlendis. Í ár verður viðburðurinn haldin í Nordic Hertiage Museum í Seattle sem er meðframleiðandi að viðburðinum. Nordic Hertiage Museum er safn sem miðlar norrænum menningararfi en það er staðsett í Ballard hverfinu í Seattle sem var byggt upp af norrænum landnemum á 19.öld.

Lesa meira
 
nallar2_jpg_w300h243

22.10.2010 Bókasafn : Bangsavika í bókasafni Norræna hússins

Bangsavika í Bókasafni Norræna hússins 25.- 29. október 2010 í tilefni af alþjóðlegum bangsadegi þann 27. október.  Í bangsavikunni er sýning á böngsum, bangsabækur bíða eftir því að verða lesnar, leikskólabörn eru velkomin í heimsókn, hægt er að syngja bangsasöngva og lita bangsa- myndir.

Lesa meira
 
ch.val

28.9.2011 Fréttir : You Are In Control: International Conference for Creatives in the Digital World

You Are In Control is an annual international conference returning for the fifth year running to provide a necessary platform for exploring digital business developments in the Creative Industries. This year the conference will take place between October 10th – 12th in Reykjavik's brand new centrally-located concert hall and conference centre Harpa.

Lesa meira
 
nordurlond-fanar

27.9.2011 Fréttir : Kynning á styrktarmöguleikum vegna norrænna verkefna fyrir börn og ungmenni.

Kynning verður á styrktarmöguleikum vegna norrænna verkefna fyrir börn og ungmenni í Norræna húsinu 3.október kl. 14-15.30. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til marie@nordice.is
Lesa meira
 
matur-skyrkaka

27.9.2011 Fréttir : Kokkakeppni- búðu til stuttmynd

Þú getur, meðal annars: Hjálpað til við að búa til mat fyrir 30.000 nemendur í skólum í Washington, unnið með færum leiðbeinendum, aukið færni þína sem kokkur, matreitt á einum af norrænu sendiráðunum í Washington og fengið að búa til mat á einum af  betri veitingastað Washingtonborgar.

Ef að þú ert á aldrinum 18 og 24 ára og getur ferðast á tímabilinu 21-28. október, gætir þú unnið allt þetta.

Lesa meira
 
Johannes-og-Joachim150

23.9.2011 Fréttir : Klassík í Vatnsmýrinni: "Frændur frá Noregi"

Miðvikudagskvöldið 5. október kl. 20 verða tónleikar í Klassík í Vatnsmýrinni, tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið. Þessir fjórðu og síðustu tónleikar starfsársins skarta ungum og efnilegum flytjendum frá Noregi. Þetta eru þeir Johannes Martens sellóleikari og Joachim Kwetzinsky á píanó en þeir eru meðal færustu hljóðfæraleikara sinnar kynslóðar í Noregi.

Lesa meira
 
riff-2011

22.9.2011 Fréttir : RIFF 2011- Kvikmyndasmiðjan

Kvikmyndasmiðja RIFF er fyrir ungt hæfileikafólk frá Evrópu og Ameríku þar sem það fær tækifæri til þess að hittast í Reykjavík og upplifa það sem er að gerast í kvikmyndaiðnaði beggja vegna Atlantshafsins. Valið hæfileikafólk fær tækifæri til þess að hitta reynda leikstjóra og framleiðendur úr kvikmyndageiranum sem koma á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í ár. Ennfrekar fær ungviðið tækifæri til þess að senda inn stuttmyndir sínar sem keppa síðan um Gulleggið, sem eru verðlaun sérstaklega veitt ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki. Kvikmyndasmiðjan stendur í þrjá daga:  28. september - 1. október, næstkomandi. Þar mun kvikmyndagerðarfólkið taka þátt í vinnustöðvum og röð fyrirlestra reynds kvikmyndagerðarfólks.  Menntun og skemmtun fer þannig saman hönd í hönd. Lesa meira
 
81219917f3a73df

22.9.2011 Fréttir : RIFF 2011: ókeypis sýningar fyrir börn og fullorðna

Sýningar fyrir börn og fullorðna – frítt inn

Stuttmyndasýningar fyrir börn og fullorðna alla virka daga kl. 14 frá 26. -30. september Myndir eftir unga teiknimynda og hreyfimyndahöfunda þar sem mannlegi þátturinn er hafður í fyrirrúmi. Skemmtilegar myndir sem höfða jafnt til barna og fullorðinna.

Lesa meira
 
riff-2011

22.9.2011 Fréttir : RIFF 2011: málþing um samkeppnishæfni ísl. kvikmynda

Hvert fer íslensk kvikmyndagerð héðan? Þriðjudagur 27. september  kl. 16:00

Veigamikið málþing um stöðu og samkeppnishæfi íslenskrar kvimyndagerðar í skugga niðurskurðar og efnahagsþrenginga. Þátttakendur eru fulltrúar íslenska ríkisins og þungavigtarfólk úr kvikmyndaiðnaðinum.

Lesa meira
 
bokm

29.8.2011 Fréttir : Bókmenntahátíð í Reykjavík 2011

Bókmenntahátíð í Reykjavík var haldin í fyrsta skipti árið 1985. Thor Vilhjálmsson rithöfundur, Einar Bragi skáld og Knut Ödegård þáverandi forstöðumaður Norræna hússins stofnuðu til hátíðarinnar og varð hún fljótt einn af helstu viðburðum íslenska bókmenntasamfélagsins.

Lesa meira
 
Kontrabassen-pa-Operaen-(2)

22.8.2011 Fréttir : Kontrabassinn; músík- leikverk eftir Patrick SÜSKIND

Athugið breyttan tíma: Fimmtudaginn 8.september kl. 20.00 flytur Anders Ahnfelt Rønne sýningu sína Kontrabassann eftir Patrick Suskind.  Verkið er sýnt í tengslum við  bókmenntahátíðina í Reykjavík. Flutningur fer fram á skýrri og skilmerkilegri dönsku. Aðgangseyrir er 1500 kr.

Lesa meira
 
nordenlogo

15.6.2011 Fréttir : 19 milljónir í íslensk menningarverkefni


Norræni menningarsjóðurinn (Nordisk Kulturfond) hefur á þessi ári stutt íslensk menningarverkefni um 19 milljónir, íslendingar taka ennfremur þátt í 88 verkefnum sem sjóðurinn styrkir.

Samtals hefur sjóðurinn styrkt 155 samnorræn verkefni um 300 milljónir á þessu ári.

 

www.nordiskkulturfond.org

Lesa meira
 
klass

9.6.2011 Fréttir : Klassík í Vatnsmýrinni 2011

Miðvikudagskvöldið 15. júní kl. 20 verða haldnir tónleikar á vegum Klassíkur í Vatnsmýrinni, sem er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið. Eru þetta aðrir tónleikar starfsársins og flytjendur verða þeir Emil Friðfinnsson, hornleikari og Þórarinn Stefánsson, píanóleikari. Á efnisskránni, sem er einstaklega fjölbreytt, eru verk eftir Beethoven, Saint-Saëns og Schumann svo og Tryggva M. Baldvinsson, Leif Þórarinsson og Herbert H. Ágústsson Lesa meira
 
randi

9.6.2011 Fréttir : Verkefni 0: togstreitan í lífi samtímamannsins

Síðasta sýningarhelgi á Verkefni 0 er helgina 1. - 3. júlí.

Nú stendur yfir í Norræna húsinu sýning fjögurra upprennandi listamanna, tvö þeirra lifa og starfa í Berlín og tvö í Osló. Öll verkin voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna sem ber heitið Verkefni 0. Titillinn vísar til þess að mikil umræða á sér nú stað um áhrif mannsins á umhverfi sitt og náttúruna. Sýningin fjallar um þá togstreitu sem fylgir því að taka þátt í lifanaðarháttum nútíma samfélags á sama tíma og vilji fólks er fyrir hendi að stuðla að því sem er umhverfinu og jörðinni fyrir bestu.

Lesa meira
 
agneta

8.6.2011 Fréttir : Agneta Ekholm sýnir málverk

Finnska listakonan Agneta Ekholm, sem búsett er í Ástralíu, sýnir málverk í anddyri Norræna hússins. Ekholm vinnur með akrýl, vatn og svampa við gerð myndanna.Hún tekur yfirleitt langar vinnutarnir og einbeitir sér þá oft að litlum hluta myndarinnar í senn. Sýningin er frá 9.júlí - 14.ágúst. Agneta Ekholm verður viðstödd  opnunina.

Lesa meira
 
Gargond5_20

8.6.2011 Bókasafn : Við opnum kl. 10 á safninu í sumar!

Sumarið er komið í bókasafn Norræna hússins. Opnum nú kl. 10 á morgnana virka daga og opið til kl. 17. Um helgar er opið frá 12-17. Lesa meira
 
loftmynd-vatnsmyri-copy

8.6.2011 Fréttir : Vistvænt skipulag

Fimmtudaginn 9. júní n.k. kl. 12:00 munu meistaranemarnir Drífa Gústafsdóttir og Sólveig Helga Jóhannsdóttir kynna lokaverkefni sín í MSc. námi í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Námsbraut í Skipulagsfræði er tveggja ára MS nám með sjálfbæra þróun og sköpun lífvænlegs umhverfis að leiðarljósi.

Norræna húsið óskaði eftir samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands við skipulagningu á fuglafriðlandinu. Stór hópur sérfæðinga hefur unnið að greiningum á svæðinu og miðast þetta MSc. verkefni við að draga saman upplýsingar og greiningar sem hafa verið gerðar í og við fuglafriðlandið og leggja fram skipulagstillögu fyrir svæðið.

Lesa meira
 
komdu-ad-sigla

8.6.2011 Viðburðir Allt : Norræn siglinga- og strandmenningarhátíð á Húsavík

Í sumar, 16.-23.júlí, verður litrík, ævintýraleg og skemmtileg, strandmenningarhátíð á Húsavík. Hátíðin er sniðin að fjölskyldufólki og verður eitthvað fyrir alla s.s. lifandi handverskssmiðja, tónlist, sýningar, óskalög sjómanna og opnar smiðjur. Kynnið ykkur alla dagskrána á www.sailhusavik.is

Lesa meira
 
Gargond5_20

6.6.2011 Fréttir : Gefum ekki mávum né öndum brauð

Ör fjölgun máva í þéttbýli síðastliðin ár stafar af minni sílagengd í sjó en áður - en ekki síður af umgengni borgarbúa. Mávurinn leitar víða inn í borgina en gott ráð til að fækka honum er að skilja aldrei eftir óvarðar matarleifar, ganga vel frá öllum matarúrgangi og gefa ekki mávunum brauð á Tjörninni.
Lesa meira
 
beate2

3.6.2011 Fréttir : Beate Grimsrud 9.júní kl. 20.00

Norski rithöfundurinn Beate Grimsrud sem tilnefndur var til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011 fyrir skáldsöguna En dåre fri verður gestur á höfundakvöldi í Norræna húsinu fimmtudaginn 9. júní kl. 20.00.  Kynnir er Tiril Myklebost sendikennari í norsku við Háskóla Íslands.

Lesa meira
 
kajsa

25.5.2011 Bókasafn : Kajsa Ingemarsson á Höfundakvöldi

Sænski rithöfundurinn Kajsa Ingemarsson er gestur okkar á næsta höfundakvöldi. Kajsa Ingemarsson þekkt skáldkona og sjónvarpskona frá Svíþjóð en Forlagið hefur gefið út tvær af bókum hennar:  Sítrónur og saffran og nýútkomna bók Allt á floti.  Þórdís Gísladóttir, þýðandi Allt á Floti mun ræða við Kajsu. 1.júní kl. 20.00

Lesa meira
 
HOUELLEBECQ-Michel-10-17-(2)

24.5.2011 Fréttir : Aflýst - Michel Houellebecq á Listahátíð

Ekki verður af komu franska rithöfundarins Michel Houllebecq til landsins í þessari viku en til stóð að hann kæmi fram hér í Norræna húsinu. Truflanir á flugumferð urðu til þess að höfundurinn hætti við komu sína að svo stöddu og því er viðburðinum aflýst.

Lesa meira
 
Pippi-01

24.5.2011 Bókasafn : Barnahellir og Artótek loka tímabundið

Barnahellir og Artótek í kjallara bókasafns Norræna hússins, eru lokuð vegna iðnaðarvinnu til fimmtudagsins 16. júní


Barnbiblioteket är stängt fram till måndagen den 16 juni.

 

Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum.

 

Bókaverðir Lesa meira
 
jazz

23.5.2011 Fréttir : Sálgæslan á Múlanum

Á tónleikunum þriðjudaginn 24. mai, munu söngvararnir Stefán Hilmarsson og Andrea Gylfadóttir flytja ný lög saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar, en textar eru ýmist eftir Sigurð eða Aðalstein Ásberg Sigurðsson.  Þetta eru síðustu tónlekarnir í tónleikaröðinni Múlanum.
Lesa meira
 
nordurlond-fanar

17.5.2011 Fréttir : 6 íslensk verkefni fá styrk

6 íslensk verkefni fá styrk frá Nordisk Kulturfond, heildarupphæðin nemur um 695.000 DKK. Sjóðurinn styrkir samtals 75 verkefni og eru íslendingar þáttakendur í 49 af þessum verkefnum.

Lesa meira
 
adhd

16.5.2011 Viðburðir Tónleikar : ADHD á Múlanum

Á næstu tónleikum tónleikaraðar Jazzklúbbsins Múlans, miðvikudaginn 18. maí kemur fram hljómsveitin ADHD. Meðlimi ADHD þarf vart að kynna en hún er skipuð þeim Óskari og Ómari Guðjónssonum, Davíð Þór Jónssyni og Magnúsi Trygvasyni Elíassen. Hljómsveitin fór í hljóðver í febrúar s.l. og tók upp sína aðra breiðskífu og ætla félagarnir að spila efni af þessum óútkomna diski, í bland við eldra efni. En þess má geta að fyrsta plata þeirra hlaut verðlaun í flokknum jazzplata ársins á Íslensku Tónlistarverðlaunum árið 2009. Af þessum tónleikum má enginn missa af. 

Lesa meira
 
uppur-snjo-(2)

16.5.2011 Fréttir : Vensl

Myndlistarmaðurinn Jóhannes Dagsson sýnir í Norræna húsinu 9.júlí - 14.ágúst. Sýningin nefnist Vensl.Venslin sem titill sýningarinnar vísar til eru milli margskonar fyrirbæra. Vensl upplifunar af landslagi og listasögunnar, vensl lita og forma, þekkingar og skynjunar, hins almenna og hins sértæka, hversdagsins og upphafins augnabliks, vensl kaldhæðni og einlægni. Venslin sjálf eru einnig af ólíkum gerðum; samhverf, ósamhverf, gegnvirk, sjálfhverf, ósjálfhverf; og milli heims og manns.

Lesa meira
 
norski

16.5.2011 Fréttir : Þjóðhátíðardagur Norðmanna í Norræna húsinu

Norðmenn halda þjóðhátíðardag sinn, 17.maí, hátíðlegan í Norræna húsinu með skemmtilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. 

Lesa meira
 
vorvindar1

16.5.2011 Bókasafn : Norræna húsið hlýtur viðurkenningu IBBY

Norræna húsið hlaut í gær, 15.maí,  Vorvindaviðurkenningu IBBY á Íslandi við hátíðlega athöfn. Viðurkenningin var veitt fyrir barnastarf hússins árið um kring.Vorvindaviðurkenningar IBBY hafa verið afhentar árlega frá árinu 1987 og eiga þær
að vekja athygli á þeim fersku vindum sem blása í barnamenningunni hverju sinni. Lesa meira
 
doc10

13.5.2011 Viðburðir Sýningar : Verkefni 0

ATH. Leiðsögn verður um sýninguna Sunnudaginn 5.júní kl. 13.00.   Verkefni  "0" er norsk sýning og  fást listamennirnir allir við hinn póstmoderniska raunveruleika á  brotakenndan og margbreytilegan hátt.

 

Lesa meira
 
orka

12.5.2011 Fréttir : Orka í Norræna húsinu

Færeyska hljómsveitin Orka verður með ókeypis tónleika í Norræna húsinu 26.maí kl. 20.00. Þá mun hljómsveitin flytja nýtt efni í bland við gamalt. Hljómsveitin er nýstárleg og hefur vakið athygli fyrir frumlegar lagasmíðar og óvenjuleg hljóðfæri sem jafnan eru heimasmíðuð. 26.maí kl. 20.00

Lesa meira
 
hofundakvold_460X180-1-(2)

12.5.2011 Bókasafn : Eva Gabrielsson á Höfundakvöldi #4

Sænski rithöfundurinn Eva Gabrielsson kemur fram á höfundakvöldi # 4 12.maí n.k. kl 20:00 . Hún er þekktust sem ekkja Stieg Larsson en er jafnframt höfundur nokkurra bóka sjálf og eru þær fáanlegar á bókasafni Norræna hússins. Þóra Arnórsdóttir mun ræða við hana um höfundaverk hennar.

Lesa meira
 
hofundakvold_460X180-1-(2)

10.5.2011 Bókasafn : Naja Marie Aidt gestur á Höfundakvöldi #5

Naja Marie Aidt fæddist árið 1963 og fyrsta bók hennar var ljóðasafnið "Så længe jeg er ung". Hún hefur skrifað 8 ljóðasöfn, 3 smásagnasöfn, kvikmyndahandrit og nokkur leikrit. Hún er mjög áberandi í sinni kynslóð danskra rithöfunda. Væntanleg neon-bók er smásagnasafnið Bavíani eftir Naju Marie Aidt. Naja Marie hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2008 fyrir þetta safn sem Bjartur gefur nú stoltur út, í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur en hún mun ræða við Naju á höfundakvöldinu 19.maí n.k. kl. 20.00

Lesa meira
 
norskarb

10.5.2011 Bókasafn : Bókamarkaður

Norrænar bækur til sölu á bókasafni Norræna hússins. Bókamarkaðurinn er frá laugardegi 7. maí til og með miðvikudegi 11. maí, opið frá kl. 12-17.

Skáldsögur, fræðibækur, barnabækur og ljóð ásamt geisladiskum með norskri tónlist af öllum gerðum. 

 

Lesa meira
 
1sprakisve

9.5.2011 Fréttir : Sænskur barnaklúbbur

Sænska félagið, í samvinnu við Norræna félagið og Norræna húsið, stendur fyrir barnaklúbbi fyrir sænkumælandi börn á Íslandi.Hugsunin er að börn sænska foreldra sem og börn Íslendinga sem búið hafa í Svíþjóð fái tækifæri til að hittast og tala sænsku. Dagskrá verður í boði hverju sinni.

Fyrsta skiptið verður laugardaginn 30. apríl kl. 11:00 - 12:30 í húsnæði Norræna félagsins á Óðinsgötu 7 en dagskrá verður í gangi næstu
fjóra laugardaga, 30. apríl og 7., 14. og 21. maí, fyrst tvö skiptin á Óðinsgötu en seinni tvö í Norræna húsinu.

Foreldrar eru beðnir um að skrá börn sín á netfanginu asdis@norden.is.  Lesa meira
 
loftmynd-vatnsmyri-copy

9.5.2011 Fréttir : Vistvænni byggð: Ráðstefna í Norræna húsinu

 Fyrri hluti ráðstefnnunar er á ensku en meðal fyrirlesara eru aðilar sem hafa komið að hönnun og skipulagningu verkefna í mannvirkjageiranum þar sem sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi. Þá verður því velt upp hvernig sé hægt að auka almenna þekkingu á vistvænum aðferðum við hönnun og skipulag mannvirkja og tekin fyrir nokkur dæmi um slík verkefni, bæði hérlendis og erlendis.

Lesa meira
 
kongens-have

9.5.2011 Fréttir : Catharine Ward Thompson: Open Space: People Space -

Almenningsrými skipta okkur öll máli en hvað eru almenningsrými, hvert er hlutverk þeirra, hvernig eru þau nýtt og hvaða gæðakröfur eru gerðar við hönnun þeirra? 


10.maí kl. 12 -13

Lesa meira
 
strengir_fidla-frett

9.5.2011 Fréttir : Klassík í Vatnsmýrinni 15.júní

Miðvikudagur 15. júní 2011 kl. 20 „Himneskt horn”, Emil Friðfinnsson, horn og Þórarinn Stefánsson, píanó. Klassík í Vatnsmýrinni er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið með áherslu á norrænt og alþjóðlegt samstarf. Markmiðið með tónleikaröðinni er að gefa áheyrendum tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks innlenda og erlenda listamenn með áherslu á „einleikarann” annars vegar og „kammertónlist” hins vegar

Lesa meira
 
strengir_mynd

9.5.2011 Fréttir : Múlinn í Norræna húsinu

Á næstu tónleikum tónleikaraðar Jazzklúbbsins Múlans í Norræna húsinu, miðvikudaginn 11. maí kemur fram Fley tríóið, tríó píanóleikarans Egils B. Hreinssonar. Meðleikarar hans eru bassaleikarinn Gunnar Hrafnsson og Erik Qvick sem leikur á trommur. Tríóið leikur klassískan jazz m.a. 

Tónleikar Múlans fara fram í Norræna Húsinu, Sturlugötu og hefjast þeir kl. 21 og er þúsund króna aðgangangseyrir, 500 krónur fyrir nemendur. 11.maí kl. 21.00

Lesa meira
 

4.5.2011 Fréttir : Það sem ég finn í því sem ég fann

Laugardaginn 7. maí opnar sýningin Það sem ég finn í því sem ég fann.

Á sýningunni má sjá verk eftir leikskólabörn á Laufásborg, stúlkur og drengi á aldrinum 3ja til 5 ára. Verkin eru unnin úr efniviði sem kom til þeirra úr öllum áttum, sumt sem börnin fundu sjálf og það sem leikskólanum hefur verið gefið, verk úr tré, rusli, textil og gifsi.

7. - 15.maí

Lesa meira
 
FI_project-(2)

4.5.2011 Fréttir : Víðátta og rjóður

Laugardaginn 21.maí opnar í Norræna Húsinu sýningin Víðátta og rjóður sem unnin er upp úr syrpu listbúða sem haldnar voru þrjú sumur í þremur norrænum löndum fyrir ungmenni úr þremur norrænum lista- og byggingarlistarskólum.

Lesa meira
 
left-handed-(2)

4.5.2011 Fréttir : Íslensk eldfjöll með augum finnsks listafólks

Eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 birtist Finnum sem ekki aðeins hættulegt ástand heldur einnig sem ákfalega fallegt. Nemendur og leiðbeinendur í skólanum Kiipula í Turenki í Finnlandi  söfnuðu myndum og fréttum af gosinu og unnu útfrá þeim röð málverka sem verða nú sýnd í Norræna húsinu.

Lesa meira
 
hofundakvold_460X180-1-(2)

2.5.2011 Bókasafn : Höfundakvöld #3 Bækur og garðverkin

5.maí kl. 20.00. Á þriðja höfundakvöldi Norræna hússins munum við fanga þennan áhuga og höfum fengið til liðs við okkur höfunda sem allir tengjast nýútkomnum og endurútgefnum bókum sem fjalla um matjurtarækt.  

Lesa meira
 
soguslodir

28.4.2011 Fréttir : Söguslóðir 2011

Í tilefni af 5 ára afmæli Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu verða haldnir stórir viðburðir á vegum samtakanna í samvinnu við Norræna húsið dagana 29. og 30. apríl.Hið árlega málþing samtakanna, Söguslóðir 2011 verður haldið í Norræna húsinu föstudaginn 29. apríl frá 14:00 - 17:00. 

Lesa meira
 
AGGI-(2)

27.4.2011 Viðburðir Tónleikar : Múlinn jazzklúbbur í Norræna húsinu

Mánudaginn 2.maí verða fyrstu tónleikar Múlanns, jazzklúbbs, í Norræna húsinu. Þá kemur Tríó Agnars Más Magnúsonar fram og leikur tónlist Agnars af útkomnum geisladiskum hans í bland við þekkt lög í fyrra setti. Í seinna setti verður jamsession fyrir alla sem vettlingi geta valdiðÞetta er upphafið á glæsilegri dagskrá sem stendur til 24.maí.

2.maí kl. 21.00

Lesa meira
 
Bruno-Groening-1-(2)

27.4.2011 Fréttir : Bruno Gröning Stofnunin með fyrirlestur í Norræna húsinu

Faghópur dönsku Bruno Gröning Stofnunarinnar um læknisfræði og vísindi, heldur fyrirlestur í Norræna húsinu föstudaginn 6. maí frá kl 18-21.

Yfirskrift fyrirlestranna er Heilbrigði í gegnum andlegar leiðir, eftir kenningum Bruno Grönings -læknisfræðilegar staðreyndir.

Fyrirlesari er Oliver Bonifer frá Finnlandi.

6. maí kl. 18-21



Lesa meira
 
thorungar

27.4.2011 Fréttir : Þörungar í matargerð

G. Mouritsen, prófessor við Syddansk Universitet, heldur opinn fyrirlestur um nýtingu þörunga í matargerð á morgun 28. apríl í sal Norræna hússins, kjallara. Fyrirlesturinn, sem hefst klukkan 19.30, fjallar um þörunga sem eru mikilvægur hluti af mataræði í mörgum löndum Asíu. Notkun þeirra í matargerð hefur ekki náð fótfestu á Vesturlöndum nema að litlu leyti. Ole telur líklegt að þörungar verði stærri hluti af mataræði Vesturlandabúa í framtíðinni enda séu þeir afbragðs matvæli.

28.apríl kl. 19.30

Lesa meira
 
kyr

21.4.2011 Fréttir : Aðbúnaður dýra í íslenskum landbúnaði

Þörf umræða hefur sprottið upp um ýmsa vankanta á aðbúnaði og velferð dýra íslenskum landbúnaði.
Dagskrá:
Sjónarmið neytenda – Linda Pétursdóttir
Ódýr matur, dýrkeypt blekking – Dr Ólafur R.Dýrmundsson frá Dýraverndarsambandi Íslands
Velferð dýra - Sif Traustadóttir – Dýralæknir og stjórnarmaður í Velbú
Aðgangur að lífrænu hráefni – Oddný Anna Björnsdóttir
26.apríl kl. 20.00

Lesa meira
 
rafbaekur-006

15.4.2011 Bókasafn : Rafrænar bækur í gegnum bókasafn Norræna hússins

Á ,,Bókasafnadeginum” 14. apríl bauð bókasafn Norræna hússins til merkisviðburðar.    Opnað var fyrir aðgang að rafrænum bókum og hljóðbókum á sænsku í gegnum heimasíðu safnsins, fyrst almenningsbókasafna á Íslandi.  Lánþegar bókasafnsins munu hvar og hvenær sem er geta hlaðið niður rafbókum á ýmis konar rafbókalesara og hlustað á ,,streymandi” hljóðbækur á sænsku í gegnum internetið.  Víða á Norðurlöndunum, sérstaklega í Svíþjóð er hægt að fá lánaðar nýjar bækur á rafrænu formi í gegnum heimasíður almenningsbókasafna.

Lesa meira
 
hofundakvold_460X180-1-(2)

15.4.2011 Bókasafn : Höfundakvöld #2

Fimmtudaginn 28. apríl kl. 20 tekur Norræna húsið á móti þekktum verðlaunarithöfundi frá Færeyjum, Carl Jóhan Jensen . Höfundakvöldin snúast um höfunda eins og nafnið ber með sér en lesendur eru ekki síður mikilvægir eins og útlit viðburðarins ber með sér því hvað er höfundur án lesenda sinna? Bókelskir lestrarhestar ættu því ekki að láta Höfundakvöld í Norræna húsinu framhjá sér fara.

Lesa meira
 
isabel-sorling

13.4.2011 Viðburðir Tónleikar : Jazztónleikar Isabel Sörling group

Isabel Sörling Group leikur á tónleikum í Norræna húsinu 19.apríl kl. 20.00. Þau hafa komið víða við og unnið til margra verðlauna s.s. "Svenska Jazzkometer" og "Yong Nordic Jazz". Þau leika frjálsan jazz og blanda saman spuna og skrifuðu efni. þau eru bæði  ljóðræn  og raftmikil.

Lesa meira
 
Gargond5_20

13.4.2011 Fréttir : Friðlandið hreinsað

Rusl sem rúmast fyrir í yfir 80 ruslapokum var týnt upp úr friðlandinu í Vatnsmýri á mánudag í tilefni samkomulags um endurbætur á friðlandinu. Sjálfboðaliðar frá Seeds, www.seeds.is ,sáu um hreinsunina og þakka aðstandendur verkefnisins þeim kærlega fyrir. Sjálfboðaliðunum var síðan gefinn heit súpa til að ylja sér á, eftir vel unnið verk, en miklar sviptingar voru í veðrinu á mánudaginn.

Lesa meira
 
Fridlandid

13.4.2011 Fréttir : Stórt skref fyrir fuglana á Tjörninni

„Þetta er lítið skref fyrir okkur en stórt skref fyrir fuglana á Tjörninni,“ sagði Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur eftir að hafa skrifað undir samkomulag við Háskóla Íslands og Norræna húsið um endurbætur á friðlandinu í Vatnsmýrinni. Samningurinn er fjölþættur og á meðal annars að tryggja örugg varplönd fyrir Tjarnarfugla. Friðlandið á að vera sjálfbært vistkerfi en þörf er talin vera á að endurnýja og viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika á svæðinu. Jón Gnarr, borgarstjóri, Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor og Max Dager forstjóri Norræna hússins skrifuðu undir samninginn. Starfshópur var einnig skipaður um þetta verkefni. Lesa meira
 
Gyrdir

12.4.2011 Fréttir : Gyrðir Elíasson hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Norræna húsið óskar Gyrði Elíassyni til hamingju með bókmennta-verðlaun Norðurlandaráðs en hann hlýtur þau fyrir smásagnasafnið Milli trjánna.

Lesa meira
 
invite-nordic

11.4.2011 Viðburðir Sýningar : Slippery terrain

Er hópur 6 listamanna frá Svíþjóð, Finnlandi, Kanada og Íslandi sem munu setja upp sýningu þar sem Friðlandið í Vatnsmýrinni og umhverfi Reykjavíkurtjarnar er aðal innblásturinn.

Lesa meira
 
strengir_mynd

8.4.2011 Viðburðir Tónleikar : 15 15 sunnudaginn 10 apríl.

15 15 Tónleikarnir, sunnudaginn 10. apríl  eru tileinkaðir minningu Sigursveins D. Kristinssonar á 100
ára afmæli hans en einnig verða flutt verk eftir Nadia Boulanger, Robert
Schumann, Francis Poulenc, Franz Schubert, Charles Gounod, Erik Satie og
Claude Debussy.

Lesa meira
 
norskarb

7.4.2011 Bókasafn : Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár?

Kannski einn af höfundunum sem heimsækja okkur á höfundakvöld? Kristian Olsen Aaju, Tóroddur Poulsen og Beate Grimsrud eru öllu tilnefnd til verðlaunaanna í ár og þau koma öll fram á höfundakvöldum. Höfundakvöld Norræna hússins hefjast 14.apríl og verða reglulega til 9.júní. lesið meira og skoðið skemmtilegt myndband um höfundana sem tilnefndir eru í ár.

Lesa meira
 
fjaran-015-(Medium)-2-(2)

6.4.2011 Bókasafn : Skapandi snillingar 2007

Leikskólarnir í vesturbænum tóku sig saman og ákváðu að leyfa börnum sem fædd eru það skemmtilega ár 2007 að sýna hvað í þeim býr.  Úr því urðu mörg mismunandi listaverk, enda 9 leikskólar sem tóku þátt og um 200 börn sem eru með í þessari sýningu.  Verk barnanna verða til sýnis í Barnahellinum í Norræna húsinu dagana 12. -17. apríl.  Þar er opið alla daga frá 12-17.  Endilega komið og skoðið þessi frábæru listaverk sem börnin hafa búið til. Lesa meira
 
rafbaekur-001

6.4.2011 Bókasafn : Hvað er rafbók?

Rafbók er bók sem hefur verið yfirfærð á rafrænt form þannig að hægt er að lesa textann beint af tölvu, fartölvu, síma eða sérstökum rafbókalesara.  Rafræn hljóðbók spilast í gegnum internetið.  Hlustað er á upplestur úr rafrænni hljóðbók af internettengdri tölvu eða síma.  Hljóðbókin hleðst ekki niður á harðadiskinn. Ekki er hægt að hlusta á streymandi hljóðbók á MP3 spilara. Hægt er að taka rafbækur til láns hjá bókasafni Norræna hússins.

Lesa meira
 
KihlmanChrister

5.4.2011 Viðburðir Fyrirlestrar : Finnlands-sænski rithöfundurinn Christer Kihlman

Kihlman er meðal fremstu rithöfunda sem skrifa á sænska tungu í Finnlandi. Hvað hefur hann að segja í dag? Hvaða áherslu leggur hann á spurningar eins og framtíð tungumáls minnihluta gagnvart meirihluta þjóðar? Meðal annars þetta kemur hann til með að taka upp i erindi sínu um ”samfélagskritisk” verk sín  - Ett ”samhällskritiskt” författarskap í Norræna húsinu miðvikdaginn 13. aprìl kl 19.


Lesa meira
 
seq--bordi

4.4.2011 Fréttir : Fyrirlestrargjörningurinn Ekkert á Sequences

Ekkert, andastæða alls, hefur verið umfjöllunarefni hinna ýmsu greina vísinda og lista á öllum tíma. Engu að síður hefur spurningunni um hvort hægt sé að skapa altæmi aldrei verið fyllilega svarað. Í þessum fyrirlestrar-/útgáfugjörningi leggur sviðslistamaðurinn Friðgeir Einarsson sitt af mörkum í leitinni að „engu.“

Lesa meira
 
rmmlogo

31.3.2011 Fréttir : Reykjavík Music Mess í Norræna húsinu 15., 16. og 17. apríl.

Tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess er haldin í fyrsta sinn í ár og tekur Norræna húsið þátt í henni. Viðamikil dagskrá verður í húsinu á meðan hátíðinni stendur en dagskráin stendur yfir í tvo daga. Á meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni eru Nive Nilsen frá Grænlandi og Deerhunter frá Bandaríkjunum.

Lesa meira
 
hofundakvold_460X180-1-(2)

30.3.2011 Bókasafn : Höfundakvöld #1

14.apríl kl. 20.00 : Jórunn Sigurðardóttir, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, ræðir við Kristian Olsen Aaju og Mariane Petersen frá Grænlandi. Kristian Olsen Aaju er í ár tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir bók sína Det tatoverede Budskap og Mariane Petersen hefur nýverið gefið út ljóðasafn sitt: Storfangernes efterkommere

Lesa meira
 
loftmynd-vatnsmyri-copy

23.3.2011 Fréttir : Friðlandið í Vatnsmýrinni

Friðlandið í Vatnsmýrinni er einn af þessum gleymdu stöðum í Reykjavík, fólk keyrir framhjá án þess að gefa svæðinu nokkurn gaum. Þar eru samt mikilvæg varplönd Tjarnarfugla og jafnframt uppvaxtarsvæði fjölda annarra tegunda. Ástand fuglalífsins, gróðursins og vatnsins er ekki sæmandi þjóð né borg sem vil láta kenna sig við hreint vatn og fagurt land.

Lesa meira
 
HEG-MYND

21.3.2011 Fréttir : Björg í bú í Norræna húsinu á HönnunarMars

Björg í bú frumsýna nýja náttúruafurð, fitulausar kartöfluflögur kryddaðar með íslenskum sjó. Allt frá árinu 1758 hefur kartaflan vaxið við Íslandsstrendur og alltaf átt í nánu ástarsambandi við hafið og afurðir sjávar.

Lesa meira
 
russ

21.3.2011 Fréttir : Stefnumót hönnuða frá Rússlandi og Íslandi

Stefnumót rússneskra og íslenskra fatahönnuða verður í Norræna húsinu á HönnunarMars 26.mars.  Tilefnið er heimsókn rússsneskra fatahönnuða á HönnnarMars og samstarf vegna viðburðarins Nordic Look sem verður í St. Pétursborg í haustið 2011.Viðburðurinn fer fram á ensku.

Lesa meira
 
hofundakvold_460X180-1-(2)

17.3.2011 Bókasafn : Höfundakvöld

„Bækur eru saklausir hlutir, en höfundar eru ægilegar verur“, sagði Þórbergur Þórðarson í bókinni Mitt rómantíska æði og á þessi tilvitnun ágætlega við höfundakvöldin í Norræna húsinu þar sem „ægilegir“ höfundar fyrirhitta lestrarhesta borgarinnar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.Á höfundakvöldunum koma fram rithöfundar og ljóðskáld frá Grænlandi, Færeyjum, Svíþjóð, Noregi og Íslandi.

Lesa meira
 
kyraugad

16.3.2011 Fréttir : Kýraugað

Bruno Compagnon er franskur ljósmyndari sem sérhæfir sig í búfénaði. Undanfarin tvö sumur hefur hann ferðast um Ísland og myndað landslag, mannlíf og nautgripi. Norræna Húsið sýnir nú  myndir Brunos þar sem hin íslenska mjólkurkýr er í aðalhlutverki. Sýningin er frá 19.mars til 20.apríl.

Lesa meira
 
kjammiogkok-(2)

15.3.2011 Fréttir : Kjammi og kók: Íslensk matarhefð í íláti

Leirlistafélag Íslands opnar sýningu á HönnunarMars í Norræna húsinu. HönnunarMars er haldin í þriðja sinn og nú í ár er yfirskrift sýningarinnar íslensk matargerð í íláti. Á sýningunni eru tólf félagsmenn að velta fyrir sér formum og hugmyndum um íslenskan mat og hefðir íslendinga tengdum mat, svo sem verkfæri og ílát sem við höfum notað í gegnum tíðina sem tengjast íslenskum matarhefðum.

Lesa meira
 
A-klasiskum-notum

15.3.2011 Fréttir : Á klassískum nótum. Gestur frá Færeyjum á 15 15.

Á klassískum nótum er yfirskrift tónleika 15:15 tónleikasyrpunnar í Norræna húsinu sunnudaginn 20. mars, kl. 15.15. Á tónleikunum leikur færeyski píanóleikarinn Jóhannes Andreasen ásamt 4 blásurum úr blásaraoktettinum Hnúkaþey, þeim Eydísi Franzdóttur óbóleikara, Ármanni Helgasyni klarínettuleikara, Önnu Sigurbjörnsdóttur hornleikara og Kristínu Mjöll Jakobsdóttur fagottleikara.  Á efnisskrá eru þrjár skærustu perlur tónbókmenntanna fyrir píanó og blásara; Mozart: Kvintett í Es-dúr KV 452, Beethoven: Kvintett í Es-dúr Op. 16 og Poulenc: Tríó fyrir óbó, fagott og píanó

Lesa meira
 
26

11.3.2011 Fréttir : Norrænn módernismi

Seminar um módernisma á Norðurlöndunum verður haldið í Norræna húsinu 18.mars.

I anledningen af Islands Universitets 100-års jubilæum afholder de nordiske lektorer og Árni Magnússon Instituttet for Islandske Studier et heldagsseminar med temaet nordisk modernisme. Inspireret af rammen, Nordens Hus i Reykjavik, vil seminariet lægge vægt på tendenser og hovedllinjer inden for nordisk modernisme i litteratur, billedkunst og arkitektur. Forelæserne er forskere, kritikere og forfattere.

 

Lesa meira
 
Franz-bella-11-7-09

9.3.2011 Viðburðir Tónleikar : Klassík í Vatnsmýrinni

Miðvikudagskvöldið 16. mars kl. 20:00 fer kammertónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið af stað í þriðja sinn. Flytjendur á þessum fyrstu tónleikum starfsársins verða ítölsku tónlistarmennirnir Valentina Caiolo fiðluleikari og Francesco De Zan píanóleikari. Þau munu flytja einstaklega spennandi efnisskrá; sónötur og svítur eftir W.A.Mozart, I. Stravinsky,  A. Schnittke og R. Schumann. 

Lesa meira
 
Thor

3.3.2011 Fréttir : Thor Vilhjálmsson látinn

Thor Vilhjálmsson rithöfundur lést miðvikudaginn 2.mars, 85 ára að aldri. Thor Vilhjálmsson hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1988 fyrir skáldsöguna, Grámosinn glóir. 1992 hlaut Thor bókmenntaverðlaun sænsku akademíunnar fyrir ritstörf.

Thor Vilhjálmsson var tíður gestur í Norræna húsinu m.a. vegna  starfa sinna fyrir Bókmenntahátíð í Reykjavík en hann var einn af stofnendum hennar og sat í stjórn hátíðarinnar frá upphafi.

Lesa meira
 
hands_in_dirt_small

1.3.2011 Viðburðir Ráðstefnur og málþing : Stofnfundur Samtaka lífrænna neytenda

Stofnfundur Samtaka lífrænna neytenda verður í Norræna húsinu 7.mars kl. 19:30 . Tilgangur samtakanna er að stuðla að aukinni framleiðslu og neyslu vottaðra lífrænna vara á Íslandi með velferð almennings, búfjár og umhverfisins að leiðarljósi.

Lesa meira
 
26

25.2.2011 Fréttir : Vilt þú vinna í frjóu og metnaðarsömu umhverfi?

Norræna húsið leitar að markaðsstjóra og bókaverði.

 

Við bjóðum áhugaverð störf í krefjandi og frjóu norrænu og alþjóðlegu umhverfi í Vatnsmýrinni. Norræna húsið er leiðandi afl í íslensku menningarlífi og er húsið eitt af meistaraverkum Alvars Aalto.


Lesa meira
 
hamborgari

21.2.2011 Viðburðir Sýningar : MANNA*-annars konar sýning um mat

ATH: Síðasti sýningardagur 1.maí. Viltu vita meira um matinn okkar? Vitum við í raun hvaðan hann kemur og hvernig hann verður til? Manna er sýning sem höfðar til allra skilningarvitanna, sýning þar sem fjallað er um sambandið milli fæðu og umhverfis, hvernig við vanmetum áhrif okkar á náttúruna og birtir okkur vistfræðilegan veruleika vors daglega brauðs. Málefnið er sett fram á myndrænan og lifandi hátt þar sem húmor og jákvæðni er höfð að leiðarljósi.

Lesa meira
 
greenlandtown

18.2.2011 Bókasafn : Nýjar bækur á bókasafni Norræna hússins

Nýar grænlenskar bækur á bókasafni Norræna hússins: Skáldsögur, ljóð og teiknimyndasögur um Grænland.
Lesa meira
 
AndrewDAngelo-Pic

17.2.2011 Viðburðir Tónleikar : Andrew N D'Angelo í Norræna húsinu

Bandaríski altósaxafónleikarinn Andrew N D'Angelo mun ferðast um nýjar lendur með glænýju, íslensku tríói sínu, TRIO EVE í Norræna Húsinu föstudaginn 25. Febrúar kl. 20:30.  Miðaverð 1.500 kr. Ekki missa af þessari óvenjulegu jazzveislu í Norræna Húsinu.

Lesa meira
 
26

15.2.2011 Fréttir : Fræðslufundur Lions í minningu Þórunnar Gestsdóttur

Miðvikudaginn 23. febrúar 2011 -kl. 16:30-18:30 verður fræðslufundur Lions í minningu Þórunnar Gestsdóttur í Norræna húsinu. Dagskráin er fjölbreytt og á meðal fyrirlesara eru Kristinn Hannesson, Fanney Proppé, Jón Snædal og Kristinn Johnson.

Lesa meira
 
Fastelavn1

7.2.2011 Viðburðir Barnadagskrá : Fastelavn er mit navn

Dansk Kvindeklub i Island indbyder igen i år til Fastelavn for danske og dansk-islandske børn.

 Søndag den 6. marts Kl.15:00 slår vi katten af tønden i Nordens Hus. Sturlagata 5, Reykjavik.

 Der vil blive slået katten af tønden og arrangeret lege for børn i alle aldre.

Når kattekongen er kåret bliver der serveret kaffe/te, saftevand og fastelavnsboler for alle.

Lesa meira
 
nallar3_jpg_

2.2.2011 Viðburðir Fyrirlestrar : Áhrif kreppunnar á börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra

Ráðstefna Lionshreyfingarinnar um áhrif krepunnar á börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Til máls taka m.a. Guðrún Björt Yngvadóttir, alþjóðastjórnarmaður Lions og Héðinn Unnsteinsson, stefnumótunarsérfræðingur í forsætisráðuneytinu. Ráðstefnan er frá 16.30-18.30. Allir velkomnir-Aðgangur ókeypis!

Lesa meira
 
I-Vesterveg

2.2.2011 Viðburðir Sýningar : I Vesterveg

Sýningin I Vesterveg er afrakstur samvinnu listamanna frá Íslandi, Færeyjum, Hjaltlandseyjum og Noregi og er verkefnið styrkt af Norrænum sjóðum.Sýningin opnar formlega, laugardaginn 12.febrúar.

Lesa meira
 
21

2.2.2011 Fréttir : Safnanótt 2011

Þema Safnanætur 2011 er "Íslendingur". Norræna húsið býður upp á að þessu tilefni:  "Ísland séð með augum Pólverja" , tónleika með Miklagarði, og leiðsögn um húsið. Verið velkomin!

Lesa meira
 
oddvin4

1.2.2011 Fréttir : Ljósmyndasýning Oddvin Horneland

Verið velkomin á opnun sýningar Oddvin Horneland i anddyri Norræna hússins 20.febrúar  kl. 14.00.


Lesa meira
 
Hafdisbjarnadottir

1.2.2011 Fréttir : Rafgítar og harmonikka

Föstudagskvöldið 1. apríl kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Norræna húsinu með Hafdísi Bjarnadóttur, rafgítarleikara og Paulu Engel, harmonikkuleikara. Efnisskrá tónleikanna er mjög fjölbreytt en þar má m.a. finna tónlist eftir Bach, nútímatónlist eftir Sofiu Gubaidulinu, Sofiu Martínez, Jesper Koch og Hafdísi Bjarnadóttur í bland við spunakennda tónlist frá Kína, Grikklandi og Íslandi. Miðaverð í forsölu er 500 kr. (sendið tölvupóst á info @ hafdisbjarnadottir.com), en annars er miðinn seldur á 1.000 kr. við innganginn.

Lesa meira
 
SamuliKosminen

28.1.2011 Viðburðir Tónleikar : Samuli famuli og Tríó Vei á Myrkum músíkdögum

Tveir tónleikar myrkra músíkdaga fara fram í Norræna húsinu. Þetta eru tónleikar með Tríó Vei og svo með finnska trommaranum Samuli en tónleikar hans eru sérstakt samstarfsverkefni Norræna hússins og Myrkra músíkdaga.

Lesa meira
 
26

27.1.2011 Fréttir : Skrifstofur Norræna hússins eru lokaðar í dag

Skrifstofur Norræna hússins eru lokaðar í dag vegna starfsmannadags. Móttaka opnar kl. 12.00. Vinsamlegast beinið  fyrirspurnum ykkar til  nh@nordice.is.

Lesa meira
 
hrafnhildur-arnardottir-aka-shoplifter--001

26.1.2011 Fréttir : Hrafnhildur Arnardóttir hlýtur norrænu textílverðlaunin

Hrafnhildur Arnardóttir, einnig þekkt sem Shoplifter, hlaut norrænu textílverðlaunin í ár. Verðlaunin verða afhent í Borås, Svíþjóð, 10. nóvember en þá opnar einnig sýning með verkum Hrafnhildar í textílsafninu í Borås. Hrafnhildur hefur verið ráðin sem sýningarstjóri Nordic Fashion Biennale sem verður í Seattle 30.september - 13. nóvember.
Norræna húsið óskar Hrafnhildi innilega til hamingju með þennan vel verðskuldaða heiður.

Lesa meira
 
Soljakrapu

19.1.2011 Fréttir : Uppistand með Solju Krapu

Sunnudaginn 30.janúar kl. 20.00 mun Finnsk/sænska ljóðskáldið Solja Krapu vera með uppistand í sal Norræna hússins.  Solja hefur gefið út fjölda ljóðabóka og tekið þátt í ljóðaslammi. 

Lesa meira
 
JENS_D_NIELSEN_non_CV_151209-1

18.1.2011 Fréttir : Jens Damkjær Nielsen

Grafíklistamaðurinn Jens Damkjær Nielsen sýnir í anddyri Norræna hússins 22.janúar  -  13.febrúar. Sýningin opnar kl. 16.00, laugardaginn 22.janúar, allir velkomnir.

Lesa meira
 
handbolti

17.1.2011 Fréttir : Handboltinn er í Norræna húsinu!

Norræna húsið sýnir alla leiki íslenska landsliðsins á breiðtjaldi í sal hússins. Úrslitaleikirnir verða auk þess sýndir þegar að þeim kemur. Aðgangur er ókeypis og allir handboltaaðdáendur eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 

Lesa meira
 
Mssjokurs

14.1.2011 Fréttir : MS Sjøkurs á leið til Íslands í sumar.

Hótel og veitingaskipið MS Sjøkurs er á leið til Íslands. Áfangastaður þess er Húsavík en þar verður haldin norræn strandmenningarhátíð dagana 16.-23.júlí.

Lesa meira
 
svenskab

13.1.2011 Fréttir : Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011

Dómnefnd velur verðlaunahafa Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011 á fundi sínum í Ósló 12. apríl 2011. Sama dag verður tilkynnt hver hlýtur verðlaun.

Lesa meira
 
honnm

13.1.2011 Fréttir : HönnunarMars: DesignMatch í Norræna húsinu

Íslenskum hönnuðum gefst þar tækifæri á að hitta norræna kaupendur, framleiðendur og seljendur hönnunar í þeim tilgangi að kynna fyrir þeim verk sín. Markmiðið er að skapa íslenskri hönnun brautargengi á einum mikilvægasta markaði Íslands, Norðurlöndunum. Skemmst er frá því að segja að verkefnið þóttist takast vel fyrir ári og urðu til viðskiptasambönd sem þegar hafa borið ávöxt. 

Lesa meira
 
a1

11.1.2011 Fréttir : Helgarstarfsmaður óskast

Norræna húsið leitar að helgarstarfsmanni.

Unnin er önnur hver helgi frá 12-17.

Um er að ræða starf í móttöku Norræna hússins og felst vinnan í ýmis konar þjónustu við viðskiptavini Norræna hússins m.a. í formi símsvörunar og afgreiðslustarfa.

Viðkomandi þarf að vera samviskusamur, með þjónustulund,  tala góða íslensku,  ensku auk skandinavísku.

Lesa meira
 
thjorsarver

23.12.2010 Fréttir : Rödd þjóðarinnar: karaókímaraþon

orkuaudlindir.is ATH: Karaókí er líka í Kántrýbænum á Skagaströnd, Bolungavík, Bókakaffinu á Selfossi og á Akureyri.

Á þréttándanum lætur þjóðin rödd sína heyrast: Í Norræna húsinu og um allt land ætlar landsþekkt tónlistarfólk og áhugafólk að stíga á stokk og flytja orkumikinn óð til náttúrunnar. Eru allir hvattir til að taka þátt og syngja sitt uppáhaldslag í stærsta karaókíi Íslandssögunnar.

Lesa meira
 
dagblod

16.12.2010 Fréttir : Nýjar bækur á bókasafni Norræna hússins

Hljóðbækur á norsku (cd eða mp3); K.Hamsun: "Sult", V. Sundstøl:"De døde", R. Jacobsen: "Det nye vannet", Anne Holt: "Pengemannen", Karl Ove Knausgård: "Ute av verden", Ambjørnsen: "Elling - elsk meg i morgen", J. Jonasson: "Hundraåringen som klev ut genom fönstret och försvann", Kepler: "Paganinikontraktet", U. Lindell, “Sukkerdøden”.....

Lesa meira
 
Hoklasyning-Herder,-raudur

16.12.2010 Viðburðir Sýningar : Höklar Herders

Herder Andersson  sýnir í Norræna húsinu altarisklæði, hökkla, dúka og muni sem tengjast kristinni trú og handverki. Herder hefur frá árinu 2006  saumað alls 26 hökkla í öllum litum kirkjuársins ásamt  stólum  sem hann hefur gefið Langholtskirkju auk þess til annarra kirkna.  Hann hannar mynstrin og velur litina sjálfur og eru þau bæði hefðbundið og nýstárleg.

Lesa meira
 
amaryllis

14.12.2010 Bókasafn : Langur útlánatími yfir hátíðirnar

Vakin er athygli á löngum útlánatíma á DVD myndum vikuna fyrir jól, fram yfir áramót. Myndir sem eru lánaðar frá 18. des til 23. des. þarf ekki að skila tilbaka fyrr en mánudaginn 3. janúar.Venjulega er bókasafnið opið alla virka daga og laugardaga og sunnudaga kl. 12-17. Skilakassi við dyrnar að safninu fyrir utan afgreiðslutíma. Bókasafnið er lokað frá 24. desember til og með 2. janúar 2011

Lesa meira
 
fjoregg_bleikt

9.12.2010 Fréttir : Norræna húsið gefur jólagjafir til Mæðrastyrksnefndar

Norræna húsið hefur sett saman tuttugu gjafir fyrir stráka og stelpur sem munu fara til Mæðrastyrksnefndar. Gjafirnar eru m.a. skemmtilegar þrautir tengdar Tilraunalandi Norræna hússins en þá sýningu ættu flest börn á Höfuðborgarsvæðinu að þekkja. Það er okkar ósk að þiggjendur gjafanna munu hafa af þeim gagn og gaman og viljum við hvetja aðrar stofnanir til að gera það sem þær geta til þess að styðja við bakið á þeim sem þurfa.

Jólakveðja frá Norræna húsinu.

Lesa meira
 
Artotek

8.12.2010 Fréttir : List til láns

Viltu breyta hjá þér og kynnast norrænni grafíklist í leiðinni? Bókasafn Norræna hússins Artótek eða listlánadeild bókasafnsins lánar út grafíklistaverk eftir íslenska og aðra norræna listamenn. Hægt er að fá allt að 3 myndir lánaðar í einu í 3 mánuði í senn.  Eina sem þarf er bókasafnskort í bókasafni Norræna hússins sem kostar 1200 kr. á ári, koma í Artótekið í bókasafninu, velja grafíkverk og fá lánað.

 Artótekið rekur sögu sína til ársins 1972.  Það ár ákvað Norræna grafíkbandalagið að gefa Norræna húsinu 200 grafíkverk eftir norræna grafíklistamenn sem skyldi verða stofn að listlánadeild.

Lesa meira
 
_MG_2856

7.12.2010 Viðburðir Sýningar : Ljósmyndasýningin Gengið um garðinn

Björg Þorsteindóttir er menntuð í myndlist í Reykjavík, Stuttgart og París. Myndirnar, sextán að tölu, sem verða til sýnis í anddyri Norræna hússins eru allar frá kirkjugarðinum í Pori. Sýningin nefnist “Gengið um garðinn”  stendur frá 8.-19. janúar 2011 og er opin frá kl. 12-17 daglega.

Lesa meira
 
4-DALKUR_300mm_out-4

2.12.2010 Fréttir : Jóladagatal Norræna hússins

Hvaða fjöruga sveit ætli komi okkur í föstudagsgír?


Lesa meira
 
wagner

30.11.2010 Viðburðir Tónleikar : Götterdämmerung á 15 ára afmæli Wagnerfélagsins

Í tilefni af 15 ára afmæli félagsins, sem stofnað var 12. desember 1995, verður sýnd nýlega útgefin upptaka af uppsetningu Kirchner/Rosalie/Levine á Götterdämmerung í Festspielhaus.

Sýningin er öllum opin.

Lesa meira
 
joladagatalforsida

29.11.2010 Fréttir : Jóladagatal Norræna hússins

 Á hverjum degi, 1.-23.desember, kl. 12.34 verða óvænt atriði í jóladagatali Norræna hússins.


Það er ljóst hverjir taka þátt en gestir vita ekki hvenær hver er. Þannig er dagatalið líkt og óvænt gjöf. 


Jóladagatalið er öllum opið, verið velkomin.

Lesa meira
 
slatur

23.11.2010 Viðburðir Tónleikar : Tinna tekur S.L.Á.T.U.R. (fyrir jólin)

Tinna Þorsteinsdóttir leikur ný píanóverk eftir Slátur-meðlimi í Norræna húsinu, laugardaginn 18. desember klukkan 17:00.  Miðaverð: 1500 kr. (1000 kr. fyrir nemendur og 5000 kr. fyrir gagnrýnendur)

Lesa meira
 
lucia_1908_by_carl_larsson1

23.11.2010 Fréttir : Lúsíuhátíð

13.desember kl. 08.30 verður haldin Lúsíuhátíð að hætti Svía í Norræna húsinu. Sænski Lúsíukórinn á Íslandi flytur hefðbundin jólalög í tilefni dagsins. Það er hátíðleg og falleg stemning í Norræna húsinu þegar börnin birtast með kertaljósin sem lýsa upp mykvið. Stjórnandi kórsins er Maria Cederborg. Að loknum tónleikunum verður boðið upp á kaffi, glögg, lúsíuketti og piparkökur.

Lesa meira
 
IMG_0352

17.11.2010 Fréttir : Nýtt norrænt landslag

Þriðjudaginn 23. nóvember kl 20.00 mun Guja Dögg Hauksdóttir, ásamt systrunum Hafdísi og Dagnýju Bjarnadætrum, segja frá sýningunni Nýtt norrænt landslag (New Nordic Landscapes) sem var haldin í Shanghai í sumar í tengslum við Expo 2010. Á fyrirlestrinum verða sýningin og hönnunarferlið kynnt í máli, myndum og hljóðum.

Lesa meira
 
26

16.11.2010 Viðburðir Fyrirlestrar : Verkið verður keypt en dyggðin ekki

Ráðstefna á vegum Verkfræðingafélags Íslands. Aðgangseyrir 1500 kr.

Lesa meira
 
Isak-Oli-mynd

3.11.2010 Viðburðir Sýningar : ... og svo verð ég í Norræna

Á þessari sýningu eru verk sem tengjast söguhetjum úr barnabókum frá Norðurlöndunum. Ísak og fjölskylda ferðuðust til Norðurlanda í sumar og heimsóttu m.a. Múmíndalinn í Finlandi, Vimmerby, fæðingarstað Astridar Lindgren í Svíþjóð og enduðum ferðalagið í Kardemommubænum í Kristianssand í Noregi. Söguhetjurnar á þessari sýningu hafa verið Ísak ákaflega hugleiknar frá barnæsku.

Lesa meira
 
44-a

21.10.2010 Viðburðir Ráðstefnur og málþing : Reykjavík Central Park

Teiknistofan  h a p p y s p a c e frá Stokkhólmi, kynnir tillögu sína fyrir

svæðið sem liggur milli Ráðhússins og Nauthólsvíkurinnar. Tillagan er teiknuð að beiðni Norræna hússins. Tillagan byggir á landfræðilegum og jarðfræðilegum sérkennum svæðissins og endurheimt votlendissins. Fer fram í Ráðhúsinu kl. 12.00 5. nóvember

Lesa meira
 
Artotek

12.9.2009 Fréttir : Myndir úr Artóteki-listasafni Norræna hússins

Sýning á verkum úr Artóteki Norræna hússins er nú í Anddyri norræna hússins.  Listlánasafn Norræna hússins tók til starfa árið 1976. Það var fyrsta

norræna listasafnið þar sem almenningi gafst kostur á að fá lánuð heim listaverk


Lesa meira
 
nnm_logob_100_is_rgb

8.11.2011 Fréttir : Norræna eldhúsið: Ímyndasmíð eða veruleiki?

Félagið Matur - saga - menning hefur fyrirlestraröð sína í vetur með því að bjóða til fundar um Norræna eldhúsið, en það er nýtt fyrirbæri í matarmenningunni. Meðal ræðumanna eru Mads Holm, verkefnastjóri fyrir norræna matarmenningu í Norræna húsinu, Úlfar Eysteynsson, veitingamaður, og Jón Þór Pétursson, þjóðfræðingur.
Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20:00.

Lesa meira
 
logo_press_package_web2

30.8.2010 Fréttir : YOU ARE IN CONTROL: Alþjóðleg ráðstefna skoðar tækifæri sem felast í stafrænni framtíð

Alþjóðleg ráðstefna, You Are In Control, verður haldin í fjórða sinn í Reykjavík dagana 1. og 2. október næstkomandi þar sem rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum. Tilgangurinn er að sameina þá sem starfa í skapandi greinum, markaðsfólk og útgáfufyrirtæki á samvinnuþýðan máta og ræða þær breytingar sem hafa átt sér stað í menningarmiðlum.

Lesa meira
 
icelandic-love

25.8.2010 Fréttir : Opið fyrir umsóknir í Norrænu menningargáttina

Nú er opið fyrir umsóknir í menningar og listaáætlun Norrænu menningargáttarinnar.  Umsóknarfrestur er til og með 15. september. Menningar- og listaáætlunin veitir styrki til verkefna á sviði allra menningar- og listgreina. Áætlunin veitir styrki til fagfólks og áhugafólks sem starfar að listum og menningarmálum.

Mikilvægustu matsþættir  eru gæði  verkefnis og nýsköpun.


Lesa meira
 
dovile

24.8.2010 Viðburðir Sýningar : DOVILE TOMKUTE –Tvær hliðar raunveruleikans.

Grafíklistamaðurinn Dovile Tomkute  opnar sýningu sýna Tvær hliðar raunveruleikans í Norræna húsinu 27/8. Sýningin er í anddyrinu og stendur til 12/9.

Lesa meira
 
nanoook_smal_top

2.7.2010 Fréttir : Nanook (GRL) með tónleika í Norræna húsinu 31.ágúst

Grænlenska hljómsveitin Nanook mun spila á tónleikum í Norræna húsinu 31.ágúst n.k. Sveitin hefur slegið í gegn á Grænlandi og hefur síðan haldið tónleika um öll Norðurlöndin. Nánari upplýsingar og Miðaverð verður auglýst síðar.

Lesa meira
 
Magnús Ingvar Ágústsson

22.7.2010 Fréttir : Teiknimyndasögusýning

Sýning á teiknimyndasögum eftir Magnús Ingvar Ágústsson í bókasafni Norræna hússins, neðri hæð. Sýningin stendur frá 19. júlí – 13. ágúst og er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins kl. 12-17 alla virka daga og um helgar.

Lesa meira
 
Lisi-Martin06-DK-x-3-001selected___selected

8.12.2011 Bókasafn : Norsk sögustund fyrir börn

sunnudaginn 11. des. kl. 14 í bókasafni Norræna hússins.

Lesnar norskar jólasögur, sungin norsk jólalög og spjallað saman. Sögustundin er fyrir alla krakka sem tala og skilja norsku og foreldra þeirra. 

 

Lesa meira
 
Film-intro-1

7.12.2011 Fréttir : Síðdegisbíó í Norræna húsinu

Myndin "Sumar á Íslandi" verður sýnd í Norræna húsinu Sunnudaginn 11.desember kl. 15.00. Aðgangur er ókeypis, allir eru velkomnir.

Lesa meira
 
Nobelsverdlaunahatid

7.12.2011 Fréttir : Nóbelsverðlaunahátíð í Norræna húsinu

Laugardaginn 10. desember kl. 15.30

verður sérstök dagskrá og  bein útsending í Norræna húsinu frá Stokkhólmi vegna afhendingar Nóbelsverðlaunanna í flokki bókmennta.

Sænski rithöfundurinn Tomas Tranströmer er viðtakandi verðlaunanna í ár.



Lesa meira
 
PAPII

6.12.2011 Viðburðir Tónleikar : Grænlenskir tónleikar í Norræna húsinu

Á laugardaginn þann 11. desember mun slagverkshljómsveitin Papii flytja tónleikar í Norræna húsinu. Hún spilar hefðbundna grænlenska þjóðlagatónlist í bland við nútímalegri takta. Papii er hlíðarverkefni tónlistarmanna hljómsveitarinnar Liima Inui. Tónleikarnir hefjast kl. 19. Aðgangur er ókeypis.

Lesa meira
 
Bokmenntaverdlaun

1.12.2011 Fréttir : Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2012

Dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs hefur tilnefnt Svar við bréfi Helgu eftir Bergvein Birgisson og Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2012.

Lesa meira
 
www.sailhusavik.is/

28.11.2011 Fréttir : Komdu að sigla á RÚV í kvöld 28.nóvember kl. 21.05

Í kvöld kl. 21:05 sýnir RÚV þáttinn „Komdu að sigla“ sem Norræna húsið lét framleiða í sumar í tengslum við Norræna strandmenningarhátíð sem haldin var á Húsavík í júlí. Norræna húsið skipulagði heilmikla dagskrá sem samanstóð af handverkssýningum, fyrirlestrum, tónleikum og leiksýningum sem á einhvern hátt tengdust strandmenningu Norðurlandanna.

Lesa meira
 
jolaheima

24.11.2011 Fréttir : Jóladagatal Norræna hússins 2011

Komdu og upplifðu "óvæntan" atburð.   

Á hverjum degi kl. 12.34 frá 1. desember og fram til jóla opnum við nýjan glugga á dagatalinu og gestir fá að njóta skemmtiatriðis í sal Norræna hússins.

Allir gestir dagatalsins fá óáfengt jólaglögg og piparkökur til að gæða sér á.

Lesa meira
 
notur

21.11.2011 Viðburðir Tónleikar : Þar sem sönggleði og léttar laglínur ráða ríkjum

Síðdegis sunnudaginn 27. nóvember kl. 16.00 verður skammdeginu sagt stríð á hendur. Vopnuð laglínum, sem fólk hefur sungið sér til skemmtunar í aldaraðir, munu þau Niall Chorell, Laura Pyrrö, Ágúst Ólafsson og Eva Þyri Hilmarsdóttir reyna að bæta skap og létta lund landans með söng og píanóleik. Miðaverð  2500 kr.

Lesa meira
 
Arni

18.11.2011 Viðburðir Sýningar : 2 mínútur- ljósmyndasýning

Regin Weihe Dalsgaard sýnir myndir af grindarhvaladrápi í Færeyjum á sýningunni sinni "2 mínótur" sem opnar 14.janúar og stendur til og með 12. febrúar. Myndirnar varpa óvenjulegu ljósi á viðfangsefnið. Meginþema sýningarinnar eru viðbrögð áhorfenda á grindarhvaladrápin en ekki drápin sjálf. Sjón er sögu ríkari.

Lesa meira
 
Napoleonkapa-litil

18.11.2011 Viðburðir Fyrirlestrar : Metsöluhöfundur á höfundakvöldi

Fimmtudaginn 24. nóvember kl. 19.45

Hrífandi menningarkokteill í Norræna húsinu!

Herman Lindqvist sænskur metsöluhöfundur kynnir hið merka rit sitt um Napóleon og Tríó Inga Bjarna Skúlasonar leikur jazz fyrir gesti kvöldsins. Veitingar í boði.

 

Lesa meira
 
nordurlond-fanar

17.11.2011 Viðburðir Fyrirlestrar : Smáríki í norðri og við Eystrasaltið: Áskoranir í efnahagsmálum

Föstudaginn 18. nóvember frá kl. 9:00-17.30 verður málþing á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við rannsóknarsetur og háskóla á Norðurlöndunum og við Eystraslatið. Viðfangsefni málþingsins er að varpa ljósi á þær leiðir sem þessi smáríki hafa valið til að bregðast við áskorunum alþjóðasamfélagsins á sviði efnahagsmála.

Lesa meira
 
III_Batteriid_Harpa©GujaDogg

14.11.2011 Viðburðir Fyrirlestrar : NÝ NORRÆN BYGGINGARLIST : HARPA TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚS

Síðasti fyrirlestur haustsins um arkitektúr verður  17.nóvember kl. 20.00.

Þá mun Sigurður Einarsson frá Batteríinu Arkitektum segja frá hugmyndafræði og mótun Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Lesa meira
 
Invite_Nordic-1

7.11.2011 Viðburðir Sýningar : Strangir fletir

Samsýning Sigurðar Þóris og Sigurðar Örlygssonar opnar í sýningarsölum Norræna hússins 26. nóvember og stendur til 9.janúar.

 

Opnun sýningarinnar er 26. nóvember kl. 16.00. Vertu velkominn.

Sýningin er opin alla daga frá 12-17. Lokað mánudaga.

 

Lesa meira
 
liljaEplakat

4.10.2011 Fréttir : Ljóðatónleikar

Sunnudaginn 9. október mun Lilja Eggertsdóttir sópran halda ljóðatónleika í Norræna húsinu ásamt Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara.
Dagskrá tónleikanna inniheldur helst ljóð eftir finnska tónskáldið J. Sibelius en einnig íslensk sönglög og ljóð eftir Grieg og R. Strauss.

Lilja er ein af 27 þátttakendum , sem munu taka þátt í alþjóðlegu
Sibeliusar söngkeppninni í ljóðasöng en hún er haldin í Järvenpää, dagana 23.-29. okt 2011. Hún er eini keppandinn frá Íslandi.

Tónleikarnir hefjast kl. 18.15.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.

Lesa meira
 
riff-2011

22.9.2011 Fréttir : RIFF 2011: Málþing um fjármögnun kvikmynda

Hvaðan koma hin prósentin? Laugardaginn 24. September kl 12:00

Málþing WIFT og RIFF um fjármögnunarferli kvikmynda á Íslandi. Erfitt er að hafa tæmandi yfirsýn yfir þá möguleika sem eru í boði fyrir Íslendinga í fjármögnunarferli kvikmynda og hljóta ýmsar leiðir að vera ókannaðar.

Lesa meira
 
17214289-47a4208cb3f6e241813cb3aaf6c10a76

22.9.2011 Fréttir : RIFF 2011 - Lone Scherfig

Lone Scherfig, laugardaginn 24. september kl 14:30
Lone Scherfig er meistari í hárfínni persónusköpun. Trekk í trekk sýnir hún okkur smá en mikilvæg atriði sem svipta hulunni af hinu góða og hinu illa án þess að það komi niður á sjálfri framvindu sögunnar. Þótt tónninn sé ætíð léttur þá er samt eitthvað harmþrungið að verki innra með persónum Scherfig, sem eru oftar en ekki venjulegt en svolítið sérviturt fólk.

Lesa meira
 
el_bulli

22.9.2011 Fréttir : RIFF 2011: matur og kvikmyndir

Þann 25. September verður sýnd myndin El Bulli og af því tilefni af mun veitingastaðurinn Dill bjóða upp á sérstakan matseðil innblásinn af veitingahúsinu. Veitingastaðurinn El Bulli er lokaður hálft árið á meðan stjörnu kokkurinn Ferram Adriá og samverkamenn hanns halda sérlega matarsmiðju í Barcelona þar sem þeir búa til nýjan matseðil fyrir næsta ár.

Lesa meira
 
Subjective-Portraits-Invite

20.9.2011 Fréttir : Hlutlægar portrettmyndir e. Alex Galmeanu -RIFF 2011

Í tengslum við RIFF er ljósmyndasýningin "Subjective Portraits"  eftir Alex Galmeanu sett upp í anddyri Norræna hússins. Á sýningunni má sjá portrettmyndir af þekktum rúmönskum leikurum og kvikmyndagerðarmönnum. Sýningin opnar 24.september og stendur til 2. október.

Lesa meira
 
riff-2011

20.9.2011 Fréttir : Alþjóðleg kvikmyndahátíð - RIFF 2011

Norræna húsið er sem fyrr einn af aðalstyrktaraðilum RIFF.  Þann 25. September verður sýnd myndin El Bulli. Af því tilefni mun veitingastaðurinn Dill bjóða upp á sérstakan matseðil innblásinn af veitingahúsinu.  Þær myndir sem sýndar eru í  húsinu eru m.a. í flokkunum;náttúru/mannréttinda og matarmyndir.

Lesa meira
 
Jean-Michel-Espitallier

13.10.2010 Viðburðir Fyrirlestrar : Sjötta alþjóðlega ljóðahátíð Nýhils

Sjötta alþjóðlega ljóðahátíð Nýhils verður haldin dagana 21.-23. október.  Blásið Verður til pallborðsumræðna um ljóðlist undir stjórn Benedikts Hjartarsonar bókmenntafræðings í Norræna húsinu laugardaginn 23. október.

Lesa meira
 
ljosvakaljod_logo

11.10.2010 Fréttir : Ljósvakaljóð 2010

Ljósvakaljóð er stuttmyndahátíð fyrir 15 - 25 ára. Hátíðin er haldin í fimmta skipti í ár og unnin í samstarfi við dvoted.net, Reykjavíkurborg, Zik Zak Filmworks og Norræna húsið.

Lesa meira
 
Kjell465

8.10.2010 Fréttir : Ljóðastefnumót með Kjell Espmark

Í tilefni af útgáfu ljóðabókar Kjell Espmark, Vetrarbraut, í þýðingu Njarðar P. Njarðvík, og heimsókn höfundarinns til Íslands verður efnt til ljóðastefnumóts í Norræna húsinu. Lesið verður upp úr Vetrarbraut  á bæði íslensku og sænsku. Viðburðurinn verður þann 18. október og hefst kl. 17.00 , aðgangur ókeypis.

Lesa meira
 
Nordisk-Akvarell

7.10.2010 Myndlist : Nordisk Akvarell 2010

16. október opnar, í Norræna húsinu,  ein stærsta vatnslitasýning sem haldin hefur verið á Íslandi. 105 verk verða á sýningunni eftir 105 listamenn frá öllum norðurlöndunum. Sýningin verður bæði í sýningarsal Norræna hússins og í Anddyri en þar sýna ungir íslenskir myndlistarmenn. Sýningin er til 7. nóvember.

Lesa meira
 
Sumars8ning_2010-01

22.7.2010 Fréttir : Sumarsýning:
Hljómar vel

Sýningin saman stendur af gjöfum til Norræna hússins. Hlutirnir tengjast allir tónlist á einn eða annan hátt.
Lúður var gjöf til Norræna hússins 1975 frá Moras ungdomsspelmanslag í Svíþjóð.

Lesa meira
 
Gargond5_20

22.6.2010 Fréttir : Friðlandið í Vatnsmýrinni – friðland í miðri borg.

Friðlandið í Vatnsmýrinni – friðland í miðri borg.

24.06 kl. 10.00- 12:00 í Norræna húsinu

 Norræna húsið efnir til málþings um tækifærin sem felast í friðlandi í miðri borg og möguleikum til endurbóta á núverandi ástandi.


Lesa meira
 
0B1E2866a-copy

23.9.2011 Viðburðir Sýningar : Matarleikhús - Völuspá: A Nordic Food Expedition

Völuspá - A Nordic Food Expedition er samstarfsverkefni leikhússins Republique í Kaupmannahöfn, Norræna hússins og DILL veitingastaðar og byggist bæði á ævafornum textum Völuspár og norrænni matarmenningu. Verkið verður flutt dagana 23. október til 2. nóvember 2011 og er einkum ætlað fullorðnum.



Lesa meira
 
Miklos

12.9.2011 Fréttir : Klassík í Vatnsmýrinni

Miðvikudagskvöldið 14. september kl. 20 verða haldnir tónleikar Í Norræna Húsinu á vegum Klassíkur í Vatnsmýrinni, sem er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið. Eru þetta þriðju tónleikar starfsársins og flytjandi verður píanóleikarinn Miklós Dalmay.

Lesa meira
 
Krummi3web

7.9.2010 Bókasafn : Myndir úti í mýri 2010

Föstudaginn 10. september kl. 14-17 verður síðari hluti barna- og unglingabókmenntahátíðarinnar Myndir úti í mýri haldinn í sal Norræna hússins.
Fyrri hluti hátíðarinnar var haldinn í apríl en því miður féll hluti dagskrárinnar niður vegna öskufalls og því verður málþing rithöfunda, myndskreyta og fræðimanna, um tengsl mynda og texta, haldið föstudaginn 10. september kl. 14.00.
Lesa meira
 
icelandic-love

7.9.2010 Fréttir : Styrkir til tengslaneta hjá KKN

15.september opnar Kultur Kontakt Nord fyrir umsóknir um styrki til tengslaneta. Hægt er að sækja um styrk fyrir uppbyggingu tengslanets innan lista- og menningargeirans á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum.

Lesa meira
 
index

5.9.2011 Fréttir : Sannleikurinn um loftslagið

Þurrkar, flóð, hitabylgjur, skordýraplágur, skógareldar, hækkun sjávar – við sjáum raunverulegar afleiðingar loftslagsbreytinga á hverjum degi. Fimm árum eftir að kvikmyndin An Inconvenient Truth kom út heldur Nóbelsverðlaunahafinn og fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, Al Gore, alþjóðlegan viðburð sem sameinar heimsbyggðina á ögurstundu í hnattrænni meðvitund til að koma áleiðis mikilvægum skilaboðum: Loftslagsbreytingar eru staðreynd og þær eru þegar hafnar. http://climaterealityproject.org/events/husavik/  14.september kl. 19.00 í Norræna húsinu

Lesa meira
 
Bo-skort-100-ara-afmaeli-islensku-hljomplotunnar---B

17.8.2010 Fréttir : 100 ára afmæli íslensku hljómplötunnar í Norræna Húsinu

Haldið verður upp á 100 ára afmæli íslensku hljómplötunnar í Norræna húsinu mánudaginn 23. ágúst 2010. Fram kemur fjöldi listamanna ásamt því að flutt verða erindi úr sögu íslenskrar tónlistar.

Lesa meira
 
silfurberg

29.6.2010 Fréttir : Hljómsveitin Silfurberg með hádegistónleika 30.júní

Hljómsveitin Silfurberg samanstendur af sex einstaklingum, söngkonu og fimm hljóðfæraleikurum, en leiðir þeirra lágu saman í Tónlistarskóla FÍH. Í sumar ætlar hljómsveitin að flytja norræn þjóðlög í eigin útsetningum fyrir gesti og gangandi víðs vegar um Reykjavík. Silfurberg spilar í Norræna húsinu kl. 12.00 30.júní. 

Lesa meira
 
panorama_smaller

27.9.2010 Fréttir : Síðasta helgi Tilraunalandsins 1. - 3. Október

Velflest börn á Íslandi ættu að kannast við vísindasýningu Norræna hússins og Háskóla Íslands, Tilraunalandið. Sýningin opnaði í byrjun apríl á þessu ári og sló í gegn. Í sumarbyrjun flutti sýningin út í skála á lóð Norræna hússins og í Júlí hóf hún sig af stað í ferðalag um Ísland. Nú fer að líða að sýningarlokum en næsta helgi síðasta opnunarhelgi Tilraunalandsins.

Lesa meira
 
riff-2010

24.9.2010 Fréttir : Velkomin á sýningaropnun Nysos Vasilopoulos 25.september kl. 16:00

Þér er boðið á opnun ljósmyndasýningu Nysos Vasilopoulos laugardaginn 25. september kl. 16.00 í Norræna húsinu. Sýningin er hluti af dagskrá RIFF. Verið hjartanlega velkomin.

Lesa meira
 
logo_vinthjonasamtok

21.9.2010 Fréttir : Norðurlandamót vínþjóna 2010

Vínþjónasamtök Íslands með Peter Lehmann og Vin d´Alsace eru gestgjafar Norðurlandamóts vínþjóna að þessu sinni. Keppnin fer fram í Norrænahúsinu dagana 21 og 22 september. Þar mæta til leiks tveir keppendur frá hverju landi eða 10 bestu vínþjónar norðurlanda og þó víða væri leitað og keppast um titilinn vínþjónn Norðurlanda 2010.

Lesa meira
 
kriabrekkan

17.9.2010 Fréttir : RIFF Kvikmyndatónleikar Kríu Brekkan

Kría Brekkan flytur frumsamda tónlist undir kvikmyndinni  The Fall of the House of Usher eftir Jean Epstein, en myndin er frá árinu 1928 og er byggð á sögu eftir Edgar Allan Poe. Kría heitir réttu nafni Kristín Anna Valtýsdóttir, ehn hún var í hljómsveitinni múm um langt skeið.  Miðaverð er 2000 kr. 1500 kr. fyrir handhafa passa.

Lesa meira
 
ljosmynd

17.9.2010 Fréttir : RIFF: ljósmyndir Nysos Vasilopoulos

Markmið þessarar sýningar er að skoða nokkrar stórar evrópskar borgir og varpa ljósi á einmanaleikann og sorgina sem þær geyma. Hugmyndin er að afhjúpa virði vestrænnar menningar. http://nyssosv.com/

Lesa meira
 
forsidefoto

14.9.2010 Fréttir : Danski kórinn Øre-sound heimsækir Norræna húsið

Danski kórinn Øre-sound heldur tónleika í Norræna húsinu 17. september næst komandi. Í kórnum eru fimmtíu meðlimir og þar af einn frá Íslandi. Á efnisskránni eru m.a. lög með Outlandish, Queen, Toto, Leonard Cohen og The Beach Boys.

Lesa meira
 
Laufey-Sigurdar-og-Elisabet-Waage

13.9.2010 Fréttir : Klassík í Vatnsmýrinni: Strengleikar

Miðvikudagskvöldið 22. september kl. 20:00 verða haldnir í Norræna húsinu fyrstu tónleikar vetrarins undir yfirskriftinni „Klassík í Vatnsmýrinni“.  Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari og Elísabet Waage, hörpuleikari, leika verk eftir Louis Spohr, Jórunni Viðar og Béla Bartók en auk þess frumflytja þær nýtt verk eftir Þuríði Jónsdóttur.


Lesa meira
 
haskoli-Islands-logo

30.8.2010 Fréttir : Opinn fyrirlestur: Finland - a Survival Strategy of a Small Country

Miðvikudaginn 1. september býður Alþjóðamálastofnun og rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Íslands til hádegisfundar með Dr. Jyrki Iivonen, yfirmanni upplýsingadeildar finnska varnarmálaráðuneytisins. Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og hefst kl. 12.

Lesa meira
 
gaman

24.8.2010 Viðburðir Tónleikar : Nýstárleg alþýðutónlist: Tríó Gáman (DK) 1.9

Gáman (DK) kemur fram á tónleikum í Norræna húsinu 1.9 kl. 21.00. Húsið opnar kl. 20.00 og miðasala er við inngang. Meginviðfangsefni Gáman tríósins er að tvinna saman gamla norræna alþýðutónlist og nýjar tónsmíðar. Gáman snýr upp á menningararfinn á nýstárlegan hátt og er útkoman engu lík.

Lesa meira
 
sarablaedel

23.6.2010 Fréttir : Ný bók eftir spennusagnahöfundinn Söru Blædel kynnt í Norræna húsinu

 Föstudaginn 25. júní næstkomandi kemur út á vegum forlagsins Uppheima bókin Aldrei framar frjáls eftir dönsku skáldkonuna Söru Blædel. Hér er á ferðinni æsispennandi glæpasaga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Dana. 

Lesa meira
 
danskur-kor

22.6.2010 Fréttir : Danskur kór í Norræna húsinu

Danski kórinn Gimsingers kemur frá náttúruperlunni Struer við Limafjörðinn á vestur Jótlandi.

Gimsingers er blandaður kór sem samanstendur af 22 meðlimum. Efnisskráin er fjölbreytt blanda af sígildum lögum og ryþmískri tónlist.


Enginn aðgangseyrir.

Lesa meira
 
sandkassinn-copy

8.4.2010 Fréttir : Skjólgóði sandkassinn

Stavanger í Noregi hefur gefið Norræna húsinu 6 metra háan sandkassa hannaðan af teiknistofunni Happy Space í Svíþjóð. Sandkassinn var fyrst vígður þegar Stavanger var ein af menningarborgum Evrópu. Nú rís hann upp á lóð Norræna hússins, fyrir alla að njóta. Áætlað er að vígja sandkassann og útisvæðið 15.maí.

Lesa meira
 
mulinn

10.10.2011 Viðburðir Tónleikar : Haustdagskrá jazzklúbbssins Múlans

Kynnið ykkur dagskrána framundan.


Tónleikarnir hefjast alltaf kl. 21 og er 1.500 kr aðgangseyrir. Miðasala við innganginn.

Lesa meira
 
Listahatid---Dagskra---00---Kapa

6.5.2010 Viðburðir Sýningar : Sýning um upphaf og aðdraganda Listahátíðar 1970

Í  sýningarrými á fyrstu hæð Norræna hússins er sýning um aðdraganda og tilurð  Listahátíðar í Reykjavík 1970.  Það var Ivar Eskeland, fyrsti forstjóri Norræna hússins, sem átti hugmyndina að Listahátíð í Reykjavík.

Sýningin er frá 12.maí  til 30.júní.

Lesa meira
 
LOCAL

30.7.2010 Fréttir : Alþjóðlega leiklistarhátíðin LÓKAL verður haldin í Reykjavík dagana 1. til 5. september

Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn og að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á nýjar og spennandi leiksýningar frá Norðurlöndunum. Að þessu tilefni verður haldið málþing í samvinnu við Norræna húsið um nýjustu strauma og stefnur í norrænu leikhúslífi.

Lesa meira
 
ljodrymi

23.9.2010 Bókasafn : Space and Poetry - Ljóðarými

Í tilefni stofnunnar Menningarsjóðsins Kína-Ísland verður haldið ljóðaþing í Norræna húsinu  4.-7. október.  Þingið sækja heim sex ljóðskáld frá Kína, tvö frá Japan auk fulltrúa frá hverju Norðurlandanna.  Fjórum íslenskum skáldum er boðin þátttaka og eru þau:  Sigurbjörg Þrastardóttir, Sigurður Pálsson, ...

Lesa meira
 
image004

6.10.2011 Fréttir : Hávamál

Sýning með myndum Kristínar Rögnu úr Hávamálum er í anddyri Norræna hússins til og með 20.nóvember. Hávamál geyma orð Óðins og skiptast í sex þætti og þann þekktasta þeirra, Gestaþátt, hefur Þórarinn Eldjárn endurort fyrir þessa bók.

Lesa meira
 
børnik

14.5.2010 Bókasafn : Matreiðslubækur fyrir börn og unglinga

Nýlega fékk bókasafn Norræna hússins danskar matreiðslubækur fyrir börn og unglinga, sem eru þó einnig áhugaverðar fyrir mömmur og pabba. Um er að ræða Prinsessekogebogen, Børn i køkkenet, Heibergs vilde dessertcirkus og fyrir unga fólkið Mad uden mor

Lesa meira
 
Linda-riber

15.10.2010 Viðburðir Sýningar : Grønlandskhed och Udfordringer 

Grænlenska listakonan Linda Riber sýnir portrettmyndir þar sem hún notar ljósmyndir af fólki, umhverfi og náttúru,auk textabrota úr viðtölum, til þess að skapa mynd af því hvað það er að vera grænlenskur. Sýning sem fjallar um þjóðerni og ímyndir.

Lesa meira
 
001

3.10.2011 Fréttir : Ný norræn byggingarlist

6. október kl 20.00 mun Signe Kongebro frá hinni margverðlaunuðu dönsku teiknistofu Henning Larsen Architects í Kaupmannahöfn halda fyrirlestur í Norræna húsinu.

Teiknistofan vann nýverið samkeppni um nýjar höfuðstöðvar Siemens í München.

Lesa meira
 
peach-jam-m

26.8.2010 Fréttir : Fjöregg: Úr jörðu og upp á borð: Sultukeppni fyrir börn 

Uppskeruhátíð og sultukeppni fyrir fjölskylduna

 Laugardaginn 11. september kl. 14.00 gefst áhugafólki á öllum aldri

tækifæri til að taka þátt í sultukeppni með afurðum úr eigin garði.

 Í sumar hefur eldhúsgarðurinn við Norræna húsið vaxið og dafnað í sumarblíðunni. Garðurinn er matjurtagarður Norræna hússins og veitingahússins Dill Restaurant

Lesa meira
 
breikdans

26.8.2010 Viðburðir Barnadagskrá : Fjöregg: Breikdans - Freestyle Phanatix frá Danmörku 15/9 kl. 10 og 14

Norræna húsið býður nemendum, 10 – 12 ára og 13 – 15 ára að taka þátt í stuttu og skemmtilegu námskeiði í breikdansi. Námskeiðið er liður í Fjöreggi – Barnamenningu í Norræna húsinu og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Lesa meira
 
jupu

21.5.2010 Bókasafn : Nýjar finnskar bækur

Barnabækurnar um Tatu og Patu eru mjög vinsælar í Finnlandi og núna er hægt að fræðast um stafrófið í bókinni Tatun ja Patun oudot aakkoset. Einnig er mælt með bókunum um Heinähattu ja Vilttitossu. Fyrir alla sem hafa gaman af teiknimynda- sögum erum við með nýjar flotta finnskar teiknimyndasögur: Eero eftir Petteri Tikkanen, Jupu: baa- rien nainen eftir Johanna Tolonen og Minerva: Jääkarhun sydän eftir Juba.

Lesa meira
 
duoharpverk

6.10.2010 Viðburðir Tónleikar : Duo Harpverk á 15:15 Tónleikasyrpunni

Sunnudaginn 24. október kl. 15:15 eru tónleikar með Duo Harpverk. Tónleikarnir eru hluti af 15:15 Tónleikasyrpunni. Miðaverð er kr. 1500 og 750 fyrir öryrkja, eldri borgara og nemendur.

Lesa meira
 
SapbubblorDSC_0145greinalisti

3.5.2010 Fréttir : Áhugasamir aðstoðarmenn óskast

Norræna húsið leitar að áhugasömum og öflugum aðstoðarmönnum/ leiðbeinendum vegna sýningarinnar Tilraunalandið og Náttúruleikgarðs Norræna hússins. Verkefnið er liður í átaksverkefni til atvinnusköpunnar. Til að geta sótt um vinnuna þarf viðkomandi að vera á skrá hjá vinnumálastofnun.  Lesa meira
 
SapbubblorDSC_0145

4.3.2010 Fréttir : Tilraunalandið

Tilraunalandið sýnir náttúruvísindin í nýju samhengi, á skemmtilegan og fjörugan hátt með áherslu á gagnvirkni og upplifun allra skilningarvita.

Gestir eru beðnir um að skrá sig í Tilraunalandið á netfangið nh@nordice.is og í síma 551 7030

Lesa meira
 
LOCAL

24.8.2010 Fréttir :  Pallborðsumræður í Norræna húsinu á LÓKAL-alþjóðlegri leiklistarhátíð

Pallborðsumræðna um norrænt samtímaleikhús í Norræna húsinu, laugardaginn 4. september, kl.13:00-15:00.  Steinunn Knútsdóttir, leiklistarkona stjórnar umræðum.

Lesa meira
 
Sunna

4.8.2010 Fréttir : Jazzhátíð Reykjavíkur 14. – 29. ágúst 2010

Dagskrá hátíðarinnar í Norræna húsinu

Sjá nánari upplýsingar um hátíðina á www.reykjavikjazz.is


Lesa meira
 
artfart-logo

3.8.2010 Fréttir : ArtFart: Hvað er hátíð?

Með Jesper De Neergaard, Johanna Tuukanen og Ragnheiður Skúladóttir


Þrír mikilsvirtir stjórnendur norrænna hátíða munu ræða efni sem varða spurninguna; Hvað er hátíð?

Hvenær: 13. ágúst kl 15:00
Hvar: Norræna Húsið
Tími: 2 klukkustundir
Verð: Ókeypis

Lesa meira
 
nanoook_smal_top

2.7.2010 Fréttir : Nanook (GRL) með tónleika í Norræna húsinu 31.ágúst

Grænlenska hljómsveitin Nanook mun spila á tónleikum í Norræna húsinu 31.ágúst n.k. Sveitin hefur slegið í gegn á Grænlandi og hefur síðan haldið tónleika um öll Norðurlöndin. Nánari upplýsingar og Miðaverð verður auglýst síðar.

Lesa meira
 
bygdalivid-V

1.7.2010 Fréttir : Bygdarlívið: Randi Ward sýnir í anddyri Norræna hússins 31/7- 21/8

Randi Ward er rithöfundur og ljósmyndari, fædd í Bandaríkjunum 1982 í Vestur Virginíu.  Hennar fyrsta verk, ljósmynda og ljóðabókin, meditations on salt, var gefin út í Færeyjum 2007. Ljósmyndir og ljóð Randi hafa birst víða þar á meðal í Listasafni Færeyja, Gallery SO.ZO,  Graffiti Magazine og víðar.

Lesa meira
 
iki_plakat

30.6.2010 Fréttir : IKI - með níu röddum getur allt gerst

IKI verður með tónleika í Norræna húsinu kl. 20:00 á menningarnótt.


"Fallegar laglínur, skemmtilegar, lifandi, fallegar, grimmar sögur. Allt spunnið á staðnum! Í tónlistarsköpun IKI nota söngkonurnar bæði innsæi sitt og hvatvísi.  Ungu söngkonurnar eru níu talsins og eiga rætur í Noregi, Finnlandi, Danmörku og á Íslandi. "

Lesa meira
 
h1jq_OLOFsquare300dpi_2

23.6.2010 Fréttir : Ólöf Arnalds heldur tónleika

Ólöf Arnalds heldur tónleika í Norræna Húsinu þriðjudaginn 29.júní næstkomandi, þá fyrstu sem hún hefur haldið hér á landi í þónokkurn tíma.

 Nýrrar plötu Ólafar, “Innundirskinni” er beðið með mikilli eftirvæntingu en hún kemur út á vegum One Little Indian útgáfunnar í september. 

Lesa meira
 
ensemble2009_600

23.6.2010 Viðburðir Tónleikar : Elokuu ensemble frá Finlandi með tónleika

Finnska kammersveitin, Elokuu - ensemble, verður með tónleika í Norræna húsinu 3.ágúst kl. 20.00.


Um er að ræða hóp sem hefur spilað saman í 10 ár. Þau hafa ferðast víða og gengið vel í alþjóðlegum keppnum.


Aðgangur ókeypis, allir velkomnir.

Lesa meira
 
noturimagine

30.4.2010 Fréttir : HÁSPENNA! 15:15 Tónleikasyrpan


Ingólfur Vilhjálmsson bassa- og klarinettuleikari

 Á efnisskrá eru einleiksverk fyrir klarinettur með elektróník:

 Áki Ásgeirsson - 306° frumflutningur,

Páll Ívan Pálsson - “KhPff” frumflutningur,

Davíð Brynjar Franzson - Elimination of Metphysics (B)

Pei-Yu Shi- Zwei singende Klarinetten

Rodericdk de Man- Ecoute- ecoute

Klas Thorstensson- Spans

 Almennt miðaverð er kr. 1500 en kr. 750 fyrir eldri borgara, öryrkja og nemendur

 

Lesa meira
 
Hørsholm-Koret-2

21.5.2010 Viðburðir Tónleikar : Danskur kór heldur tónleika í Norræna húsinu

7.júní kl. 20.30

Kórinn heitir "Hørsholm kórinn" og er eins og nafnið bendir til frá Hørshólmi, sem er bær á austanverðu Norður-Sjálandi, um 20 km. fyrir norðan Kaupmannahöfn.

Kórinn var stofnaður 1896 og var þá karlakór en hefur verið blandaður kór síðan 1962.

 Undirleik í nokkrum verkum annars Örn Magnússon.

 

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Lesa meira
 
vigdis

6.4.2010 Fréttir : Afmælisráðstefna Vigdísar Finnbogadóttur

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu dagana 15.-17. apríl 2010 í tilefni af áttræðis afmæli frú Vigdísar Finnbogadóttur og mun hún fara fram við Háskóla Íslands og í Norræna húsinu.

Lesa meira
 

25.5.2010 Fréttir : Viltu spyrja frambjóðendur um stefnu þeirra í leik- og grunnskólamálum Reykjavíkurborgar?

Svæðadeild Félags leikskólakennara og Kennarafélag Reykjavíkur stendur fyrir opnum fundi um leik- og grunnskólamál með fulltrúum framboðanna.

Fundarstjóri verður María Ellingsen leikkona.

Leik- og grunnskólakennarar eru hvattir til að mæta og spyrja þá sem vilja stjórna Reykjavíkurborg næstu fjögur árin spjörunum úr. 26. maí kl. 17:30 – 18:30 í Norræna húsinu í Reykjavík

Lesa meira
 
rautt-og-blatt-ljost

9.3.2010 Viðburðir Sýningar : Sameiginlegt sameinast

Fatahönnunarsýning tveggja íslenskra fatahönnunarnema, Öglu og Sigrúnar, frá Kolding, School of Design í Danmörku. Sýningin hefst 16.mars og er til 18.apríl.

Lesa meira
 
fjoregg_heimasidubordi

10.3.2010 Viðburðir Barnadagskrá : Fjöregg: Barnamenning í Norræna húsinu 2010

Norræna húsið leggur sérstaka áherslu á börn og barnamenningu árið 2010. Sérstök barnadagskrá, Fjöregg Norræna hússins, verður kynnt í byrjun apríl og hefur hún að geyma fjölbreytta viðburði fyrir börn á öllum aldri. Við munum bjóða upp á sýningar, tónleika og margvíslegar smiðjur út árið fyrir börnin.

Lesa meira
 
Albert-Mamriev-og-Selma-okt-2010

6.10.2010 Viðburðir Tónleikar : Wagnertónleikar Alberts Mamriev og SelmuGuðmundsdóttur í Norræna húsinu

Rússnesk-ísraelski píanóleikarinn Albert Mamriev  kemur til landsins og kynnir nýútkominn geisladisk sinn með Wagner-Liszt umritunum.  Tónleikarn hans í Norræna húsinu verða mánudaginn 18. okt. kl. 20.00. Aðgöngumiðar kr. 2000 og 1000 kr. fyrir nemendur.

Lesa meira
 
svenskab

8.9.2011 Fréttir : Hver er sérstaða norrænna bókmennta? Skipta Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs máli?

Þriðjudagskvöldið 13. september kl. 20 í Norræna húsinu.

Norðurlandaráð og Norræna húsið bjóða til umræðukvölds um norrænar bókmenntir. Allir velkomnir.

Lesa meira
 
budo

8.11.2010 Viðburðir Sýningar : Budo: Saga japanskra bardagalista

Sýningin Budo: saga japanskra bardagalista opnar 21. nóvember kl. 14:00. Á sýningunni getur að líta muni er tengjast japönskum bardagalistum. Annars vegar endurgerðir og frumgerðir af vopnum, brynjum og  hjálmum  og hins vegar er fjallað um hvernig andi bardagalistanna hefur áhrif á japanskan hversdagsleika.

Lesa meira
 
asdis-olof

6.10.2011 Fréttir : Airwaves 2011

Norræna húsið kynnir með ánægju og tilhlökkun Airwaves-off venue- dagskrá sína. Við hefjum leikinn á fimmtudegi kl. 13.00 og munu alls sautján hljómsveitir stíga á stokk. Þar á meðal eru Pétur Ben (IS), Guðrið Hansen (FO), Dad Rocks! (DK), Team Me (NO), Agent Fresco (IS) og 22 Pistepirkko (FI). Tónleikadagskráin er frá fimmtudegi - laugardags en á sunnudaginn verða sýndar myndirnar Temporary Copenhagen og INNI, ný mynd um Sigur Rós.


Lesa meira
 
h1jq_OLOFsquare300dpi_2

11.8.2010 Fréttir : Ólöf Arnalds með tónleika

Nú er komið að myndbandinu við næstu smáskífu, Crazy car, sem verður frumsýnt þessu sinni. Í laginu syngur Ólöf dúett með myndlistarmanninum og fyrrum glypspopparanum Ragnari Kjartanssyni, sem einnig kemur fram í myndbandinu, en hann leikstýrir því ásamt Ásdísi Sif Gunnarsdóttur. Tónleikarnir í Norræna Húsinu hefjast kl. 21:00.  Verð: 1.500

Lesa meira
 
27062010058

1.7.2010 Fréttir : Tilraunalandiðleggur í'ann

Nú komið að því að kynna Tilraunalandið víða um landið og er Landsvirkjun aðalstyrktaraðili ferðarinnar. Það er ekki ofsögum sagt að nánast öll börn á höfuðborgarsvæðinu þekki Tilraunaland Norræna hússins og Háskóla Íslands. Sýningin hefur slegið í gegn og mörg þúsund manns hafa gert sér ferð niður í Vatnsmýrina.

Lesa meira
 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica