• Magnús Ingvar Ágústsson

Teiknimyndasögusýning

22.7.2010 Fréttir

 

Sýning á teiknimyndasögum eftir Magnús Ingvar Ágústsson í bókasafni Norræna hússins, neðri hæð. Sýningin stendur frá 19. júlí – 13. ágúst og er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins kl. 12-17 alla virka daga og um helgar. 

 

Allar sögurnar á sýningunni eru íslenskar þjóðsögur og textinn við myndirnar tekinn beint úr sögunum. Aðlögun texta úr þjóðsögunum vann Valdís Steinarsdóttir. Myndasögurnar eru teiknaðar fyrst með blýanti og síðan er farið ofan í og smáatriði unnin með penna og bleki.

 

Aðdraganda sýningarinnar má rekja til Hins hússins í Reykjavík þar sem ungu fólki er boðið að sinna ýmsum verkefnum í svokölluðum “sumarhópum”.  Afrakstur sumarvinnu Magnúsar er á sýningunni en hann hefur einnig sýnt myndasögurnar í miðbæ Reykjavíkur og á Mokka.

 

Velkomin!






Þetta vefsvæði byggir á Eplica