norraenahusid

Friðlandið í Vatnsmýrinni

Háskóli Íslands, Norræna húsið og Reykjavíkurborg rækta garðinn sinn

Friðlandið í Vatnsmýrinni er einstakt. Þar getur fólk notið villtrar náttúru og fuglalífs í miðri Reykjavíkurborg.

Með endurbótum á friðlandinu getur það þjónað enn betur hlutverki sínu sem griðastaður fugla, vatnalífvera og gróðurs. Votlendi friðlandsins á að geta verið sjálfbært um hreinleika og endurnýjun sem stuðlar að fjölbreytni lífvera og gróðurs.

Rannsóknir á lífríki friðlandsins sýna að með tilltölulega einföldum og kostnaðarlitlum aðgerðum megi bæta ástandið.

Háskóli Íslands, Norræna húsið og Reykjavíkurborg hyggjast taka höndum saman um endurbætur á friðlandinu. Þannig gefst tækifæri til að endurheimta votlendið, efla áhuga fyrir náttúrunni sem þar er og vekja samfélagið til vitundar um verndun náttúrusvæða innan sem utan borgarinnar

Í friðlandinu mun gefast tækifæri til náttúruskoðunar, gestir geta fylgst með fuglalífinu, fræðst um votlendið og fylgst með rannsóknum af ýmsu tagi.

Sérfræðingar á sviði vatnalíffræði, grasafræði, fuglafræði og umhverfisfræði verða fengnir til að koma með ábendingar um hvernig best sé að haga framkvæmdum í friðlandinu. Í teyminu eru:

 

-        Guðrún Bachmann kynningarstjóri Háskóla Íslands

-        Hilmar Malmquist doktor í vatnavistfræði

-        Hólmfríður Arnardóttir framkvæmdastjóri Fuglaverndar

-        Hrund Ólöf Andradóttir doktor í Umhverfis- og byggingarverkfræði

-        Ingibjörg Svala Jónsdóttir doktor í plöntuvistfræði

-        Kristín Lóa Ólafsdóttir heilbrigðisfulltrúi hjá Reykjavíkurborg

-        Ólafur Karl Nielsen doktor í vistfræði

-        x-clinic við New York Univeristy

-        Fulltrúar Norræna hússins 

Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum árið 2011 og mun verkefnið tengjast aldarafmæli Háskóla Íslands.

Verkefnið hefur hlotið styrki frá Auðlind Náttúruverndarsjóði og Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaups.   

logo_natturu-palma





Þetta vefsvæði byggir á Eplica