• jazz

Jazzhátíð í Reykjavík 2011

16.8.2011 Fréttir

Dagskrá Jazzhátíðar í Norræna húsinu 2011

20.ágúst

13.00 Norræna húsið/Nordic House Ókeypis/Free

Jazz fyrir þá allra yngstu. Orri Huginn heimsækir alvöru hljómsveit og kynnist leikreglunum í jazzleiknum. Jazzhljómsveit getur gert ýmislegt skemmtilegt, jafnvel þó hún sé ekki mjög stór.


21.ágúst

20.00Norræna húsið/Nordic House Kr 2000

mulinn-logo
Tenórarnir tveir!

Hér leiða saman hesta sína tenórsaxófónleikararnir Ólafur Jónsson og Stefán S. Stefánsson. Þeir félagar hafa leikið saman til fjölda ára, lengst af með Stórsveit Reykjavíkur.
Tónlistin er blátt áfram – swing og á rætur að rekja til Sonny Stitt, Sonny Rollins, Dave O'Higgins, Erik Alexander og fleiri tenór-trölla. Meðleikarar þeirra eru ekki af verri endanum sem þarf vart að kynna; píanóleikarinn Eyþór Gunnarsson, bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson og trommuleikarinn Einar Scheving.

Beinskeytt sveifla – Beint í æð.


22.ágúst

20.00Norræna húsið/Nordic House Kr 2000
mulinn-logo
Sænski gítarleikarinn Hans Olding hefur á síðasta áratug stimplað sig rækilega inn í efstu deild evrópujazzins. Hér kemur hann fram ásamt einvalaliði íslenskra tónlistarmanna. Einar Scheving-trommur, Þorgrímur Jónsson-bassi og Sigurður Flosason-saxófónn.


23.ágúst 


20.00Norræna húsið/Nordic House Ókeypis
mulinn-logo

Elou Elan

Elou Elan blandar saman hlýleika jazzins frá sjötta áratugnum, svalri innhverfni þjóðlaga norðursins, sakleysislegu poppi og hinu lostafulla franska sönglagi. Allt þetta blandast saman með hvíslandi innileik í svimandi ómi hringleikahússins.


26.ágúst

20.00Norræna húsið/Nordic House Kr 2000
mulinn-logo
Ragnheiður Gröndal og þjóðlagasveitin.

Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal hefur nú í nokkur ár unnið með íslenskan þjóðlagaarf og leitast við að færa hann í nýstárlegan búning. Hún hefur nú þegar gefið út plötuna “Þjóðlög” árið 2006 sem fékk afar góðar viðtökur og hefur selst í rúmum 7000 eintökum.

Síðan þá hefur Ragnheiður flutt þjóðlögin við ýmis tækifæri og í ýmsum útfærslum. Í ársbyrjun 2009 ákvað hún í samvinnu við Hauk Gröndal og Guðmund Pétursson að setja saman nýja þjóðlagasveit. Var ákveðið að kalla hljómsveitina “Icelandic Folk Ensemble”. Hugmyndin var að freista þess að bæta enn í fjölbreytileika tónlistarinnar og leggja sérstaka áherslu á slagverkið. Slagverksleikarnir Birgir Baldursson og Claudio Spieler hafa verið að vinna með hljómsveitinni undanfarið.

Sveitin hefur leikið mjög víða í Evrópu við frábærar undirtektir síðan geisladiskurinn “Tregagás” kom út í október 2009. Á honum er að finna áleitna, spennandi og ferska tónlist sem leggur grunn að einskonar íslensk ættaðri heimstónlist. Þar fer saman írskur strengjasláttur, balkanskur blástur og slagverksleikur sem er allt frá því að vera fullur frumkrafts yfir í sofistíkeraðan avant gardisma. Ofan á þetta allt; rödd Ragnheiðar í senn engiltær og blíð yfir í kröftuga dulúð.


27.ágúst

13.00 Norræna húsið/Nordic House Ókeypis/Free

Jazz fyrir þá allra yngstu. Orri Huginn heimsækir alvöru hljómsveit og kynnist leikreglunum í jazzleiknum. Jazzhljómsveit getur gert ýmislegt skemmtilegt, jafnvel þó hún sé ekki mjög stór.


28.ágúst

20.00Norræna húsið/Nordic HouseKr 2000
mulinn-logo

Lagaflokkurinn STRENGUR

, fyrir kontrabassa, slagverk, vatnshljóð og vídeó var frumfluttur fyrir troðfullu húsi í Tjarnarbíói á Listahátíð í Reykjavík í maí s.l. og hlaut frábærar viðtökur. Tómas R. Einarsson semur tónlistina og spilar á kontrabassa, Matthías MD Hemstock sér um slagverk og þriðji meðlimurinn í bandinu eru svo ár, lækir, stöðuvatn og haf af ættarslóðum Tómasar. Vatnshljóðin leika undir og spila með þeim félögum en upptökustaðir eru í Dalasýslu og við Húnaflóa þar sem formæður og forfeður Tómasar bjuggu.
STRENGUR er í senn frumleg og aðgengileg tónlist þar sem seiðandi latínryþmi, flæðandi vatn og fallegar bassalínur mynda einstakan hljóðheim.


29.ágúst

20.00Norræna húsið/Nordic HouseKr 2000
mulinn-logo
Andrés Þór kvartett

andres01_8

Andrés Þór leiðir nýjann kvartett með gömlum vinum. Hljómsveitin flytur nýja tónlist eftir Andrés sem er sérstaklega skrifuð fyrir kvartettinn. Tónlistin er samin undir áhrifum úr ýmsum áttum. Jazz, popp og þjóðlagatónlist svo fátt eitt sé nefnt og er hljóðheimurinn litaður með óhefðbundinni “orchestration” og skemmtilegri blöndu milli órafmagnaðra hljóðfæra og rafmagnaðra.

Andrés Þór – rafgítar, kassagítar, lapsteel, dóbró og tónsmíðar.

Agnar Már Magnússon – piano, Rhodes og orgel ýmiskonar.

Þorgrímur Jónsson – Kontrabassi

Scott McLemore – Trommur, symbalar og ýmis ásláttur.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica