NÝ NORRÆN MATARGERÐARLIST

Yfirlýsing

Við, norrænir kokkar, teljum tímabært að skapa Nýja norræna matargerðarlist, þar sem bragðgæði og önnur sérkenni eru fyllilega sambærileg við fremstu matargerðarlist í heiminum.

Ný norræn matargerðarlist á að:


1. einkennast af hreinleika, ferskleika, einfaldleika og siðferði sem við viljum tengja við okkar heimshluta

2. endurspegla árstíðirnar í máltíðunum

3. byggja á hráefni sem vex við framúrskarandi skilyrði í loftslagi okkar, náttúru og vötnum

4. sameina kröfuna um ljúffengan mat og nútíma þekkingu á heilsu og vellíðan fólks

5. efla fjölbreytni norrænna afurða og úrval framleiðenda og breiða út þekkingu á menningarumhverfi matarins

6. efla velferð dýra og sjálfbæra þróun í hafi, á ræktuðu landi og í óbyggðum

7. þróa nýjar vinnsluaðferðir á hefðbundnum norrænum matvælum

8. flétta saman bestu norrænu matreiðsluaðferðir og matarhefðir sem völ er á við utanaðkomandi hugmyndir og áhrif

9. sameina sjálfsþurftarbúskap og vöruskipti á hágæða afurðum milli svæða í þessum heimshluta

10. bjóða neytendum, öðrum matargerðarmönnum, fulltrúum landbúnaðar og fiskveiða, stórum og smærri matvælafyrirtækjum, kaupmönnum og dreifingaraðilum, vísindamönnum, kennurum, stjórnmálamönnum og yfirvöldum til samvinnu að sameiginlegu verkefni, sem verði öllum Norður landabúum til gagns og gleði.

nnm_logoA_12_is_rgb_600





Þetta vefsvæði byggir á Eplica