Matjurtagarður Norræna hússins
Menningarsögulegur nytjajurtagarður

Í sumar hefur norrænn eldhúsgarður vaxið upp við Norræna húsið. Garðurinn er matjurtagarður Norræna hússins og veitingahússins Dill Restaurant. Hann hefur sömuleiðis það hlutverk að lýsa nánum tengslum jurtanna, villtra og ræktaðra, og norrænnar matarmenningar. Uppruni og saga nytjajurta gegna mikilvægu hlutverki í Nýjum norrænum mat og í því hvernig við skynjum hvað er norrænt.
Í tengslum við garðinn var opnað gróður-kaffi-húsið, Kaffi Hvönn.
Veitingastaðurinn Dill nýtir sér uppskeruna úr garðinum í sinni matseld og því má segja að þetta sé eldhúsgarður Norræna hússins.
Garðurinn eru unninn í samvinnu við Norræna genabankann (NordGen), Grasagarðinn í Reykjavík og Erfðalindasetur Landbúnaðarháskóla Íslands.
Ráðgjafi: Ingólfur Guðnason.
Garðurinn er teiknaður af Dagnýju Bjarnadóttur.


