Viðburðir Allt

SapbubblorDSC_0145

Tilraunalandið 9.4.2010 - 30.9.2010

Tilraunalandið sýnir náttúruvísindin í nýju samhengi, á skemmtilegan og fjörugan hátt með áherslu á gagnvirkni og upplifun allra skilningarvita.

Gestir eru beðnir um að skrá sig í Tilraunalandið á netfangið nh@nordice.is og í síma 551 7030

Lesa meira
 
bentebox2

Tvær sýningar opna... 21.8.2010 - 12.9.2010

Listmálararnir Stefán Boulter og Bente Elisabeth Endresen sýna í tvemur sölum í kjallara Norræna hússins.   Báðir listamennirnir hafa sýnt víða og hlotið mikið lof fyrir verk sín. Á báðum sýningunum verða olíumálverk en innblástur sinn sækja þau úr ólíkum áttum.

Lesa meira
 
dovile

DOVILE TOMKUTE –Tvær hliðar raunveruleikans. 27.8.2010 - 10.9.2010

Grafíklistamaðurinn Dovile Tomkute  opnar sýningu sýna Tvær hliðar raunveruleikans í Norræna húsinu 27/8. Sýningin er í anddyrinu og stendur til 12/9.

Lesa meira
 
peach-jam-m

Fjöregg: Úr jörðu og upp á borð: Sultukeppni fyrir börn  11.9.2010

Uppskeruhátíð og sultukeppni fyrir fjölskylduna

 Laugardaginn 11. september kl. 14.00 gefst áhugafólki á öllum aldri

tækifæri til að taka þátt í sultukeppni með afurðum úr eigin garði.

 Í sumar hefur eldhúsgarðurinn við Norræna húsið vaxið og dafnað í sumarblíðunni. Garðurinn er matjurtagarður Norræna hússins og veitingahússins Dill Restaurant

Lesa meira
 
f-forsidu

Facing the Climate: Loftslagsbreytingar frá skoplegu sjónarhorni 11.9.2010 - 3.10.2010

Hópur 25 sænskra skopmyndateiknara komu með húmoríska en jafnframt ógnvekjandi sýn á loftlagsbreytingarnar í tilefni af loftlagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn í desember 2009.

Myndirnar verða til sýnis í Norræna húsinu 11. september til 3. október. 

Lesa meira
 
breikdans

Fjöregg: Breikdans - Freestyle Phanatix frá Danmörku 15/9 kl. 10 og 14 15.9.2010

Norræna húsið býður nemendum, 10 – 12 ára og 13 – 15 ára að taka þátt í stuttu og skemmtilegu námskeiði í breikdansi. Námskeiðið er liður í Fjöreggi – Barnamenningu í Norræna húsinu og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Lesa meira
 
Mynd-Sebastiano-Brusco

Klassík í Vatnsmýrinni 24.3.2010 10.6.2010 - 12.6.2010 22.9.2010 20.10.2010

Miðvikudagskvöldið 24. mars kl. 20:00 fer kammertónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið af stað öðru sinni.

Lesa meira
 
fjoregg_bleikt

Tilraunalandið og Fjöreggið á Facebook

Hægt er að fylgjast með Tilraunalandinu og Fjöreggi á Facebook. Einnig erum við með skemmtilega bloggsíðu um Tilraunalandið þar sem við setjum inn ýmislegt fróðlegt tengt vísindum og leik.

Lesa meira
 
sandkassinn-copy

Skjólgóði sandkassinn

Stavanger í Noregi hefur gefið Norræna húsinu 6 metra háan sandkassa hannaðan af teiknistofunni Happy Space í Svíþjóð. Sandkassinn var fyrst vígður þegar Stavanger var ein af menningarborgum Evrópu. Nú rís hann upp á lóð Norræna hússins, fyrir alla að njóta. Áætlað er að vígja sandkassann og útisvæðið 15.maí.

Lesa meira
 
Ritualfoto1

RITUAL/ HELGISIÐIR

  Kl. 20.00 Mánudaginn 24.maí

RITUAL er hrátt, gamansamt og hugvíkkandi ferðalag; innblásið af Inúítamenningu, stórborgabreikdansátökum, náttúru heimskautasvæðisins og hlýnun jarðar. Dans, tónlist og ljós bráðna saman  í einstaka sýningu um frumkrafta manns og náttúru.

Lesa meira
 
fjoregg_heimasidubordi

Fjöregg: Barnamenning í Norræna húsinu 2010

Norræna húsið leggur sérstaka áherslu á börn og barnamenningu árið 2010. Sérstök barnadagskrá, Fjöregg Norræna hússins, verður kynnt í byrjun apríl og hefur hún að geyma fjölbreytta viðburði fyrir börn á öllum aldri. Við munum bjóða upp á sýningar, tónleika og margvíslegar smiðjur út árið fyrir börnin.

Lesa meira
 
sarablaedel

Ný bók eftir spennusagnahöfundinn Söru Blædel kynnt í Norræna húsinu

 Föstudaginn 25. júní næstkomandi kemur út á vegum forlagsins Uppheima bókin Aldrei framar frjáls eftir dönsku skáldkonuna Söru Blædel. Hér er á ferðinni æsispennandi glæpasaga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Dana. 

Lesa meira
 

Viltu spyrja frambjóðendur um stefnu þeirra í leik- og grunnskólamálum Reykjavíkurborgar?

Svæðadeild Félags leikskólakennara og Kennarafélag Reykjavíkur stendur fyrir opnum fundi um leik- og grunnskólamál með fulltrúum framboðanna.

Fundarstjóri verður María Ellingsen leikkona.

Leik- og grunnskólakennarar eru hvattir til að mæta og spyrja þá sem vilja stjórna Reykjavíkurborg næstu fjögur árin spjörunum úr. 26. maí kl. 17:30 – 18:30 í Norræna húsinu í Reykjavík

Lesa meira
 
forsgard

Hugmyndasmiðjan MAGMA 12. maí kl. 12.15-13.30

Nils Erik Forsgård, forstöðumaður Magma – Finnlandssænsku hugmyndasmiðjunnar ræðir starfsemi hennar í samtali við Gauta Kristmannsson dósent í Norræna húsinu 12. maí, kl. 12.15-13.30

Umræðurnar fara fram á ensku.

Lesa meira
 
primo_levi

Dante og Primo Levi

Ítalski rithöfundurinn Primo Levi skrifaði um útrýmingarbúðir nasista í skáldsögum sínum, meðal annars hrylling þann er hann upplifði í Auschwitz, og í bókum hans má finna margar tengingar við Helvíti Dantes. Í fyrirlestrinum mun Gino Ruozzi, prófessor við Háskólann í Bologna, fjalla um efnið auk þess sem lesin verða brot úr Guðdómlega gleðileiknum og úr bókinni "Se questo e un uomo" eftir Primo Levi en það er skáldsaga sem byggð er að hluta til á ævi höfundarins.

Lesa meira
 
sudraenahusid

Suðræna húsið heldur áfram

Dagskrá Suðræna hússins heldur áfram. Í dag verður dagskrá helguð spænskum bókmenntum og menningu. Á meðal fyrirlesara eru Guðrún Tulinius og Hermann Stefánsson.

Lesa meira
 
riff-2010

RIFF í Norræna húsinu

Norræna húsið er einn af stoltum styrktaraðilum RIFF í ár. Vegleg dagskrá verður að vanda í Norræna húsinu á hátíðinni s.s. Talent Lab, smiðjur fyrir börn og að sjálfsögðu kvikmyndirnar. Fylgist með á www.riff.is og www.norraenahusid.is

Lesa meira
 
Birnabook_poster1-copy

a book of fragments

Bók Birnu Bjarnadóttur, a book of fragments, er safn textabrota um líf og skáldskap.

Sýningin í Norræna húsinu mun standa yfir frá 27. maí til 13. júní. Hún er hluti af alþjóðlegu ráðstefnunni Art in Translation, sem er haldin í Norræna húsinu og Háskóla Íslands dagana 27.–29. maí.

Lesa meira
 
wiig_web

DÖNSK GRAFÍK – Listasafn Norræna hússins

Gestur að þessu sinni í anddyri er danski myndhöggvarinn Svend Wiig Hansen með ellefu dúkristur úr safni Norræna hússins.

Lesa meira
 

Hamsunhelgi: Kvikmyndir og Málþing

Það eru 150 ár frá fæðingu norska rithöfundarins Knut Hamsun. Bækur hans hafa verið ákaflega vinsælar á Íslandi í afar vönduðum þýðingum Jóns Sigurðssonar. ...

umdeildur ekki minnst í Noregi. 

Lesa meira
 
Artotek

Myndir úr Artóteki-listasafni Norræna hússins

Sýning á verkum úr Artóteki Norræna hússins er nú í Anddyri norræna hússins.  Listlánasafn Norræna hússins tók til starfa árið 1976. Það var fyrsta

norræna listasafnið þar sem almenningi gafst kostur á að fá lánuð heim listaverk


Lesa meira
 

Kvennakór HÍ

Tónleikar í Norræna húsinu á sumardaginn fyrsta, 22. apríl 2010, kl. 15.00.
Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt; m.a. kórverk eftir Robert Schumann en í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans, glæsileg kórverk eftir Franz Schubert, Joseph Haydn og Antonin Dvorák, lög eftir Jón Ásgeirsson við ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur, lög eftir Gunnstein Ólafsson við ljóð Steins Steinarr og lög eftir Jónas Tómasson við bráðfyndin ljóð
Þórarins Eldjárns.

Lesa meira
 
sandkassinn-copy

Skjólgóði sandkassinn

Stavanger í Noregi hefur gefið Norræna húsinu 6 metra háan sandkassa hannaðan af teiknistofunni Happy Space í Svíþjóð. Sandkassinn var fyrst vígður þegar Stavanger var ein af menningarborgum Evrópu. Nú rís hann upp á lóð Norræna hússins, fyrir alla að njóta. Áætlað er að vígja sandkassann og útisvæðið 15.maí.

Lesa meira
 

Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica