Beint í leiðarkerfi vefsins.
Málþing kl 13:00-16:00
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Norræna húsið standa fyrir málþingi um menningarstjórnun í Norræna húsinu 25. febrúar nk. Framsögumenn verða prófessorarnir Geir Vestheim og Per Mangset frá Háskólanum í Telemark í Noregi en þeir hafa sérhæft sig í menningarfræðum og skrifað fjölda bóka og greina á því sviði. Aðrir þátttakendur verða Ása Richardsdóttir, frkvstj. Íslenska dansflokksins, dr. Haukur F. Hannesson, fv. menningarlegur stjórnandi Sinfóníunnar í Gävle í Svíþjóð, stundakennari við Háskóla Íslands, Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, og dr. Njörður Sigurjónsson, lektor við Háskólann á Bifröst.
Málþingið fer fram á ensku. Allir velkomnir.
Málþingið er stutt af Norræna menningarsjóðnum, Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis, menntamálaráðuneytinu, Clara Lachmanns fond og Letterstedtska föreningen.