Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sýning á mótmælaskiltum Helga Hóseassonar í sýningarsal Norræna hússins.
Helgi Hóseasson oft kallaður mótmælandi Íslands hefði orðið níræður 21. nóvember síðastliðinn. Helgi sem var smiður og handverksmaður góður, lagði mikla vinnu í skiltin fjölmörgu sem hann mótmælti með en segja má að hvert þeirra sé listaverk út af fyrir sig.
Flest þessara skilta eru nú í einkaeigu en náðst hefur samkomulag um að halda sýningu á þeim auk þess sem ljósmyndir eftir Gunnar V. Andrésson af Helga með skiltin verða einnig til sýnis.
Helgi lést þann 6. September 2009 eftir að hafa eytt stórum hluta ævi sinnar í að mótmæla á horni Langholtsvegar og Holtavegar.
Opnun sýningarinnar verður laugardaginn 23. Janúar milli kl. 15 og 17.
Sýningin verður opin alla daga nema mánudaga frá 12-17 til og með 14. febrúar.

10. október 1972, Helgi Hóseasson húsasmiður slettir skyri yfir þingheim við setningu Alþingis. Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, þingmenn, biskup og forseti Íslands á leið í Alþingishúsið þegar Helgi hóf að sletta skyrblöndu úr fötu yfir fólkið. Lúðvík Jósefsson beygir sig niður og reynir að forðast slettuna. Í fjarska er lögregluþjónn sem ekki er búinn að átta sig á framgangi Helga. Lengst til hægri er forseti Íslands Kristján Eldjárn og biskup Íslands Sigurbjörn Einarsson Helgi Hóseasson slettir skyrinu á Alþingismenn við þingsetningu 1972 *** Mynd úr sömu töku birtist á forsíðu Tímans 11. október 1972 og á síðu 15 er fimm mynda syrpa af atburðinum.
Myndir Gunnar V. Andrésson