Viðburðir Allt

Veistu hvað norrænt „larp“ er? Sænsk-finnski fræðimaðurinn Johanna Koljonen með fyrirlestur.

  • mánudagur 1. mars 2010 kl. 16.00 -18.00

Johanna Koljonen ætlar að leiða okkur í allan sannleika um það, mánudaginn 1. mars í Norræna húsinu, kl. 16.00-18.00.  Fyrirlesturinn er á vegum Bókmenntafræðistofnunar Háskóla Íslands og Norræna hússins og nefnist: 

Kafbátar, drekar og Hamlet í byrginu:

Norrænir framúrstefnu hlutverkaleikir. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.

Síðustu 15 árin hafa Finnland, Svíþjóð, Danmörk og Noregur þróað einstaka menningu umhverfis hlutverkaleiki (live role-playing game =larp).  Listrænir og framsæknir tilraunaleikir og pólitískir leikir fara saman við sýndarveruleika sem unninn er í smáatriðum yfir í líkamlegt leikjarými.  Leikirnir eru stundum gerðir fyrir hundruð leikenda, standa yfir í marga daga eða jafnvel vikur og velta frá engri til meira en milljón evra.  Samt er allt þetta batterí rekið af táningum og ungu fólki, oftast í sjálfboðavinnu.

 

Norrænt “larp” tengist leikhúsi og nútímalist á marga vegu, en rætur þess standa föstum fótum í leikjasamfélaginu og í dag er það orðið alþjóðlegur áhrifavaldur á sviði hlutverkaleikja.  Í þessari léttu kynningu er boðið upp á stutta kynningu á sögu hlutverkaleikjanna, sýnd verða nokkur tilfelli af sprengikrafti Norræna larpsins og kynntar nokkrar fagurfræðilegar leikjahönnunarlausnir sem einkenna norræna larp-framúrstefnu.

 

Jóhanna Koljonen fæddist í Helsinki í Finnlandi.  Hún er gagnrýnandi

höfundur og útvarpsmaður.  Hún hefur eigið menningarprógram, P3Kultur, í Sænska útvarpinu.  Hún er fyrst til að taka upp gagnrýni á hlutverkaleiki og skrifar þrjá kafla og kynningu á þeim í væntanlegri bók um norrænt larp (Markus Montola og Jaakko Stenros ritstj).  Jóhanna  hefur lokið BA-prófi í enskum bókmenntum frá Oxford og stundar MA nám í Hugfræðilegri táknfræði við Háskólann í Árósum.  Fyrirlestruinn verður haldinn á ensku.

 


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica