Viðburðir Allt

Dynamo + Peter Laugesen og Einar Már Guðmundsson: Jazz og ljóðabræðingur 3.mars kl. 20.00

Tónleikarnir eru sambræðingur jazz,ljóðlistar og vídeólistar. 

  • miðvikudagur 3. mars 2010 - miðvikudagur 3. febrúar 2010 kl. 20.00
  • 1500 kr.

VuustLaugesen_1751Christian Vuust Dynamo jazzband túrar um Norðurlönd 28.febrúar til 11.mars 2010. Þeir byrja í Færeyjum og koma hingað til Íslands og spila í Norræna húsinu 3. mars n.k.  kl. 20.00. Miðaverð er 1500 kr.

Peter-LaugesenÁ túrnum mun hljómsveitin koma fram með mörgum af þekktustu rithöfundum  norðurlanda. Peter Laugesen, sem tilnefndur er til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár,  kemur fram á öllum tónleikum sveitarinnar, en í hverju landi sem þeir heimsækja kemur ljóðskáld fram með þeim.

                                                   Mynd: Peter Laugesen og Christian Vuust  

Ljóðskáldin eru Einar Már Guðmundsson (IS), Jóanes Nielsen (Færeyjar) og Jörgen Lind (Svíþjóð).

Tóndæmi:  http://christianvuust.com/

DYNAMO

Christian Vuust Dynamo er danskt jazzband með fimm af fremstu jazztónlistarmönnum Danmörku auk skáldsins Peter Laugesen. Vídeólistamaðurinn Iben West sér um myndræna hluta allra tónleikanna. 



Mynd: Peter Laugesen

VÍDEÓLIST + LJÓÐLIST + JAZZ = DYNAMO

stromChristian Vuust Dynamo gaf út sína fyrstu plötu, Strøm, árið 2009. Platan hefur fengið lofsamlega dóma í dönskum fjölmiðlum: ”Stemningsmættet intenst” skrifar jazznyt.blogspot.com.

 ”Dynamoer i stærk strøm” skrifar Århus Stiftstidende.

 Samvinna Christian Vuust og Peter Laugesens má líkja við nútíma jazz og ljóðlist.  Þegar Laugesen leyfir orðum sínum að líða í takt við tónlistina verður útkoman engu lík.  Hans ljóðarödd er einstök danskri bókmenntasögu að því leiti að hún er persónuleg og óviðjafnanlegar tímasetningar, og fellur akkúrat þetta einstaklega vel að tónlist Dynamo sem er stemningsrík og sveiflukennd.

Samsetningar Vuust leggja upp með ramma fyrir flæðandi, lífrænan straum af tónum, orðum og harmoníu.

Hljómsveitarmeðlimir hafa ólíkan bakgrunn í hinum ýmsu tónlistarstefnum s.s. jazz, rokki og raftónlist.

Afstaða Dynamo gagnvart jazztónlist er opin og afslöppuð. Vídeólistamaðurinn, Iben West víkkar út tónleikaupplifunina með því að skapa myndir varpað á léréft á staðnum.

Iben hefur m.a. unnið með Nephew og Sorten Muld.  

 

Tónleikaferðalagið verður til með styrk frá:

Nordisk Kulturfond, Århus Kommunes Kulturudviklingspulje, Statens Kunstråd, A. P. Møller og Hustru Chastine Mc-Kinney Møllers Fond til almene Formaal, JazzDanmark, DJBFA, Fondet for Dansk-Islandsk Samarbejde, Nordisk Informationskontor i Akureyri og Dansk Musikerforbund.

 Dynamo mun spila á Akureyri 4.mars kl. 21.00 á Græna hattinum.

Tóndæmi: www.christianvuust.com


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica