Viðburðir Allt

15:15 tónleikasyrpan

  • sunnudagur 21. febrúar 2010 kl. 15.15
  • 1500 kr. og 750 kr.
  • sunnudagur 7. mars 2010 kl. 15.15
  • 1500 kr. og 750 kr.
  • sunnudagur 18. apríl 2010 kl. 15.15
  • 1500 kr. og 750 kr.
  • sunnudagur 9. maí 2010 kl. 15.15
  • 1500 kr. og 750 kr.
  • sunnudagur 21. mars 2010


  • Febrúar

Svarta  Rosor

Sunnudaginn  21. febrúar  kl 15.15, halda tvær af efnislegustu tónlistarmönnum  yngri kynslóðarinnar,

María Jónsdóttir, sópransöngkona, og Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanóleikari, tónleika

í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu.  Á efnisskrá er úrval íslenskra og erlendra sönglaga og aría,

en yfirskrift tónleikanna, Svarta Rosor, er fengin af samnefndu lagi finnska tónmeistarans Sibeliusar .

Miðaverð: 1500 kr. - 750 kr fyrir eldri borgara og nemendur.


  • Mars

Á slóðum Xenakis

Sunnudag 7. mars kl. 15:15 verða flutt verk fyrir óbó og slagverk. Flytjendur eru Eydís Franzdóttir óbóleikari og Frank Aarnink slagverksleikari. 

Á efnisskrá eru :

Þuríður Jónsdóttir: Nýtt verk fyrir óbó, frumflutningur

Doina Rotaru: Dincolo.... “Beyond....”  fyrir óbó og slagverk

Riikka Talvitie: Neljä pientä taikaa fyrir óbó og slagverk

Atli Ingólfsson: Æting fyrir óbó, frumflutningur

Simon Holt: Banshee fyrir óbó og slagverk

Xenakis: Rebounds B, fyrir slagverk


Sólósería

Sunnudag 21.mars kl. 15:15 flytur Sveinn Lúðvíksson röð nýrra einleiksverka. Frumflutningur.

  • Apríl

Barber, Berg og Duparc.

Sunnudag 18. apríl kl. 15:15. Anna Jónsdóttir, sópran, og Brynhildur Ásgeirsdóttir, píanóleikari, flytja sönglög eftir Barber, Berg og Duparc.


  • Maí

Háspenna!!

Sunnudaginn 9. maí kl. 15.15 eru síðustu tónleikarnir á vorönninni. Ingólfur Vilhjálmsson klarinettuleikari flytur nokkur ný og frumsamin verk eftir m.a.

Áka Ásgeirsson, Pál Ívan Pálsson og Paul Frick.

 

Miðaverð á tónleikana er kr. 1500 og kr. 750 fyrir öryrkja, eldri borgara og nemendur.


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica