Beint í leiðarkerfi vefsins.
Dyr Norræna hússins í Vatnsmýrinni standa öllum opnar en í ár eru börn og unglingar sérstakir aufúsugestir í húsinu.
Starfsfólki Norræna hússins er það einstök ánægja að bjóða börnum og unglingum upp á fjölbreytta dagskrá allt árið, bæði utanhúss og innan.
Í apríl verður Tilraunalandið á lóð Norræna hússins opnað. Tilraunalandið er náttúruvísindagarður þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að prófa ýmsar skemmtilegar nýjungar á sviði náttúruvísinda. Tilraunalandið verðu opið fram á haust. Í vændum er skapandi og skemmtilegt ár í Vatnsmýrinni!
Aðgangur að öllum viðburðum er ókeypis. Á nokkra viðburði er nauðsynlegt að skrá sig í síma 551 703
