Beint í leiðarkerfi vefsins.
Myndirnar sem sýndar verða á ítalskri kvikmyndahátíð 2010 fjalla um átök á milli menningarheima og hvað gerist þegar sögupersónur komast í kynni við aðra, annað fólk og aðra menningu sem er ólík þeirra eigin. Í Nuovomondo segir frá Ítölum sem freista gæfunnar í Ameríku í byrjum tuttugustu aldarinnar. Flókin samskipti franskrar fjölskyldu sem flyst í lítið fjallaþorp í ítölsku Ölpunum við þorpsbúa eru til umfjöllunar í myndinni Il vento fa il suo giro og í Lamerica er segir frá svikahröppum sem ætla að nýta sér bágt ástand í Albaníu eftir hrun kommúnismans. Í fjórðu myndinni, Quando sei nato non puoi più nasconderti, er erfitt líf ólöglegra innflytjenda séð með augum barns svo úr verður býsna áhrifarík saga.
Norræna húsið, kl. 20.00. Enskur texti á öllum myndum. Aðgangur ókeypis og öllum heimill