Viðburðir Allt

Fjöregg: Úr jörðu og upp á borð: Sultukeppni fyrir börn 

  • Saturday 11. September 2010

Uppskeruhátíð og sultukeppni fyrir fjölskylduna

 

Laugardaginn 11. september kl. 14.00 gefst áhugafólki á öllum aldri

tækifæri til að taka þátt í sultukeppni með afurðum úr eigin garði.

 

Í sumar hefur eldhúsgarðurinn við Norræna húsið vaxið og dafnað í sumarblíðunni. Garðurinn er matjurtagarður Norræna hússins og veitingahússins Dill Restaurant.

 

Nú nálgast haustið og þá er mikilvægt að unnið sé úr uppskerunni og hún borin á borð. Að því tilefni býður Norræna húsið til uppskeruhátíðar laugardaginn 11. sept.

kl. 14.00. Gestum verður boðið að smakka á uppskerunni t.d. fjórum tegundum af íslenskum kartöflum og ýmsum káltegundum. Þá verður keppt í sultugerð og eru ungnir sem aldnir hvattir til þáttöku.

Leikreglur eru einfaldar:

Keppt er í tveimur sultutegendum, súrri og sætri.

Hver keppandi getur skilað inn eins mörgum sultutegundum og hann vill.

Skila skal sultunni í Norræna húsið í síðasta lagi kl. 12.00 þann 11. september í íláti merktu nafni, heimilisfangi og/eða netfangi keppandans á botni ílátsins.

Góð verðlaun í boði.

Kynnir og stjórnandi er danski matfræðingurinn Mads Holm.

Dómari er meistarakokkur veitingahússins Dill Restaurant í Norræna húsinu,

Gunnar Karl Gíslason. Tónlist og skemmtun annast Felix Bergsson leikari og söngvari.

 

 

 

.

 fjoregg_heimasidubordi-1

 


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica