Beint í leiðarkerfi vefsins.
VÍSINDIN LIFNA VIÐ Í VATNSMÝRINNI
Tilraunaland Norræna hússins og Háskóla Íslands




Opnunartími:
Virkir dagar: 9:30-16:30
Helgar: 10.00-16.00
Föstudaginn 9. apríl opnar TILRAUNALANDIÐ, lifandi og gagnvirk sýning þar sem vísindin eru kynnt á óvenjulegan og skemmtilegan hátt með virkri þátttöku gesta.
Vatnshögg og Eldorgel
Meðal tilrauna og tækja sem gestir kynnast eru Sápukúluborðið, Vatnshrútur, Sólarofninn, Kúlubekkurinn, Brunnurinn skjálfandi, Ölduvaggan, risahúsgögn, loftpúðaborð, strimla spegill, hvirfilflöskur og orkuhjól. Í Tilraunalandinu verða líka magnaðar sýnitilraunir eins og Eldorgelið og Teiknirólan Róló Pendúla. Í Tilraunalandinu eru allir jafnvígir, það þarf ekki að "kunna" neitt sérstakt til að taka þátt en gott að hafa fróðleiksþorstann, hugrekkið og ímyndunaraflið með í farteskinu.
Upplifun og uppgötvun
Markmið sýningarinnar er að kynna og kanna undraheima vísindanna, veita innblástur og vekja upp forvitni um tilraunir, tæki og lögmál náttúrunnar.
Tilraunalandið er að miklu leyti grundvallað á hugmyndafræði og tækjum Tom Tits Experiment í Svíþjóð en jafnframt leggur Tilraunasmiðja Háskóla Íslands til tæki, tilraunir og faglega leiðsögn.
Tilraunalandið stækkar með hækkandi sól
Á lóð Norræna hússins er nú að rísa skáli sem mun hýsa Tilraunalandið frá og með 15.maí. Við skálann munu einnig vera kúnstugar kerrur uppfullar af skemmtilegum tilraunum sem hægt er að framkvæma undir berum himni. Vatnatilraunir Tilraunalandsins sem fyrst um sinn verða í gróðurhúsi Norræna hússins munu flytjast á sama svæði en verða staðsettar við 6 metra háan sandkassa sem Stavanger í Noregi hefur fært Norræna húsinu að gjöf.
Börnin eru fjöregg framtíðar
Barnamenning verður í forgrunni í Norræna húsinu og Reykjavíkurborgar á þessu ári og er Tilraunalandið hluti af dagskránni; Fjöregg: barnamenningarhátíð Norræna hússins 2010. Bæklingur Fjöregg : fjoregg_baeklingur_vefur
Háskóli Íslands hefur um árabil lagt áherslu á að miðla vísindum til ungra Íslendinga, svo sem með Háskóla unga fólksins og Vísindavef HÍ. Tilraunalandið er liður í samstarfi HÍ og Norræna hússins sem stefnt er á að auka enn frekar á næsta ári, á aldarafmæli Háskóla Íslands.
Ókeypis og öllum opið
Enginn aðgangseyrir er á sýninguna. Opnað verður fyrir skráningu eftir helgi.
Helstu kennslufræðileg markmið Tilraunalandsins:
Fræðin úr bókunum lifna við!
Hér eru kennsluleiðbeiningar fyrir vatnsrannsóknarstofu
Hér eru kennsluleiðbeiningar fyrir vatnaverkstæði með svífandi kartöflu
Hægt er að bóka tíma í tilraunalandið í síma Norræna hússins 5517030 og á netfangið nh@nordice.is
Bókunum þurfa að fylgja fjöldi gesta, símanúmer,netfang og æskilegur komutími. Gestir fá staðfestingu senda í tölvupósti á að bókunin hafi heppnast.
Norræna húsið og Háskóli Íslands verða á ferð og flugi um allt land í sumar með farandsýningu Tilraunalandsins. Í Tilraunalandinu kynnast börn og ungmenni undraheimum vísindanna í gegnum leik og skemmtun.
Nú komið að því að kynna Tilraunalandið víða um landið og er Landsvirkjun aðalstyrktaraðili ferðarinnar. Það er ekki ofsögum sagt að nánast öll börn á höfuðborgarsvæðinu þekki Tilraunaland Norræna hússins og Háskóla Íslands. Sýningin hefur slegið í gegn og mörg þúsund manns hafa gert sér ferð niður í Vatnsmýrina.
„Tilraunalandið hefur gefist mjög vel í Vatnsmýri og verið mikið sótt af hópum úr grunnskólum, leikskólum og leikjanámskeiðum, sem og fjölskyldufólki,“ segir Þuríður Helga Kristjándóttir, verkefnastjóri Tilraunalandsins. „Af þeim sökum hefur verið ákveðið að gefa fleirum færi á að kynnast vísindunum á þennan lifandi og skemmtilega hátt með því að taka sýninguna á ferð um landið í sumar.“
Tveir vagnar fullir af fjörugum tilraunum Tilraunalandsins munu skrölta um ögrum skorið landið og heimsækja hvern bæinn á fætur öðrum. Hægt verður að fylgjast með ferðum þeirra á sérstakri bloggsíðu, www.tilraunalandid.wordpress.com , og einnig verður hægt að skoða dagskrána á síðu Norræna hússins, www.norrraenahusid.is . Vagnarnir eiga ekki að fara framhjá neinum þar sem þeir eru fagurlega merktir Tilraunalandinu og í björtum litum.
Undanfarna daga hefur farandsýningin verið á flakki um höfuðborgarsvæðið og í Hveragerði, þar sem henni hefur verið einstaklega vel tekið.
Enn eru áfangastaðir að bætast við, en meðal annars má benda á að Tilraunalandið verður á Írskum dögum á Akranesi 3.-4. júlí og Sænskum dögum á Húsavík 20.-21. júlí. Þá verður sýningin á Akureyri vikuna 21. til 27. ágúst.
Hér er skemmtilegur hlekkur á tilraunir sem hægt er að gera heima: http://www.tomtit.se/Hem-1/Vara-experiment2/Experimentera-hemma/



Hér má sjá mynd af farandsýningu Tilraunalandsins
TOMTIT_1