Viðburðir Allt

DOVILE TOMKUTE –Tvær hliðar raunveruleikans.

  • Friday 27. August 2010 - Friday 10. September 2010


DOVILĖ TOMKUTĖ (b. 1963) er vel þekkt í Litháen sem grafíklistamaður og sýningarstjóri margra listsýninga og verkefna. Tomkuté útskrifaðist frá Listaháskólanum í Vilnius 1987, hún hefur tekið þátt í yfir 50 listsýningum og auk þess sýnt ein sín liðs víða um heim.


Sem sýningarstjóri hefur hún stýrt yfir 300 listsýningum í Litháen og er nú stjórnandi gallerýisins Arka í Vilníus. Síðastliðin áratug hefur hún séð um litháenskar listsýningar í New York, London, Istanbul, Washington DC, og víðar.

 Í list sinni hefur hún mest unnið með prentlist, teikningar, myndskreytingar og stafræna grafík. Verkum hennar hefur verið lýst sem raunsæum og rómantískum þar sem gælt er við minnstu smáatriði .

Dovile Tomkute er einstaklega fær teiknari: hún sækist ekki eftir því að vera nútímaleg né óhlutbundin; hún reynir ekki að bregða áhorfandanum. Hún hefur auk þess látið póstmóderníska strauma í myndlist framhjá sér fara. Verk hennar eru persónuleg og áhugaverð að sjá: þau eru marglaga og merkingarþrungin. Myndir Tomkute eru leikræn enda voru báðir foreldrar hennar frægir leikarar á sviði og í kvikmyndum.

 

Sýningin “Tvær hliðar raunveruleikans” kynnir Tomkute tvær hliðar listar sinnar: Teikningar og stafræna grafík. Þrátt fyrir að verkin eru gerð með algjörlega ólíkum aðferðum og tækni að þá tengjast þau í gegnum einlægni og heiðarleika listamannsins.

 Allar myndirnar á sýningunni voru gerðar á árunum 2007- 2010. Sýningin er styrkt af Nordic-Baltic Mobility Programme in Culture.


Dovilė Tomkutė

Gallery „Arka“

Aušros Vartų str. 7

LT-01129 Vilnius, Lithuania

Tel.: +370 5 2121319,

+370 688 26875 mob.

tomkute@takas.lt,

www.dovile-tomkute.blogspot.com



Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica