Beint í leiðarkerfi vefsins.
NEXUS, rannsóknarvettvangur á sviði öryggis- og varnarmála, boðar til ráðstefnu um þjóðaröryggisstefnu Íslands
mánudaginn 16. janúar. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Alþjóðamálastofnun HÍ, Háskólann á Bifröst,
Rannsóknarþing norðursins, Rannsóknarteymi um öryggismál og landfræðipólitík á norðurslóðum, og Norræna húsið.
Þrátt fyrir að áratugir séu liðnir frá því Ísland öðlaðist sjálfsstæði hefur heildstæð stefna um öryggis- og varnarmál
aldrei verið mótuð á Íslandi.
Varnir landsins hafa verið í höndum utanaðkomandi aðila. Þegar bandaríski herinn hvarf
á brott árið 2006 varð ljóst að framvegis yrðu öryggismál landsins meira á ábyrgð Íslendinga sjálfra. Þessar breyttu
aðstæður kalla á heildstæða stefnumörkun og síðastliðið haust samþykkti
Alþingi þingsályktunartillögu þess efnis að utanríkisráðherra skyldi skipa nefnd sem hefði það hlutverk að móta þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. Stefnumótun sem þessi kallar á opnar og málefnalegar samfélagslegar umræður og er ráðstefnan viðleitni í þá átt. Fyrri hluti ráðstefnunnar byggir á fyrirlestum fræðafólks sem hefur sérþekkingu á sviði öryggismála og verður sá hluti ráðstefnunnar á ensku. Eftir hádegi verða síðan umræður með þátttöku fulltrúa stjórnmálaflokka og fer sá hluti fram á íslensku.
Ráðstefnan fer fram í Norræna húsinu í Reykjavík og hefst klukkan 9.00.