Viðburðir Barnadagskrá

Fjöregg: Breikdans - Freestyle Phanatix frá Danmörku 15/9 kl. 10 og 14

  • Wednesday 15. September 2010

Fjöregg

Barnamenning í Norræna húsinu : Breikdans - Freestyle Phanatix frá Danmörku

15. september kl. 10.00 og 14.00

Kennsla og skemmtun fyrir skólafólk á aldrinum

10 – 12 ára og 13 – 15 ára

 

breikdansNorræna húsið býður nemendum, 10 – 12 ára og 13 – 15 ára að taka þátt í stuttu og skemmtilegu námskeiði í breikdansi. Námskeiðið er liður í Fjöreggi – Barnamenningu í Norræna húsinu og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Námskeiðið er tvískipt, kl. 10.00 fyrir 10 – 12 ára og kl. 14.00 fyrir 13 – 15 ára.

Það fer fram í sýningarsal í kjallara Norræna hússins og varir í 90 mínútur. Námskeiðið skiptist í fyrirlestur og sýningu, síðan tekur við klukkustundar verkleg kennsla.

 

Freestyle Phanatix  www.phanatix.net er stærsti og þekktasti breikdanshópur á Norðurlöndum, með aðsetur í Danmörku og Svíþjóð. Yfir 500.000 einstaklingar á öllum aldri hafa séð sýningar þeirra á Norðurlöndunum og í Evrópu. Í hópnum eru færustu og þekktustu hipp hopp dansarar á Norðurlöndum.

Freestyle Phanatix  hópurinn var stofnaður 1993 og hefur því langa reynslu af dansinum. Dansstíll þeirra hefur þróast frá hipp hopp dansi á götum úti, til stærri sýninga t.d. fyrir leikhús. Hópurinn hefur tekið þátt í gerð margra sjónvarps- og tónlistarmyndbanda og hefur unnið til fjölda verðlauna, þeir eru m.a. tvöfaldir Skandinavíumeistarar og sigurvegarar í keppnum sem hafa farið fram í Svíþjóð og Eystrasaltslöndunum.

 

">htt





Þeir sem hafa áhuga að taka þátt í námskeiðinu, vinsamlegast skráið ykkur hjá undirritaði fyrir 8. september.

 

Ragnheiður Harvey     ragnheidur@nordice.is

Dagskrárfulltrúi Norræna hússins

551 7021 / 551 7030

 


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica