Beint í leiðarkerfi vefsins.
Bækur rithöfundarins Christer Kihlman eru taldar meðal sígildra verka finna.
Kihlman sló í gegn með bók sinni ”Se upp salige” fyrir 50 árum og hefur hún nú nýlega verið
endurútgefin.
Bókin fékk á sínum tíma stórkostlega umsögn i Svíþjóð. En í hinu sænskumælandi Finnlandi olli verkið gýfurlegum deilum. Á áttunda áratugnum hélt Kihlman áfram krossferð sinni á móti smáborgaraskapnum og valdhöfum Sænsk- Finnlands. Bækur hans og rithöfundarins Henrik Tikkanens komu af stað þjóðfélagsumræðu sem smitaði af sér til Svíþjóðar. Orðasambandið ”Kilhmanå Tikkanen” varð jafngildi gagngrýni á eigin samfélag. En rithöfundurinn sá það sem köllun sína að leita og lýsa hinum innri sannleika.
Kihlman er meðal fremstu rithöfunda sem skrifa á sænska tungu í Finnlandi. Hvað hefur hann að segja í dag? Hvaða áherslu leggur hann á spurningar eins og framtíð tungumáls minnihluta gagnvart meirihluta þjóðar? Meðal annars þetta kemur hann til með að taka upp i erindi sínu um ”samfélagskritisk” verk sín - Ett ”samhällskritiskt” författarskap í Norræna húsinu miðvikdaginn 13. aprìl kl 19.
Upphaf heimsóknar Christer Kihlmans till Íslands kom frá áköfum viðskiftavini bókasafns Norræna húsins. Í bréfi till Christers benti hún á að margar af bókum hans væri ekki að finna í bókasafninu. Þess vegna kemur Christer Kihlman í sambandi við fyrirlesturinn að afhenda bókasafni Norræna húsins bókagjöf, sem samanstendur af nokkrum bóka hans á sænsku en einnig þýðingar á öðrum norrænum málum.
Heimsókn Christer Kihlmans er í boði finnska sendráðsins og Norræna húsins.