Viðburðir Ráðstefnur og málþing

Suðræna húsið

Dagskrá í Norræna húsinu 22.-25. mars 2010

  • sunnudagur 21. mars 2010 - fimmtudagur 25. mars 2010

SH-FINAL-LOGO-CMYKMeð hækkandi sól horfir Norræna húsið suður á bóginn og beinir sjónum að bókmenntum og tungumáli fjögurra Suður-Evrópuþjóða og leitar auk þess til Norður-Afríku.

Norræna húsið verður Suðræna húsið og býður upp á fyrirlestra, ljóðatónleika, kvikmyndir, upplestur og kúskús.

Helstu samstarfsaðilar Suðræna hússins eru Alliance française, Franska sendiráðið á Íslandi og ræðismaður Spánar á Íslandi auk þess sem fjölmargir aðrir lögðu hönd á plóginn við skipulagningu verkefnisins.

 Boðið verður upp á fyrirlestra, ljóðatónleika, kvikmyndir, barnadagskrá og kúskús. Guðbergur Bergsson mun fjalla um ljóðaþýðingar sínar úr portúgölsku, Hermann Stefánsson mun flytja erindi um spænskar bókmenntir og Irma Erlingsdóttir mun segja frá alsírska rithöfundinum Assiu Djebar svo fátt eitt sé nefnt.

 Dagskrá:


Mánudagur 22. mars

Ítalía

 

12.00 – 12.30 Einar Thoroddsen og Jón Thoroddsen

Að taka Dante á orðinu

Upplestur og umfjöllun um nýja þýðingu á Dante

 

12:30 – 13.00 Hjalti Snær Ægisson

Milli Feltro og Feltro: Pólitískir spádómar í Gleðileik Dantes

 

18:00 – 20:00 Kvikmynd

                        Amarcord eftir Federico Fellini

Kvikmynd um lífið í ítölskum smábæ á fjórða áratug tuttugustu aldar

 

 

 

Þriðjudagur 23. mars

Portúgal

 

12.00 – 13.00  Guðbergur Bergsson

Portúgalskar bókmenntir

Guðbergur fjallar um safn ljóðaþýðinga sinna úr portúgölsku sem ber heitið Öll heimsins glóð: safn portúgalskra ljóða frá 19002008

 

 

 

Miðvikudagur 24. mars

Spánn

 

15.30 – 15.45 Guðrún H. Tulinius

                        Spænskan á Íslandi

                        Yfirlit um þýðingar úr spænsku

 

15.45 – 16.15 Spænskunemar við MH

Lorca, ljóð og líf

Ljóðlestur og hugleiðingar

 

16.15 – 16.45 Hermann Stefánsson

                        Spánn og spænskar bókmenntir

Hermann fer um víðan völl í spænskri bókmenntasögu

 

17.00 – 18.00 Guðrún Jóhanna og Ástríður Alda

                        Spænsku meistararnir

                        Fegurstu perlur spænskrar ljóðatónlistar ásamt spjalli og fróðleik

 

Fimmtudagur 25. mars

Frakkland og hinn frönskumælandi heimur

  

09.00 – 10.00 Sögustund fyrir 6–8 ára börn – Sólveig Simha

Saga frá Senegal, myndasýning og tónlist 

 

10.30 – 11.30 Kvikmynd fyrir 8–11 ára börn – Sólveig Simha

Le-ballon-rouge-3Myndin Le Ballon Rouge frá árinu 1956 um lítinn strák sem vingast við rauða blöðru og eltir hana um götur Parísarborgar

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.




12.00 – 12.30 Petrína Rós Karlsdóttir

Nokkur orð um norður-afrískar bókmenntir: kúskús og  piparmyntute...

Yfirlit um helstu strauma og stefnur

 

12.30 – 13.00 Irma Erlingsdóttir

Rithöfundur frá Norður-Afríku

Irma fjallar um Assiu Djebar sem þykir einn af áhrifamestu rithöfundum Norður-Afríku

 

14.00 – 15.30 Heimildarmynd

Yves Saint Laurent - 5 Avenue Marceau 75016 Paris

Leikstjóri: David Teboul

 

16.00 – 17.00 Heimildarmynd

Michel Bras or Pierre Gagnaire "L'invention de la cuisine"/ "Inventing Cuisine"

Leikstjóri: Pierre Lacoste

 

19.00 – 22.30 Kúskús og kvikmynd

La Graine et le mulet

Boðssýning: Túnisísk verðlaunakvikmynd frá árinu 2007. Leikstjóri: Abdel Kechiche

 

 

Verkefnsstjóri er Stella Soffía Jóhannesdóttir (stellasoffia@nordice.is)


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica