Viðburðir Ráðstefnur og málþing

Dante og Primo Levi

  • Tuesday 6. April 2010

Ítalski rithöfundurinn Primo Levi skrifaði um útrýmingarbúðir nasista í skáldsögum sínum, meðal annars hrylling þann er hann upplifði í Auschwitz, og í bókum hans má finna margar tengingar við Helvíti Dantes. Í fyrirlestrinum mun Gino Ruozzi, prófessor við Háskólann í Bologna, fjalla um efnið auk þess sem lesin verða brot úr Guðdómlega gleðileiknum og úr bókinni "Se questo e un uomo" eftir Primo Levi en það er skáldsaga sem byggð er að hluta til á ævi höfundarins.

 

Fyrirlesturinn fer fram á ítölsku en íslenskum þýðingum, úr verkum sem lesið verður úr, verður varpað á skjá.

 

Það er Dante Alighieri félagið, Ítalska félagið á Íslandi og ítölskudeild Háskóla Íslands sem standa fyrir viðburðinum.

 


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica