Viðburðir Ráðstefnur og málþing

Hugmyndasmiðjan MAGMA 12. maí kl. 12.15-13.30

  • Wednesday 12. May 2010
Nils Erik Forsgård, forstöðumaður Magma – Finnlandssænsku hugmyndasmiðjunnar ræðir starfsemi hennar í samtali við Gauta Kristmannsson dósent í Norræna húsinu 12. maí, kl. 12.15-13.30. Hugmyndasmiðjunni, sem hóf starfsemi sína 21. janúar 2009 og er kostuð af Finnlandssænskum menningarsjóðum og menntastofnunum, er ætlað að rannsaka og skapa umræður um málefni sænskumælandi minnihlutans í Finnlandi, ekki síst stöðu sænskunnar og tvítyngis meðal landsmanna. En sænska og finnska eru stjórnarskrárbundin tungumál í Finnlandi. Umræðurnar fara fram á ensku.

Nils Erik Forsgård er dósent í hugmyndasögu við Helsinkiháskóla og hefur verið gistikennari í menningarfræðum við Humboldtháskóla í Berlín. Hann hefur skrifað bækur um Berlín, Bandaríkin og sambandslitin milli Svíþjóðar og Finnlands.

 

Dagskráin er hluti af röð málþinga og fyrirlestra um norræn menningarmálefni og er studd af Norræna menningarsjóðnum, Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis, Clara Lachmanns fond og Letterstedtska föreningen.

 

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Norræna húsið


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica