Lykkjur: Norræn prjónalist
17.júní -4.júlí 2010

Lykkjur: Norræn prjónalist er fyrsta sýning sinnar tegundar á Íslandi. Um er að ræða alþjóðlega sýningu á listverkum þar sem nær eingöngu er notast við hekl- og prjónatækni. Saman mynda verkin heilan heim prjóns, heim sem er mjúkur, ævintýralegur, litríkur og lifandi.
Að hátíðinni standa Norræna húsið, Knitting Iceland, Textílsetur Íslands, Ístex, Reykjavík Downtown hostel og Nálin -hannyrðaverslun.
Norræna húsið mun standa fyrir veglegri viðburðadagskrá fyrstu helgi hátíðarinnar þar sem prjónaveisla undir berum himni, smiðjur fyrir börn og fullorðna, fyrirlestrar, prjónum úti dagurinn og margt margt fleira verður í boði.
Lykkjur: Norræn prjónalist mun fagna prjóni og hekli í öllum sínum margbreytileika. Með hátíðinni viljum við miðla prjóni eins og það birtist í samtímanum og munu prjónahönnuðir og listamenn heiðra hátíðina með þáttöku sinni. Staðfestir gestir eru m.a. Isabel Berglund (DK), Sarah Applebaum (USA), Patricia Waller (DE), Helga Isager (DK), Vivian Hoxbro (DK), www.pickles.no (NO) og Masquerade frá Svíþjóð.
Sýningin mun standa til 4.júlí en sjálf viðburðadagskráin stendur yfir 17.-21. júní.
Viðburðir í Norræna húsinu: Hógvært skráningargjald er á allar smiðjur en fyrirlestrar og málþing eru ókeypis.
Utandagskrárviðburðir verða auglýstir síðar.
Dagskrá Lykkja 2010
17.júní
13:30 Opnun sýningarinnar Sýningarsal
14:30-15:30 Opnunarfyrirlestur: Evelyn Clark fyrirlestrasal
15:00-17:00 Prjónagraff með Masquerade Barnabókasafn
20.00-22.00 Sirkusatriði frá Reflex Juggling og Sirkus Sóley
18.júní
10:00-13:00 Stórir prjónar og þykkt garn með Pickles.no gróðurhúsið * UPPBÓKAÐ
13:00-15:00 Er þetta þín hönnun? Málþing um höfundarrétt í prjóni fyrirlestrasalur
14:00-17:00 Prjónagraff með Masquerade Barnabókasafn*
19:30-22:00 Bókamessa og gómsætt garn Anddyri
20:30-22:00 Prjónað og spurt: Knit quiz fyrirlestrasalur
20:00- 22:00 Fyrirlestar með Isabel Berglund, Sarah Applebaum, Patricia Waller og Masqurade Fyrirlestrarsalur
19.júní
10:00-13:00 Frumlegar aðferðir til munsturgerðar með Katrina I Geilsalurinn *
14:00-16:00 Dómínóprjón með Vivian Hoxbro fyrirlestrasalur *
14:00-16:00 Rússneskt hekl með Patrick Hassel-Zein Barnabókasafn *
20. júní
10:00-12:00 Frjálst hekl fyrir krakka með Eddu Lilju Barnabókasafn*
12.00-13.30 Fyrirlestur og sjalaprjón með pickles.no fyrirlestrarsalur *
15:00-17:00 Smiðja með Helgu Isager –athugið námskeiðin hennar í Nálinni www.nalin.is fyrirlestrarsalur*
21.júní
9:00-18:00 Gyllti garnhringurinn með Knitting Iceland**
22. júní
17:00 – 20:30 Hannyrðabúðin á horninu með Knitting Iceland**
24.-25. júní
Textílsetrið Blönduósi
Tveggja daga námskeið í Kvennaskólanum á Blönduósi. Í einstöku umhverfi og andrúmslofti gefst nemendum tækifæri til að kynnast nánar íslensku ullinni með sín sérstöku einkenni, ullin verður kemb og spunnin á halasnældu. Nemendur fá sýnishorn af fjölbreyttum litum íslensku ullarinnar.
25.júní -25.júlí
Prjónaperlur standa yrir prjónaljósmyndasýningunni Prjónalíf nú í sumar á Te & Kaffi í Eymundsson Austurstræti, 25. júní – 25. júlí 2010. Myndefnið er íslenskt prjónafólk og prjónagleði eins og hún birtist Elísabetu Stefánsdóttur, áhugaljósmyndara. Elísabet sá um myndatöku fyrir prjónabókina Prjónaperlur - prjónað frá grasrótinni sem út kom á síðasta ári og fékk frábærar viðtökur. Prjónararnir á myndum Prjónalífs eiga allir uppskrift í bókinni Prjónaperlur.
Sýningin er liður í Norrænu Prjónahátíðinni Lykkjur: Norræn prjónalist sem Norræna húsið stendur fyrir nú í sumar.
*skráning hjá: ilmur@nordice.is
**skráning hjá: ragga@knittingiceland.com
***skráning hjá: textilsetur@simnet.is
Smiðjur - nánari lýsing
Stórir prjónar og þykkt garn með Pickles.no
18.06.2010 kl. 10:00-13:00
Fjallað verður um hugmyndafræðina á bak við Pickles og vinsælustu uppskriftirnar sýndar. Heidi og Anna hafa hannað séruppskrift fyrir Lykkjur og kenna þær hana á námskeiðinu. Þátttakendur koma með eigið garn og prjóna, best er að koma með þykkt gar og stóra prjóna. Prjónað verður sjal og miðið við að ef garnið segir prjónar nr. 4 þá komið þið með prjóna nr. 8.
Fjöldi þátttakenda: 20.
Skráning hjá ilmur@nordice.is 
Skráningargjald er 2000 kr.
Fyrirlestur og sjalaprjón með Pickles.no
20.06. 2010 14.00-16:00
Smiðja með Pickles sem haldin er í sal Norræna hússins. Kynnist konunum á bak við hina stórsniðugu og vinsælu síðu, www.pickles.no. Fyrsti helmingurinn er helgaður síðu Pickles og starfsemi þeirra og svo tekur við skemmtilegt sjalaprjón en þær hafa hannað sérstaka uppskrift fyrir hátíðina.
Skráning : ilmur@nordice.is
verð : 1000 kr.
(NO) : Heidi og Anna eru konurnar á bak við Pickles-síðuna en þar er hægt að nálgast fjölda ókeypis prjónauppskrifta og versla sér gæðagarn.
Prjónagraffíti
17.júní kl. 14:00-17:00
18.júní kl. 14:00-17:00
Lina og Maria ætla að stýra þessari smiðju sem hefur það að leiðarljósi að kynna fólki fyrir hinum mikla sköpunarkrafti og gleði sem býr í prjóni og hekli. Lena og Maria vilja kenna fólki að prjóna og hekla án uppskrifta og á frjálslegan hátt. Í lok námskeiðsins verða bútarnir sem prjónaðir og heklaðir hafa verið á námskeiðinu hengdir upp á götum Reykjavíkur.
Fólk getur komið ókláruð verkefni, gamalt prjónles s.s.sokka, húfur og peysur á námskeiðið. Lena og Maria sýna hvernig hægt er að gefa gamla prjónadótinun ýtt líf í borgarumhverfinu. Þátttakendur koma sjálfir með garn og prjóna/heklunál.
Fjöldi: 40 á hvort námskeið
skráning hjá: ilmur@nordice.is
Skráningargjald: 2000 kr.
Masqureade (SE)
: Um er að ræða aðgerðaprjónahóp frá Stokkhólmi. Þau hafa haldið sýningar og hafa sett upp prjónagraffíti víðsvegar um heiminnn. Kíkjið á síðunna þeirra og fræðist betur: http://maskerade.blogsome.com/
Frumlegar aðferðir til munsturgerðar með Katrina I Geil
19.júní kl: 10:00-13:00
Katrina i Geil (FO):
Frumlegar aðferðir til munsturgerðar með Katrina I Geil frá Færeyjum
Langar þig til þess að hanna þín eigin mynstur? Með útgangspunkt í hinum fallegu hefðbundnu færeysku mynstrum kynnir Katrina nýþróaðar og frumlegar aðferðir til munsturgerðar. Í smiðjunni vinnum við á pappír, sem svo fylgir okkur í gegnum hin ýmsu stig í hönnunarferlinu, og læreum að þróa mörg ný munstur tilbúin til notkunar.
Katrina er hönnuður og listamaður frá Færeyjum, er með MA í textílhönnun frá hönnunarskólanum í Kolding, Danmörku, og sérhæfir sig í prjóni. Hún hefur unnið með fjölda hönnuða s.s. Peter Jensen og Trine Vestergaard og jafnframt hefur hún selt hönnun til Calvin Klein Filippu K.
Skráning hjá: ilmur@nordice.is
Skráningargjald: 2000 kr.
Dómínóprjón með Vivian Hoxbro fyrirlestur/smiðja
19.júní 14:00-16:00
Vivian Hoxbro flytur fyrirlestur um eigin verk og kennir gestum grunnatriði í dómínóprjóni. Í lok smiðjunnar prjóna allir einn dómínóhyrning. Prufurnar verða síðan hengdar upp á vegg og mynda saman eina heild. Nauðsynlegt er að kunna grunnatriði prjóns. Þátttakendur koma með garn og prjóna með sér.
Fjöldi: 80
skráning: ilmur@nordice.is
Skráningargjald: 1000 kr.
Vivian Hoxbro (DK)
Vivian Høxbro hefur gefið út fjölda bóka um t.d. domínóprjón. Hún hefur tekið þátt í ráðstefnum um prjón og haldið námskeið. Hún verður með smiðju í Norræna húsinu.
Rússsneskt hekl með Patrick
Patrick er höfundur nýrrar heklbókar sem kemur út á dögunum frá Knitting Iceland. Á námskeiðinu mun hann fara í grunnatriði þessarar nýstárlegu heklaðferðar og leiðbeina þeim sem þá þegar hafa útvegað sér bókina og eru byrjaðir að hekla.
19.júní kl. 14:00-17:00
Skráning: ilmur@nordice.is
skráningargjald: 2000 kr.
Fjöldi þátttakenda: 20
Fyrirlestrar
17.júní- kl. 15:00-17:00
Evelyn Clark er á Íslandi í boði Knitting Iceland. Á þessari síðdegistund er hægt að hitta Evelyn og fræðast um prjónahönnun hennar. Komið með garn og hringprjóna.
Aðgangur ókeypis - allir velkomnir.
19.júní
kl. 13:00-15:00
Málþing um höfundarrétt í prjóni. Í samstarfi með Knitting Iceland. Þátttakendur tilkynntir síðar.
20:00-22:00
Stuttir og fjörugir fyrirlestrar með Patriciu Waller, Söruh Applebaum, Isabel Berglund og Masquerade.
20.júní
kl. 16:00-18:00
Helga Isager segir frá verkum sínum og prjónahönnun. Helga ætlar að fara með okkur í gegnum nýjustu uppskriftir sínar og við prjónum prufur sem eru lykillinn að uppskriftunum. Pláss fyrir 30 þátttakendur. verð: 1000 kr. Komið með garn og prjóna sjálf.
Sýning
Vík Prjónsdóttir (IS): Vík Prjónsdóttir kom fram á sjónarsviðið 2005 með prjónhönnun sína. Á bak við Vík Prjónsdóttur eru fimm hönnuðir: Brynhildur Pálsdóttir, Egill Kaveli Karlsson, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Hrafnkell Birgisson og Þuríður Rós Sigurþórsdóttir. Á sýningunni sýna þau Selshami sem eru hluti af fyrstu línu þeirra er kom út 2005. www.vikprjonsdottir.com
Isabel Berglund (DK): Isabel Berglund er danskur hönnuður og prjónalistamaður. Hún hannar annars vegar sína eigin tískulínu og hins vegar er hún listamaður. Hún notar prjón mikið í list sinni og hefur skapað heilu heimana bara úr prjóni.
Rósa Sigrún Jónsdóttir (IS)
Rósa Sigrún Jónsdóttir er sveitamanneskja frá Fremstafelli í Suður Þingeyjarsýslu. Hún sótti sér kennaramenntun en söðlaði um og og útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og hefur síðan tekið þátt í margvíslegum listverkefnum innan lands sem utan. Árin 2005-2007 var hún formaður Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík.
Rósa Sigrún vinnur í mismunandi miðla, allt eftir viðfangsefnum en þó má segja að meðferð textílefna og rýmisvinna sé henni nærtækust.
Rósa tekur þátt í sýningunni.
Patricia Waller: gerir óvenjuleg heklverk sem blanda saman krútti og hryllingi. Verkin eru kunnugleg en óþægileg á sama tíma.
Patricia er fædd í Chile en býr og starfar í Berlín, Þýskalandi, og hefur tekið þátt í fjölda sýninga þar og annars staðar í Evrópu.
Sarah Applebaum býr og starfar í Kaliforníu, Bandaríkjunum. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga og fengið margar viðurkenningar fyrir list sína.
Í verkum sínum notar hún bæði prjón og hekl og eru þetta litríkar innsetningar og heilir heimar garns. http://www.sarahapplebaum.comMasqureade (SE)
: Um er að ræða aðgerðaprjónahóp frá Stokkhólmi. Þau hafa haldið sýningar og hafa sett upp prjónagraffíti víðsvegar um heiminnn. Kíkjið á síðunna þeirra og fræðist betur: http://maskerade.blogsome.com/
Arndís Sigurbjörnsdóttir sýnir prjónalistaverk í anddyri Norræna hússins. Verk hennar eru litrík og frumleg. Um er að ræða konfektmyndir, ávexti og bakkelsi, töskur og bangsa. Arndís er jafnframt með töskur til sölu í verslun Norræna hússins og í verslun Steinunnar Sigurðardóttur, fatahönnuðar.
Hélene Magnusson: www.helenemagnusson.blogspot.com
Dagskrá Knitting Iceland
21.júní kl. 17:00-19:30 Leiðsögn um miðbæ Reykjavíkur þar sem garnbúðir eru heimsóttar. 2-3 tímar, verð. 2500 kr.
"The Woolen Circle": Dagsferð 8-9 tímar verð: 18.500
Skráning: ragga@knittingiceland.com

Dagskrá Textílseturs
Námskeið Textílseturs Íslands á Blönduósi 24.-25.júní 2010.
Tveggja daga námskeið í Kvennaskólanum á Blönduósi. Í einstöku umhverfi og andrúmslofti gefst nemendum tækifæri til að kynnast nánar íslensku ullinni með sín sérstöku einkenni, ullin verður kemb og spunnin á halasnældu. Nemendur fá sýnishorn af fjölbreyttum litum íslensku ullarinnar. Seinni daginn verður kenndur vattarsaumur sem er forn aðferð við að gera flíkur. Vattarsaumur er eldri en bæði prjón og hekl og er því undanfari þeirra aðferða og lærdómsríkt að kunna fyrir alla unnendur prjóns og hekls. Kennt verður á ensku, dönsku, sænsku og íslensku.
Dagskrá námskeiðanna:
Fimmtud. 24.júní:
8.30 brottför BSÍ Reykjavík. 12.30 koma Blönduós.
13.00 – hádegisverður í matsal Kvennaskólans, sumarleg kjötsúpa.
14.00 – 18.00 - námskeið í tóvinnu og spuna á halasnældu
19.00 – kvöldverður – fiskur að hætti húsins
20.00 – kvöldvaka og skoðunarferð um Kvennaskólann
Föstud. 25. júní
8.00-9.00 – morgunverður
9.00 – heimsókn í Ullarþvottastöðina og Heimilisiðnaðarsafnið
12.00-13.00 – hádegisverður, fiskisúpa fyrir prjónara
13.00 - 17.30 - námskeið í vattarsaumi
18.00 – 19.00 – léttur kvöldverður
19.20 – brottför Blönduós – Reykjavík
VERÐ: 34.500-ISK. (með rútufargjaldinu)
Námskeið verða einnig í Kvennaskólanum frá 26.júní – 29.júní. Sjá nánar á heimasíðu Textílseturs: www.textilsetur.is en einnig má senda fyrirspurnir til: textilsetur@simnet.is
26.júní – 29.júní:
Útsaumur - nafnamerkingar: Björk Ottósdóttir, kennari frá Skals handårbejdesskole.
Orkering: Helga Jóna Þórunnardóttir, eigandi Nálarinnar.
Gimb: Eva Hulda Emilsdóttir, handavinnukennari.
Frjálst hekl: Edda Lilja Guðmundsdóttir, handavinnukennari og höfundur 52 húfur á 52 vikum. www.snigla.com.
Fleiri þáttakendur verða kynntir síðar ásamt ítarlegri dagskrá...
Þeir sem hafa áhuga á að vera með viðburð á dagskránni eru hvattir til þess að hafa samband við verkefnastjóra hátíðarinnar: Ilmi Dögg í ilmur@nordice.is.



