Viðburðir Sýningar

2 mínútur- ljósmyndasýning

  • Saturday 14. January 2012 - Sunday 12. February 2012

ArniRegin Weihe Dalsgaard sýnir myndir af grindhvaladrápi í Færeyjum á sýningunni sinni "2 mínútur" sem opnar 14.janúar og stendur til og með 12. febrúar. Myndirnar varpa óvenjulegu ljósi á viðfangsefnið. Meginþema sýningarinnar eru viðbrögð áhorfenda við grindhvaladrápunum en ekki drápin sjálf. Sjón er sögu ríkari.


Grindhvalaadráp í Norræna húsinu

 

Brátt fá Íslendingar einstætt tækifæri til þess að öðlast betri skilning á „grindhvaladrápi” eða grindhvalaveiðum, ævafornri hefð sem enn lifir góðu lífi í Færeyjum.

 

Dagana 14.janúar til 12.febrúar býður Norræna húsið upp á sýningu ljósmynda sem teknar voru við grindhvalaadráp á ströndinni við Þórshöfn þann 23. júlí 2010.

 

Sýningin hefur þegar verið sett upp í Þórshöfn og Kaupmannahöfn og nú er röðin sem sagt komin að Reykjavík.

 

Myndirnar eru teknar af Regin W. Dalsgaard á tveimur mínútum og sýna ákafa baráttu hvala og manna á meðan á grindadrápi stendur. En grindhvaladrápið sjálft er þó ekki mikilvægasta myndefnið heldur þátttakendurnir því svipur þeirra sýnir allar þær miklu tilfinningar sem tengjast veiðunum. Á okkar dögum er ekki algengt að sjá svo sterkar tilfinningar tjáðar annars staðar en á hvíta tjaldinu í Hollywood-kvikmyndum. „Myndirnar sýna Færeyinga sem taka sér hlé frá daglegu amstri til þess að taka þátt í ævafornri þjóðarhefð, grindadrápi,“ segir ljósmyndarinn Regin W. Dalsgaard.

 

Regin lítur á sig sem boðbera. Hann hefur lengi verið heillaður af grindhvaladrápi en afstaða hans til veiðanna er þó hlutlaus vegna þess að hann skilur rök jafnt fylgjenda sem andstæðinga þeirra.

 

Alþjóðlegir fjölmiðlar hafa sýnt myndunum mikinn áhuga og kynnt þær í efni sínu. í sumar sem leið lét Discovery Channel gera heimildamynd frá Færeyjum og þar átti Regin hlut að máli sem ljósmyndari. Þátturinn verður sendur út síðar á árinu.

 

Regin Weihe Dalsgaard fæddist í Þórshöfn árið 1984 og hefur lengi haft brennandi áhuga á ljósmyndun. Regin kýs helst að taka portrettmyndir af fólki, dýramyndir og tónleikamyndir en hann hefur unnið fyrir alþjóðleg tónlistartímarit og hljómsveitir frá bæði Færeyjum og öðrum löndum.

 

Myndir hans birtast oft í hinu þekkta danska tónlistartímariti Gaffa og í Metal Hammer, stærsta þungarokkstímariti Bretlands. Myndir  Regins hafa auk þess birst í fjölmörgum dagblöðum.

 

Regin aflar sér um þessar mundir menntunar í ljósmyndun við New York Institute of Photography og árið 2010 vann hann þar verðlaun fyrir eina af myndum sínum.

 

Regin leggur stund á fleira en ljósmyndun, hann er forstjóri upplýsingatæknifélagsins Globi, sjá www.globi.fo . Regin er einnig sjóðsstjóri færeysks framkvæmdasjóðs.

 

Ljósmyndirnar frá grindadrápinu hafa verið gefnar út í bókinni ”2 mínótur” og verður hún til sölu í Norræna húsinu á meðan sýningin er opin þar.




Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica