Beint í leiðarkerfi vefsins.
Það eru 150 ár frá fæðingu norska rithöfundarins Knut Hamsun. Bækur hans
hafa verið ákaflega vinsælar á Íslandi í afar vönduðum þýðingum Jóns
Sigurðssonar. En þó bækur Hamsun séu elskaðar hefur höfundurinn verið
umdeildur ekki minnst í Noregi. Afstaðan til Hamsun varðar öll meginsvið í
tilveru okkar; pólitík, siðfræði, fegurð og samkennd, svo nokkuð sé nefnt.
Margar kvikmyndir hafa verið gerðar eftir skáldsögum Hamsun og tvær
þeirra; Gróður jarðar (1921) og Pan (1995) verða sýndar í Norræna húsinu
kl. 15.00 og 17.00 laugardaginn 3. október.
Á málþingi Bókmennta- og listfræðistofnunar Háskóla Íslands og Norska
sendiráðsins sem ber yfirskriftina, Knut Hamsun - mikilvægur og umdeildur,
fjalla fimm fræðimenn um stílsnillinginn, glæsimennið, svikarann og gátuna
Knut Hamsun en þó fyrst og fremst um verk hans. Málþingið fer fram í
Norræna húsinu, sunnudaginn 4. október og hefst klukkan 13.30.
Laugardaginn 3. október - kvikmyndasýning
Kl. 15.00 Markens grøde (1921), leikstjóri: Gunnar Sommerfeldt, lengd 107
mín.
Kl. 17.00 Pan (1995), leikstjóri: Henning Carlsen, lengd 115 mín.
Sunnudaginn 4. október kl. 13.30-17.00
Málþing: Knut Hamsun - mikilvægur og umdeildur.
Dagskrá málþingsins er aðgengileg á vef HÍ
Heimildarmyndin “Dreymt og upplifað",
Knut Hamsun 1859-1952" eftir norska leikstjórann Knut Erik Jensen
Norræna húsið 8. október kl. 20.00
“Þann tíma sem ég vann að myndinni um líf Hamsuns, þá bæði dreymdi mig hann og upplifði. Hamsun er bæði lifandi og látinn.”
Knut Erik Jensen leikstjóri
“Mér er ekki kunnugt um að nokkur muni eftir eða hafi upplifað líf sitt í réttri tímaröð. Eigin mistök í lífinu getur maður fyrst skilið eða útskýrt eftirá. Það eru þessi hugmyndatengsl er grundvöllur myndarinnar.”
Knut Erik Jensen leikstjóri
Enginn aðgangseyrir