Viðburðir Sýningar

Lykkjur: Norræn prjónalist

17.júní -4.júlí 2010

  • fimmtudagur 17. júní 2010 - sunnudagur 4. júlí 2010




LYKKJUR--LOGO-460x180px72

Lykkjur: Norræn prjónalist er fyrsta sýning sinnar tegundar á Íslandi. Um er að ræða alþjóðlega sýningu á listverkum þar sem nær eingöngu er notast við hekl- og prjónatækni. Saman mynda verkin heilan heim prjóns, heim sem er mjúkur, ævintýralegur, litríkur og lifandi.

Að hátíðinni standa Norræna húsið, Knitting Iceland, Textílsetur Íslands, Ístex, Reykjavík Downtown hostel og Nálin -hannyrðaverslun.

Norræna húsið mun standa fyrir veglegri viðburðadagskrá fyrstu helgi hátíðarinnar þar sem prjónaveisla undir berum himni, smiðjur fyrir börn og fullorðna, fyrirlestrar, prjónum úti dagurinn og margt margt fleira verður í boði. 

Lykkjur: Norræn prjónalist mun fagna prjóni og hekli í öllum sínum margbreytileika. Með hátíðinni viljum við miðla prjóni eins og það birtist í samtímanum og munu prjónahönnuðir og listamenn heiðra hátíðina með þáttöku sinni. Staðfestir gestir eru m.a. Isabel Berglund (DK), Sarah Applebaum (USA), Patricia Waller (DE), Helga Isager (DK), Vivian Hoxbro (DK), www.pickles.no (NO) og Masquerade frá Svíþjóð.

Sýningin mun standa til 4.júlí  en sjálf viðburðadagskráin stendur yfir 17.-21. júní. 

Viðburðir í Norræna húsinu: Hógvært skráningargjald er á allar smiðjur en fyrirlestrar og málþing eru ókeypis.

Utandagskrárviðburðir verða auglýstir síðar.

Dagskrá Lykkja 2010

17.júní

13:30 Opnun sýningarinnar Sýningarsal

14:30-15:30 Opnunarfyrirlestur: Evelyn Clark    fyrirlestrasal

15:00-17:00 Prjónagraff með Masquerade Barnabókasafn

20.00-22.00 Sirkusatriði frá Reflex Juggling og Sirkus Sóley

 

18.júní

10:00-13:00 Stórir prjónar og þykkt garn með Pickles.no gróðurhúsið * UPPBÓKAÐ

13:00-15:00 Er þetta þín hönnun? Málþing um höfundarrétt í prjóni fyrirlestrasalur  

14:00-17:00 Prjónagraff með Masquerade Barnabókasafn*

19:30-22:00 Bókamessa og gómsætt garn Anddyri

20:30-22:00 Prjónað og spurt: Knit quiz fyrirlestrasalur

20:00- 22:00 Fyrirlestar með Isabel Berglund, Sarah Applebaum, Patricia Waller og Masqurade   Fyrirlestrarsalur

19.júní

10:00-13:00 Frumlegar aðferðir til munsturgerðar með Katrina I Geilsalurinn *

14:00-16:00 Dómínóprjón með Vivian Hoxbro  fyrirlestrasalur *

14:00-16:00 Rússneskt hekl með Patrick Hassel-Zein Barnabókasafn *

20. júní

10:00-12:00 Frjálst hekl fyrir krakka með Eddu Lilju  Barnabókasafn*

12.00-13.30 Fyrirlestur og sjalaprjón með pickles.no fyrirlestrarsalur *

15:00-17:00 Smiðja  með Helgu Isager –athugið námskeiðin hennar í Nálinni www.nalin.is  fyrirlestrarsalur*

 

21.júní

9:00-18:00 Gyllti garnhringurinn  með  Knitting Iceland**

 

22. júní

17:00 – 20:30 Hannyrðabúðin á horninu með  Knitting Iceland**

                         

24.-25. júní

Textílsetrið Blönduósi

Tveggja daga námskeið í Kvennaskólanum á Blönduósi. Í einstöku umhverfi og andrúmslofti gefst nemendum tækifæri til að kynnast nánar íslensku ullinni með sín sérstöku einkenni, ullin verður kemb og spunnin á halasnældu. Nemendur fá sýnishorn af fjölbreyttum litum íslensku ullarinnar.

 

25.júní -25.júlí

Prjónaperlur standa yrir prjónaljósmyndasýningunni Prjónalíf nú í sumar á Te & Kaffi í Eymundsson Austurstræti, 25. júní – 25. júlí 2010. Myndefnið er íslenskt prjónafólk og prjónagleði eins og hún birtist Elísabetu Stefánsdóttur, áhugaljósmyndara. Elísabet sá um myndatöku fyrir prjónabókina Prjónaperlur - prjónað frá grasrótinni sem út kom á síðasta ári og fékk frábærar viðtökur.  Prjónararnir á myndum Prjónalífs eiga allir uppskrift í bókinni Prjónaperlur.
 Sýningin er liður í Norrænu Prjónahátíðinni Lykkjur: Norræn prjónalist sem Norræna húsið stendur fyrir nú í sumar.


*skráning hjá: ilmur@nordice.is

**skráning hjá: ragga@knittingiceland.com

***skráning hjá:  textilsetur@simnet.is

 

Smiðjur - nánari lýsing


Stórir prjónar og þykkt garn með Pickles.no

18.06.2010 kl. 10:00-13:00

pickles


Fjallað verður um hugmyndafræðina á bak við Pickles og vinsælustu uppskriftirnar sýndar. Heidi og Anna hafa hannað séruppskrift fyrir Lykkjur og kenna þær hana á námskeiðinu.  Þátttakendur koma með eigið garn og prjóna, best er að koma með þykkt gar og stóra prjóna. Prjónað verður sjal og miðið við að ef garnið segir prjónar nr. 4 þá komið þið með prjóna nr. 8.


Fjöldi þátttakenda: 20.

Skráning hjá ilmur@nordice.is  picklesmynd

Skráningargjald er 2000 kr.


Fyrirlestur og sjalaprjón með Pickles.no 

20.06. 2010 14.00-16:00

Smiðja með Pickles sem haldin er í sal Norræna hússins. Kynnist konunum á bak við hina stórsniðugu og vinsælu síðu, www.pickles.no. Fyrsti helmingurinn er helgaður síðu Pickles og starfsemi þeirra og svo tekur við skemmtilegt sjalaprjón en þær hafa hannað sérstaka uppskrift fyrir hátíðina.

Skráning : ilmur@nordice.is
verð : 1000 kr.

www.pickles.no

(NO) : Heidi og Anna eru konurnar á bak við Pickles-síðuna en þar er hægt að nálgast fjölda ókeypis prjónauppskrifta og versla sér gæðagarn.

Prjónagraffíti

17.júní kl. 14:00-17:00
18.júní kl. 14:00-17:00


graffityLina og Maria ætla að stýra þessari smiðju sem hefur það að leiðarljósi að kynna fólki fyrir hinum mikla sköpunarkrafti og gleði sem býr í prjóni og hekli. Lena og Maria vilja kenna fólki að prjóna og hekla án uppskrifta og á frjálslegan hátt. Í lok námskeiðsins verða bútarnir sem prjónaðir og heklaðir hafa verið á námskeiðinu hengdir upp á götum Reykjavíkur.

Fólk getur komið ókláruð verkefni, gamalt prjónles s.s.sokka, húfur og peysur á námskeiðið. Lena og Maria sýna hvernig hægt er að gefa gamla prjónadótinun ýtt líf í borgarumhverfinu. Þátttakendur koma sjálfir með garn og prjóna/heklunál.

Fjöldi: 40 á hvort námskeið

skráning hjá: ilmur@nordice.is

Skráningargjald: 2000 kr.




Masqureade (SE)

: Um er að ræða aðgerðaprjónahóp frá Stokkhólmi. Þau hafa haldið sýningar og hafa sett upp prjónagraffíti víðsvegar um heiminnn. Kíkjið á síðunna þeirra og fræðist betur: http://maskerade.blogsome.com/


Frumlegar aðferðir til munsturgerðar með Katrina I Geil

19.júní kl: 10:00-13:00
Katrina i Geil (FO):

Frumlegar aðferðir til munsturgerðar með Katrina I Geil frá Færeyjum

Langar þig til þess að hanna þín eigin mynstur? Með útgangspunkt í hinum fallegu hefðbundnu færeysku mynstrum kynnir Katrina nýþróaðar og frumlegar aðferðir til munsturgerðar. Í smiðjunni vinnum við á pappír, sem svo fylgir okkur í gegnum hin ýmsu stig í hönnunarferlinu, og læreum að þróa mörg ný munstur tilbúin til notkunar.

Katrina er hönnuður og listamaður frá Færeyjum, er með MA í textílhönnun frá hönnunarskólanum í Kolding, Danmörku, og sérhæfir sig í prjóni. Hún hefur unnið með fjölda hönnuða s.s. Peter Jensen og Trine Vestergaard og jafnframt hefur hún selt hönnun til Calvin Klein Filippu K.

Skráning hjá: ilmur@nordice.is

Skráningargjald: 2000 kr.

Dómínóprjón með Vivian Hoxbro fyrirlestur/smiðja

19.júní 14:00-16:00

dominoknitVivian Hoxbro flytur fyrirlestur um eigin verk og kennir gestum grunnatriði í dómínóprjóni. Í lok smiðjunnar prjóna allir einn dómínóhyrning. Prufurnar verða síðan hengdar upp á vegg og mynda saman eina heild. Nauðsynlegt er að kunna grunnatriði prjóns. Þátttakendur koma með garn og prjóna með sér.

Fjöldi: 80

skráning: ilmur@nordice.is

Skráningargjald: 1000  kr.

Vivian Hoxbro (DK)

Vivian Høxbro hefur gefið út fjölda bóka um t.d. domínóprjón. Hún hefur tekið þátt í ráðstefnum um prjón og haldið námskeið. Hún verður með smiðju í Norræna húsinu.


Rússsneskt hekl með Patrick

Patrick-and-the-crochet-hookPatrick er höfundur nýrrar heklbókar sem kemur út á dögunum frá Knitting Iceland. Á námskeiðinu mun hann fara í grunnatriði þessarar nýstárlegu heklaðferðar og leiðbeina þeim sem þá þegar hafa útvegað sér bókina og eru byrjaðir að hekla.

19.júní kl. 14:00-17:00

Skráning: ilmur@nordice.is

skráningargjald: 2000 kr.

Fjöldi þátttakenda: 20


Fyrirlestrar

17.júní- kl. 15:00-17:00
K_LaceTriangles

Evelyn Clark er á Íslandi í boði Knitting Iceland. Á þessari síðdegistund er hægt að hitta Evelyn og fræðast um prjónahönnun hennar. Komið með garn og hringprjóna.

Aðgangur ókeypis - allir velkomnir.




19.júní

kl. 13:00-15:00

Málþing um höfundarrétt í prjóni. Í samstarfi með Knitting Iceland. Þátttakendur tilkynntir síðar.

20:00-22:00

Stuttir og fjörugir fyrirlestrar með Patriciu Waller, Söruh Applebaum, Isabel Berglund og Masquerade.


20.júní

kl. 16:00-18:00

HelgaIsagerHelga Isager segir frá verkum sínum og prjónahönnun. Helga ætlar að fara með okkur í gegnum nýjustu uppskriftir sínar og við prjónum prufur sem eru lykillinn að uppskriftunum. Pláss fyrir 30 þátttakendur. verð: 1000 kr. Komið með garn og prjóna sjálf.




Sýning

Vík Prjónsdóttir (IS)

: Vík Prjónsdóttir kom fram á sjónarsviðið 2005 með prjónhönnun sína. Á bak við Vík Prjónsdóttur eru fimm hönnuðir: Brynhildur Pálsdóttir, Egill Kaveli Karlsson, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Hrafnkell Birgisson og Þuríður Rós Sigurþórsdóttir. Á sýningunni sýna þau Selshami sem eru hluti af fyrstu línu þeirra er kom út 2005. www.vikprjonsdottir.com

Isabel Berglund (DK): Isabel Berglund er danskur hönnuður og prjónalistamaður. Hún hannar annars vegar sína eigin tískulínu og hins vegar er hún listamaður. Hún notar prjón mikið í list sinni og hefur skapað heilu heimana bara úr prjóni.


Rósa Sigrún Jónsdóttir (IS)

Rósa Sigrún Jónsdóttir er sveitamanneskja frá Fremstafelli í Suður Þingeyjarsýslu. Hún sótti sér kennaramenntun en söðlaði um og og útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og hefur síðan tekið þátt í margvíslegum listverkefnum innan lands sem utan. Árin 2005-2007 var hún formaður Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík.
Rósa Sigrún vinnur í mismunandi miðla, allt eftir viðfangsefnum en þó má segja að meðferð textílefna og rýmisvinna sé henni nærtækust.

Rósa tekur þátt í sýningunni.


Patricia Waller: gerir óvenjuleg heklverk sem blanda saman krútti og hryllingi. Verkin eru kunnugleg en óþægileg á sama tíma.

Patricia er fædd í Chile en býr og starfar í Berlín, Þýskalandi, og hefur tekið þátt í fjölda sýninga þar og annars staðar í Evrópu.

http://www.patriciawaller.com


Sarah Applebaum býr og starfar í Kaliforníu, Bandaríkjunum. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga og fengið margar viðurkenningar fyrir list sína.

Í verkum sínum notar hún bæði prjón og hekl og eru þetta litríkar innsetningar og heilir heimar garns.  http://www.sarahapplebaum.com


Masqureade (SE)

: Um er að ræða aðgerðaprjónahóp frá Stokkhólmi. Þau hafa haldið sýningar og hafa sett upp prjónagraffíti víðsvegar um heiminnn. Kíkjið á síðunna þeirra og fræðist betur: http://maskerade.blogsome.com/


Arndís Sigurbjörnsdóttir sýnir prjónalistaverk í anddyri Norræna hússins. Verk hennar eru litrík og frumleg. Um er að ræða konfektmyndir, ávexti og bakkelsi, töskur og bangsa. Arndís er jafnframt með töskur til sölu í verslun Norræna hússins og í verslun Steinunnar Sigurðardóttur, fatahönnuðar.


Hélene Magnusson: www.helenemagnusson.blogspot.com

Dagskrá Knitting Iceland 

21.júní kl. 17:00-19:30 Leiðsögn um miðbæ Reykjavíkur þar sem garnbúðir eru heimsóttar.  2-3 tímar, verð. 2500 kr.


"The Woolen Circle": Dagsferð 8-9 tímar verð: 18.500

Skráning: ragga@knittingiceland.com

knittingiceland3

Dagskrá Textílseturs

Námskeið Textílseturs Íslands á Blönduósi 24.-25.júní 2010.

 

Kindur_4072Tveggja daga námskeið í Kvennaskólanum á Blönduósi. Í einstöku umhverfi og andrúmslofti gefst nemendum tækifæri til að kynnast nánar íslensku ullinni með sín sérstöku einkenni, ullin verður kemb og spunnin á halasnældu. Nemendur fá sýnishorn af fjölbreyttum litum íslensku ullarinnar. Seinni daginn verður kenndur vattarsaumur sem er forn aðferð við að gera flíkur. Vattarsaumur er eldri en bæði prjón og hekl og er því undanfari þeirra aðferða og lærdómsríkt að kunna fyrir alla unnendur prjóns og hekls. Kennt verður á ensku, dönsku, sænsku og íslensku.

Dagskrá námskeiðanna:

Fimmtud. 24.júní:

8.30 brottför BSÍ Reykjavík. 12.30 koma Blönduós.
13.00 – hádegisverður í matsal Kvennaskólans, sumarleg kjötsúpa.
14.00 – 18.00 - námskeið í tóvinnu og spuna á halasnældu
19.00 – kvöldverður – fiskur að hætti húsins
20.00 – kvöldvaka og skoðunarferð um Kvennaskólann

Föstud. 25. júní

8.00-9.00 – morgunverður
9.00 – heimsókn í Ullarþvottastöðina og Heimilisiðnaðarsafnið
12.00-13.00 – hádegisverður, fiskisúpa fyrir prjónara
13.00 - 17.30 - námskeið í vattarsaumi
18.00 – 19.00 – léttur kvöldverður
19.20 – brottför Blönduós – Reykjavík

VERÐ: 34.500-ISK. (með rútufargjaldinu)

Námskeið verða einnig í Kvennaskólanum frá 26.júní – 29.júní. Sjá nánar á heimasíðu Textílseturs:  www.textilsetur.is en einnig má senda fyrirspurnir til: textilsetur@simnet.is

26.júní – 29.júní:
Útsaumur - nafnamerkingar: Björk Ottósdóttir, kennari frá Skals handårbejdesskole.

Orkering: Helga Jóna Þórunnardóttir, eigandi Nálarinnar.
Gimb: Eva Hulda Emilsdóttir, handavinnukennari.
Frjálst hekl: Edda Lilja Guðmundsdóttir, handavinnukennari og höfundur 52 húfur á 52 vikum. www.snigla.com.

 




Fleiri þáttakendur verða kynntir síðar ásamt ítarlegri dagskrá...

Þeir sem hafa áhuga á að vera með viðburð á dagskránni eru hvattir til þess að hafa samband við verkefnastjóra hátíðarinnar: Ilmi Dögg í ilmur@nordice.is.


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica