Beint í leiðarkerfi vefsins.
Norræna húsið í Reykjavík, 4-26. júní 2011
-málverk, skúlptúrar, teikningar, innsetningar, vídeoverk
SÝNENDUR:
Randi Nygård
Tommy Johansson
Maja Nilsen
Jørund Aase Falkenberg
ATH. Leiðsögn verður um sýninguna Sunnudaginn 5.júní. Þá munu vera með stutta kynningu á hugmyndinni á bak við sýninguna og leiðsögn.
Verkefni "0" er samsýning fjögurra norskra listamanna. Fást listamennirnir allir við hinn póstmóderníska raunveruleika á brotakenndan og breytilegan hátt. Þau vilja meina að með því að líta til mannkynnsögunnar höfum við tækifæri til sjálfskoðunnar í stærra samhengi. Þrátt fyrir ólíka nálgun listamannana á viðfangsefnið eiga þeir það sameiginlegt að takast á við vandamál nútímans á afdráttarlausan hátt.
Erfiðleikar samfélagsins vegna fjármála, ólíkrar menningar, vistkerfisins, samskipta og trúarbragða þvinga fram sameiginleg sjónarmið mannkyns en skapa einnig óeiningu. Jafnframt geta einstrengisleg sjónarhorn boðið upp á vandræði. Það ögrar vestrænum hugmyndum um frelsi og sannleika, ásamt hugmyndum okkar um eigin framtíð. Vegna aukinna umsvifa mannkyns og afleiðinga þeirra verða hugmyndir okkar um manneskjuna áleitnari.
Sýningin gefur innsýn í þessi álitamál. Verkefni 0 er opinn vettvangur sem óskar ekki eftir samþykki eða reynir að uppfylla einhverja ákveðna listræna stefnuskrá. Með því að rannsaka grundvöll tilverunnar, beinist sýnin einnig að forsendum listamannanna sjálfra og sýn þeirra á raunveruleikann.
Sunnudaginn 5. júní standa listamennirnir fyrir leiðsögn og umræðum um sýninguna.+
Verkefni 0 er styrkt af Norrænu menningargáttinni og Miðstöð samtímalistar í Noregi.
