Beint í leiðarkerfi vefsins.
Tónleikar í Norræna húsinu á sumardaginn fyrsta, 22. apríl 2010, kl. 15.00.
Kvennakór við Háskóla Íslands
Sólveig Anna Jónsdóttir, píanó stjórnandi: Margrét Bóasdóttir
Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt; m.a. kórverk eftir Robert Schumann en í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans,
glæsileg kórverk eftir Franz Schubert, Joseph Haydn og Antonin Dvorák, lög eftir Jón Ásgeirsson við ljóð Vilborgar
Dagbjartsdóttur, lög eftir Gunnstein Ólafsson við ljóð Steins Steinarr og lög eftir Jónas Tómasson við bráðfyndin ljóð
Þórarins Eldjárns.
Kvennakórinn við Háskólann hefur starfað frá því í desember 2005 og var stofnaður með kjarna kórstúlkna sem hafa margra ára söngreynslu. Kórinn skipa nú 30 stúlkur sem eru flestar nemendur eða starfsfólk háskólans. Kórinn hefur verið vinsæll hjá söngelskum, erlendum skiptinemum og nú syngja fimm stúlkur frá jafnmörgum löndum með í kórnum.
Aðgangseyrir er kr. 1.500.- frítt fyrir börn.