Beint í leiðarkerfi vefsins.
kl. 19:00 25.júní
Í verkinu er fjallað um norsku skáldkonuna Sigrid Undset og hefst frásögnin á æskuárum hennar og lýkur um það leyti sem fyrsta skáldsagan, Frú Marta Oulie kemur út árið 1907 en þá var Undset 25 ára gömul og starfaði sem skrifstofustúlka á daginn en sat við skriftir á kvöldin.
Undset fæddist í Danmörku en fluttist til Noregs með fjölskyldu sinni ung að árum. Faðir hennar lést þegar hún var ellefu ára gömul og móðir hennar, sem hafði fyrir þremur dætrum að sjá, hafði ekki efni á að styðja þær til mennta. Undset fór því í ritaraskóla og útskrifaðist þaðan sextán ára gömul. Tekjur hennar af ritarastarfinu hjálpuðu til við framfærslu fjölskyldunnar.
Sigrid Undset hefur verið kölluð skálddrottning Norðmanna og gaf hún út fjölda skáldsagna á rithöfundarferli sínum. Undset beinir sjónum einkum að hlutskipti kvenna í skrifum sínum og fjallaði fyrsta skáldsaga hennar um konu sem er manni sínum ótrú og þá hugarangist sem heltekur hana í kjölfarið og eyðileggur líf hennar. Undset er frægust fyrir bækur sínar um Kristínu Lavransdóttur, sögulegar skáldsögur sem gerast í Noregi á miðöldum. Undset hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1928.
Í kabarettinum birtist áhorfendum mynd af manneskjunni Sigrid Undset fremur en rithöfundinum en Kristi Kinsarvik byggir þó verkið að einhverju leyti á textum Undset.
Kabarettinn hefur verið fluttur á bókmenntahátíðum, í menningarhúsum og leikhúsum víða um Noreg auk þess sem kabarettinn er settur reglulega upp í Bjerkebæk, húsinu þar sem Sigrid Undset bjó, fyrir fullu húsi áhorfenda.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.