Viðburðir Tónleikar

Kammerklúbburinn

Kammerklúbburinn  er um 20 manna hópur ungra, íslenskra tónlistarnemenda. Þeir koma úr fimm  tónlistarskólum í Reykjavík,
 eru á aldrinum 8 til 18 ára, og spila á fiðlu, víólu, selló og píanó.
 Í Kammerklúbbnum spila þeir saman í sex kammersveitum, þjálfast með því í að spila tónlist með öðrum og afla sér nýrrar tónlistarreynslu.
Samstarf klúbbfélaganna byggir og faglegum metnði og vináttu.

 Kammerklúbburinn er eini starfandi kammerklúbbur á Íslandi. Hann var stofnaður í ágúst 2009 að frumkvæði Ewu Tosik-Warszawiak, listræns stjórnanda klúbbsins, og foreldra nokkurra af fyrstu þátttakendunum. Foreldrahópurinn starfrækir Stuðningsfélag Kammerklússins, sem sér um ýmis rekstrarleg málefni klúbbsins. Þessi samvinna foreldra, nemenda og stjórnanda hefur skilað góðum árangri í virku tónlistarlífi klúbbsins. Uppselt hefur verið á tónleika klúbbsins og áheyrendur hafa lýst ánægju sinni með tónlistarflutninginn.

Á meðal styrktaraðila Kammerklúbbsins eru Suzuki tónlistarskólinn í Reykjavík og  Aðalræðismannsskrifstofa Lýðveldi Póllands í Reykjavík.


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica